DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Golden Heart

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS 187-12
DROPS Design: Mynstur me-131
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 30, sinnep
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING (á við um berustykki):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið þeim 100 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8,3. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 8. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1 og A.2). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 100-104-110-116-120-126 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum sinnep. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-22-16-24-20-28 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 112-126-126-140-140-154 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Prjónið A.1 hringinn (= 8-9-9-10-10-11 mynstureiningar með 14 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 8-9-9-10-10-11 lykkjur jafnt yfir. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 152-171-171-190-190-209 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan A.2 hringinn (= 8-9-9-10-10-11 mynstureiningar með 19 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 208-234-234-260-260-286 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-12-12-14-14-14 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan með litnum sinnep til loka.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-2-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 216-240-236-264-264-292 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar: Fyrsta prjónamerkið er sett í eftir fyrstu 34-37-37-42-44-50 lykkjur (= ½ bakstykki), 2. prjónamerki er sett í eftir næstu 40-46-44-48-44-46 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett í eftir næstu 68-74-74-84-88-100 lykkjur (= framstykki) og 4. prjónamerki er sett í eftir næstu 40-46-44-48-44-46 lykkjur (= ermi). Nú eru 34-37-37-42-44-50 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á hálfu bakstykki.
Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 11-12-16-16-19-19 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin = 304-336-364-392-416-444 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan eins og áður án útaukninga fyrir laskalínu, en til að koma í veg fyrir að brjóta upp gataumferðina meðfram hverri laskalínu er prjónað A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki er staðsett mitt í A.3).
Þegar stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 45-49-53-58-63-69 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 62-70-76-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-106-116-126-138 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 62-70-76-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir þær 45-49-53-58-63-69 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 192-208-228-248-272-300 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjón. Þegar stykkið mælist 32 cm frá skiptingu er skipt yfir á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring með litnum sinnep. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið svona alls 9-12-15-15-16-17 sinnum í S: Í 8. hverri umferð, í M: Í 5. hverri umferð, í L: Í 4. hverri umferð, í XL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð, í XXL: Í 3. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í annarri og 3. hverri umferð = 50-52-54-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 26-24-23-21-19-18 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 4 umferðir garðaprjón í hring. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = litur sinnep
symbols = litur natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með litum sinnep, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
symbols = útaukningsumferð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með litum sinnep, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Türkiser Herzschlag

Sabine, Germany

Golden Heart

Ira Rott, Canada

Golden Heart by Drops

SimoneetGinette, France

Golden Heart

strikkebilla, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Sabine wrote:

Bonjour et merci pour ce sublime modèle. Avez-vous une astuce pour éviter le décalage à chaque nouveau rang de jacquard ?

06.04.2024 - 05:05

DROPS Design answered:

Bonjour Sabine, pas vraiment, mais vous pouvez essayer de serrer un peu plus les mailles au niveau du changement de tour pour essayer de les rapprocher le plus possible, en fonction des tours/motifs, on peut aussi utiliser la technique des rayures mais ça ne peut pas se faire sur tous les motifs. Bon tricot!

08.04.2024 - 07:48

country flag Tammy wrote:

I am wondering why the increase stitches in the third row of A1 are not spaced more evenly. Shouldn't they be knit after every 7th stitch?

21.12.2023 - 15:57

DROPS Design answered:

Dear Tammy, work the increases as shown in diagram, as you repeat A.1 they will be evenly spaced all the round. Happy knitting!

22.12.2023 - 08:04

country flag Diane wrote:

Je ne comprend pas le diagramme A3 on écrit continuez à tricoter sans augmentations du raglan pour atteindre 23cm Il va avoir une demarquation ? Je dois tricoter 2 cm de plus. A3

12.12.2022 - 15:46

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, les augmentations du raglan sont terminées, mais on veut ici continuer les rangs ajourés, sans augmenter, on va alors tricoter A.3 à chaque raglan (= 1 jeté, 1 diminution de chaque côté de chaque fil marqueur = vous continuez les jours du raglan, sans augmenter). Bon tricot!

12.12.2022 - 16:18

country flag Jade wrote:

Bonjour Je ne comprends pas pourquoi, en respectant les tours d’augmentations, qu’à la fin de A1 je me retrouve avec 137 m au lieu de 152 m . Merci pour votre éclairage. Corine

19.01.2022 - 08:10

DROPS Design answered:

Bonjour Jade, avant A.1 vous avez 112 mailles, vous tricotez 8 fois A.1 (= 14 mailles) en rond. Quand les augmentations de A.1 sont terminées, il y a 18 mailles x 8 = 144 m. Vous augmentez 8 mailles au dernier tour de A.1 = 144+8=152 mailles. Bon tricot!

19.01.2022 - 09:01

country flag Marie Lezel wrote:

Bonjour je souhaiterai tricoter ce modèle afin de faire un gilet en faisant un steek, pourriez vous me dire si c' est possible.Je vous remercie.Je vous souhaite une bonne année. Marie

31.12.2021 - 18:01

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, probablement, mais vous pouvez aussi retrouver les explications du gilet ici. Bon tricot!

03.01.2022 - 14:17

country flag Gail wrote:

If my bust size is 108cms what size do I make it as there is no sizes in the pattern .

14.04.2021 - 08:23

DROPS Design answered:

Dear Gai, you can find the measurements of the finished item on the schematic drawing on the bottom of the pattern. If you still cannot decide, we suggest that you take a sweater, that is similar to this and fits you and compare the measurements. Happy Knitting!

14.04.2021 - 11:07

country flag Sareith wrote:

Bonjour, J'aimerais faire des manches longues bouffantes. Pourriez vous me dire comment faire ?

19.02.2021 - 09:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sareith, vous pouvez vous inspirer d'un modèle de même tension, avec des manches bouffantes - découvrez ici quelques exemples. Bon tricot!

19.02.2021 - 09:58

country flag Inger Johansson wrote:

Strikker Golden Heart str M. Er ferdig med A.1, da har jeg 162 m, mens det står at jeg skal ha 171. Har tatt alle økninger slik jeg har forstått dem. Forstår ikke hva som er feil.

07.06.2020 - 17:30

DROPS Design answered:

Hej Inger. I texten står det "SAMTIDIG på siste omgang i A.1 økes det 8-9-9-10-10-11 masker jevnt fordelt." Kan det vara det du har missat? Mvh DROPS Design

09.06.2020 - 09:14

country flag Berit wrote:

Diagram A1 til Golden Heart er ikke symmetrisk på omgang 8. Hvorfor?

01.04.2020 - 10:13

DROPS Design answered:

Hej Berit, hvis du strikker den nye maske i bundfarven og så strikker selve stjerne mønstret som de to midterste i diagrammet, så får du en maske mere imellem mønstermaskerne over hver udtagning. God fornøjelse!

02.04.2020 - 10:39

country flag Michaela Furtner wrote:

Hallo Was heißt denn bei A1 zunahmerunde also wieviel Maschen sollen zugenommen werden finde darüber nichts

14.12.2019 - 20:45

DROPS Design answered:

Liebe Frau Furtner, es werden 4 Maschen in A.1 zugenommen Hier lesen Sie mehr über Diagramme - siehe Diagram für Ihre Grösse: 2 Maschen werden bei der 3. Reihe in A.1 zugenommen + 2 Masschen bei der 7. Reihe (= Größe S, M, L) oder bei der 9. Reihe (= Größe XL, XXL, XXXL). Bei der letzten Runde in allen Größen nehmen Sie noch 8-9-9-10-10-11 Maschen gleichmäßig verteilt zu. Viel Spaß beim stricken!

16.12.2019 - 08:10