Eeva Susi skrifaði:
Koko M. Alussa 76 s, ohjeen mukaan lisään ensin 2 s x 6 = 12 s, sittten lisään samalla lailla 2 s x 6 = 12 s ja lopuksi lisään 2 s. Yht 26 s, kerroksen lopussa pitäisi olla 76 + 26 s, yht 102 s mutta ohjeessa lukee että onkin 94 s eli ohjeen mukaan lisäyksiä on kaiken kaikkiaan 18 s. Missä tulkitsen väärin?
18.11.2017 - 16:48DROPS Design svaraði:
Hei, koossa M lisätään yhteensä 18 silmukkaa (2 + 6 + 2 + 6 + 2 s), eli työssä on lisäysten jälkeen 94 s.
03.01.2018 - 14:14Gill Adams skrifaði:
How do I find the actual measurements of this jacket? It isn't clear from the diagram whether the numbers displayed refer to metric or imperial scales not whether they are from the circumference or single side.
04.07.2017 - 14:38DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Adams, you will find a measurement chart at the very bottom of the pattern, this chart includes all measurements for each size in cm taken flat from side to side. Compare these measurements to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Read more about sizing here. Happy knitting!
04.07.2017 - 15:24
Sonja Buhr skrifaði:
Fijn simpel najaarsvestje, past overal bij
05.06.2017 - 21:52
Beloved Cardigan#belovedcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-29 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 (= 8 útauknar lykkjur í hverri útaukningsumferð). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kant með garðaprjóni í hálsi, síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 8 cm á milli hverra. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, frá miðju að framan, ofan frá og niður. PEYSA: Fitjið upp 76-76-80-86-92-96 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5,5 með Nepal. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Nú byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan), 13-13-14-16-17-18 lykkjur sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-2-2-4-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum, 28-28-30-32-36-38 lykkjur sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-2-4-6-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 6 sinum, 13-13-14-16-17-18 lykkjur sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-2-2-4-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan) = 94-94-98-106-118-130 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar slétt og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat). ATHUGIÐ PRJÓFESTUNA! Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan), 10-10-11-13-16-19 lykkjur sléttprjón (= vinstra framstykki), A.1 (= 9 lykkjur), prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1 (= 9 lykkjur), prjónið 20-20-22-26-32-38 lykkjur slétt (= bakstykki), A.1, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, prjónið 10-10-11-13-16-19 lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki) og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni (= kantur að framan). Haldið áfram með þetta mynstur, jafnframt er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 fyrir laskalínu – sjá LASKALÍNA að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 17-20-22-24-25-26 sinnum. Eftir allar útaukningar eru 230-254-274-298-318-338 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón (án útaukningar) þar til stykkið mælist 18-21-23-25-26-28 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 37-40-43-47-51-55 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 46-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermi), prjónið 64-70-76-84-92-100 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 46-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermi) og prjónið þær 37-40-43-47-51-55 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-162-178-194-210-230 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið nú A.1 yfir 9 miðju lykkjur í hvorri hlið (undir ermum). Setjið 1 prjónamerki hér, stykkið er nú mælt héðan. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 í hvorri hlið (= 4 lykkjur fleiri). Aukið út með 5 cm millibili alls 5 sinnum = 170-182-198-214-230-250 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-27-27-27-28-28 cm setjið fyrstu og síðustu 45-48-52-56-60-65 lykkjur á þráð, prjónið nú einungis yfir lykkjur á bakstykki (= 80-86-94-102-110-120 lykkjur). Haldið áfram í sléttprjóni með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 36-35-35-35-36-36 cm (klauf mælist 8 cm) prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af. Setjið lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur garðaprjón við miðju að framan og 3 lykkjur garðaprjón að hlið. Þegar stykkið mælist 36-35-35-35-36-36 cm (klauf mælist 8 cm) prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af. Endurtakið á vinstra framstykki. Öll peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið 46-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 52-58-64-68-70-74 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýju lykkjurnar – stykkið er nú mælt héðan! Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT eftir 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 4-3-2-2-2-1½ cm millibili alls 10-12-15-16-16-17 sinnum = 32-34-34-36-38-40 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-38-36-35-35-35 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 4-5-5-6-7-8 lykkjur jafnt yfir = 36-39-39-42-45-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og prjónið stroff, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið áfram með stroff í 7 cm, síðan er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 47-45-43-42-42-42 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #belovedcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.