DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 181-5
DROPS Design: Mynstur ne-260
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-700-750-850 g litur 0501, grár
250-300-300-350-350-400 g litur 8907, þoka

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff með perluprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

RENDUR:
* Prjóið 10 cm með litnum þoka, prjónið 10 cm með litnum grár *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið 10 cm með litnum þoka, prjónið síðan til loka með litnum grár.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 123-123-133-143-153-163 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnumgrár. Prjónið 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 5 lykkjur sléttprjón, 5 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 5 lykkjur sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 9 cm og endið eftir eina umferð frá röngu – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 11-5-9-11-13-15 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir ystu 4 lykkjur) = 112-118-124-132-140-148 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið með 4 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir í litinn þoka og prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og sléttprjón með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 30 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið (prjónamerki merkir klauf). Fitjið upp 1 kantlykkju í lok 2 næstu umferða = 114-120-126-134-142-150 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (prjónamerkin merkja handveg). Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Fellið nú af fyrir öxl, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, prjónið þannig:
ÖXL:
Fellið af í annarri hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 8-9-9-10-10-11 lykkjur 4 sinnum, fellið af 11-10-12-12-15-15 lykkjur sem eftir eru (= alls 43-46-48-52-53-57 lykkjur felldar af fyrir öxl í hvorri hlið).
HÁLSMÁL:
Fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi.

FRAMSTYKKI:
Framstykki er prjónað alveg eins og bakstykki, nema affelling fyrir hálsmáli byrjar áður en byrjað er á öxl, prjónið þannig:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-71-73 cm fellið af fyrir hálsmáli, JAFNFRAMT er fellt af fyrir öxl þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, prjónið þannig:
HÁLSMÁL:
Fellið af miðju 20-20-22-22-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum.
ÖXL:
Fellið af eins og á bakstykki.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 40-40-40-40-48-48 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með litnum grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið * 5-5-5-5-4-4 lykkjur perluprjón, 5-5-5-5-4-4 sléttar lykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt og fækkið 6-4-4-2-8-6 lykkjur jafnt yfir = 34-36-36-38-40-42 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8-8-6-8-5-6 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 9-9-11-11-12-13 sinnum = 52-54-58-60-64-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-39-38-37-35-34 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma frá prjónamerki við handveg og niður að prjónamerki fyrir klauf – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 70-80 lykkjur í kringum háls á stuttan hringprjón 4,5 með litnum grár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 70-70-70-80-80-80 lykkjur. Prjónið * 5 lykkjur slétt, 5 lykkjur perluprjón *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram þar til kantur í hálsi mælist 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Ali wrote:

I want to knit this jumper (largest size) using 2 strands of Kid silk. Will that be possible? And if so how do I calculate the number of balls I will need? I am planning to do it in one colour , not stripes.

28.11.2023 - 15:45

DROPS Design answered:

Dear Ali, sure, use the yarn converter to get the new amount of yarn using 2 strands Kid-Silk instead of 1 strand Nepal. Juste note that the texture will be different as yarn are different. Happy knitting!

28.11.2023 - 16:33

country flag Giovanna wrote:

Nello schema alla fine della descrizione del collo c’è scritto: “ Poi intrecciare 1 maglia sul ferro successivo dal collo. ” Mi potete spiegare cosa vuol dire?

03.12.2022 - 09:46

DROPS Design answered:

Buonasera Giovanna, deve intrecciare 1 maglia dal lato del collo. Buon lavoro!

03.12.2022 - 16:16

country flag Eilen wrote:

Har i intet måleskema om hvilken størrelse er best; bruger normalt xl, men strikker lidt løst?

23.02.2021 - 00:29

DROPS Design answered:

Hej Eilen, Jo nederst i opskriften finder du en måleskitse som viser målene i alle størrelser :)

23.02.2021 - 09:05

country flag Fiona wrote:

Can you explain the shoulder decreases? I’m afraid I can’t make sense of them!

25.03.2020 - 16:03

DROPS Design answered:

Dear Fiona, you will cast off at the beginning of the RS and WS rows starting from Shoulder side (= from armhole towards neck) 8 to 11 sts a total of 4 times (= 32 to 44 sts cast off on each side + the remaining 8 to 14 sts). Do not forget to shape neck at the same time, so that each shoulder will then be worked separately but as before, casting off at the beg of row from shoulder/armhole towards neck the 8 to 11 first stitches. Hope this will help, happy knitting!

25.03.2020 - 17:21

country flag Jacqueline wrote:

Guten Tag So gerne möchte ich dieses Pullover stricken. Ich trage Kleidergrösse 32. Ist dann die Weite nicht doch etwas zu viel, auch wenn ich gerne obersized trage? - Und welche leichte Ersatzqualtiät mit Baumwolle und/oder Viskose können Sie mir empfehlen? Danke für Ihre Antwort im voraus recht herzlich. MfG Jacqueline

14.07.2019 - 09:42

DROPS Design answered:

Liebe Jacqueline, leider können wir nicht jeder unserer Anleitungen nach jeder individuellen Anfrage anpassen, nehmen Sie bitte Kontakt mit Ihrem DROPS Laden auf - auch telefonisch oder per Mail, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!

15.07.2019 - 10:12

country flag Camilla wrote:

Hvor mange pakker garn skal man bruge? Og passer den fra str. S-xxxl?

08.02.2019 - 20:05

country flag Lena Gørges wrote:

Hej - jeg vil helst helt undgå slidserne, så hvordan gør jeg så? Altså så den er lukket hele vejen ned i siderne. Mvh Lena

05.01.2019 - 04:41

DROPS Design answered:

Hei Lena. Om du ikke ønsker splitten i sidene kan du legge til 1 kantmaske i rille i hver side fra starten av - i steden for å legge de til når arbeidet måler 30 cm. Etter vrangborden kan de 4 maskene med rillestrikk i hver side strikkes glattstrikk slik som resten av arbeidet. Det opp til deg om du vil beholde disse 4 rillemaskene i hver side når du strikker vrangborden, eller om du ønsker å justere dette slik at alle maskene strikkes i glattstrikk og perlestrikk. Hvordan du løser dette blir opp til deg. God fornøyelse

07.01.2019 - 08:44

country flag Mw. Steffens wrote:

Kleinste maat, diagonale schouder achterpand: 114 - (2 x 42) = 30. Dan de middelste 26 st. afkanten en nogmaals 1 x 1. Ik houd daarna toch echt 2 st. over. Hetzelfde geldt voor het voorpand, dus ik vermoed dat ik een denkfout maak. Kunt u mij verder helpen?

27.02.2018 - 14:03

DROPS Design answered:

Hallo Mw. Steffens, Inderdaad je hebt gelijk, er blijven 2 steken over. Waarschijnlijk zijn de kantsteken niet meegerekend. Ik zal het doorgeven aan designafdeling. In dit geval zou je de overgebleven 11 steken af kunnen kanten, zodat je verder kunt.

07.03.2018 - 20:30

country flag Maartje De Boer wrote:

Ik heb een vraag over het achterpand, na 30 cm moet ik 1 kantsteek opzetten aan het einde van de volgende 2 naalden, en hiermee 2 steken meerderen. Nou snap ik hoe ik van een bestaande steek een kantsteek moet maken, maar hoe maak ik er een kantsteek bij zodat ik meteen een steek meerder? Bij voorbaat dank!

05.01.2018 - 15:43

DROPS Design answered:

Hoi Maartje, Je meerdert niet aan het eind van de naald, maar je zet extra steken op. Dit kun je eenvoudig doen door a.h.w. lussen op te zetten aan het eind van de naald. In deze video is dat uitgelegd

12.01.2018 - 19:05

country flag Federica wrote:

Non capisco l'intreccio per le spalle e il collo, è possibile una spiegazione più dettagliata per principianti? Grazie

08.11.2017 - 11:58

DROPS Design answered:

Buongiorno Federica. P.es per la taglia S, intreccia all’inizio del ferro sul diritto del lavoro le prime 8 maglie per la spalla, poi intreccia le 26 m centrali per lo scollo e lavora fino alla fine del ferro. Lavora ora le spalle separatamente. Gira, e sul rovescio del lavoro, intreccia le prime 8 m, lavora le altre m della spalla, gira e sul diritto del lavoro intreccia 1 m per lo scollo e prosegue sulle maglie della spalla. Su questa spalla intreccia poi all’inizio del ferro sul rovescio del lavoro 8 m altre 3 volte e poi intreccia le 10 m rimaste. Analogamente per l’altra spalla, intrecciando le 8 m all’inizio del ferro sul diritto del lavoro. Buon lavoro!

08.11.2017 - 12:46