Sonja skrifaði:
Hej! Sitter här med min mamma som förtvivlat grubblar över A.2 och A.3 . Jag tycker inte heller att det är tydligt hur det går till med avmaskningen och att få rätt maskantal. Hon får alltid en maska för mycket eftersom det är så lätt att maska av två maskor och sedan sticka 4 räta efter man har lyft över andra maskan för avmaskningen - och då blir det ju en maska för mycket. Hade gärna sätt en tydligare beskrivning i diagrammet.
29.07.2017 - 19:49
Cecilel skrifaði:
The instructions on the back peice is not making sense to me. the first row is a purl (wrong side) the next is A.3 for 10 stitiches stockinette the 10 stitches A.2 (right side) The next row from right side decrease 1 stitch......in reality this is NOT the right side but the wrong side row according to the instructions so I am very confused.
05.03.2017 - 21:18DROPS Design svaraði:
Dear Cecilel, when working 1st row on back piece from WS, work A.3 from 2nd row in diagram (= K4, P2, K2, P2 (= 10 sts)), then A.2 from 2nd row in diagram (= P2, K2, P2, knit 2 sts in next st, K2 tog, 1 double YO, knit 2 sts in 1 st). Happy knitting!
06.03.2017 - 10:09
Anne N Granum skrifaði:
Hei. Jeg strikker Amandine strikket topp m hullmønster. Har kommet frem til der man deler til bak og fremstykke. Det står at man skal starte med A3 på andre pinne i mønstret .... fra venstre, ok, men da kommer de maskene man skal felle (kryssene i diagram) utenfor arbeidet. Kan jo ikke felle innenfor A3 eller A2 ??? Hjelp meg...
01.03.2017 - 14:37DROPS Design svaraði:
Hej Anna. Nej, du tager jo ud i anden pind (paa vrangen) ved at lave de ekstra masker, saa naar du kommer til fjerde pind (vrangen), saa starter du hver gentagelse af A.3 med at lukke 2 masker af og du har det samme antal m per gentagelse som i förste p.
01.03.2017 - 16:13
Rita skrifaði:
Das Model Amandine wird fälschlich beschrieben als von oben nach unten gestricktes Top....
25.01.2017 - 01:07DROPS Design svaraði:
Liebe Rita, Danke für den Nachricht, Korrektur wird bald gemacht. Viel Spaß beim stricken!
25.01.2017 - 09:19
Dagmar skrifaði:
Wunderschön!! Freue mich auf`s nacharbeiten!!!!
17.01.2017 - 17:11
Gesine skrifaði:
Ein wunderschönes klassisches Modell, das durch Passe- und Saumabschlussmuster no ch einen rmantischen Pfiff bekommt!
31.12.2016 - 12:45
Amandine#amandinetop |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri og gatakanti, prjónaður neðan frá og upp úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-12 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman. ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum innan við A.2/A.3 í hvorri hlið. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan A.3 þannig: Byrjið 1 lykkju á undan A.3: Prjónið síðustu lykkju í sléttprjóni og fyrstu lykkju í A.3 slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir A.2 þannig: Takið síðustu lykkju í A.2 óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. TOPPUR: Fitjið upp 198-214-230-250-274-302 lykkjur á hringprjóna 4 með Cotton Merino. Prjónið mynstur A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 1 í byrjun umferðar og 1 eftir 99-107-115-125-137-151 lykkjur (= hliðar). Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hlið (= 4 lykkjur færri) – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum með 5-5-5½-5½-6-6 cm millibili alls 7 sinnum = 170-186-202-222-246-274 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir 12-16-16-24-28-40 lykkjur í hvorri hlið (= 6-8-8-12-14-20 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki, þær lykkjur sem eftir eru halda áfram í sléttprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni í hlið er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 2-4-4-8-10-16 lykkjur, prjónið 81-85-93-95-103-105 lykkjur slétt, fellið af næstu 4-8-8-16-20-32 lykkjur, prjónið 81-85-93-95-103-105 lykkjur slétt og fellið af síðustu 2-4-4-8-10-16 lykkjur. Prjónið nú fram- og bakstykki til loka fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 81-85-93-95-103-105 lykkjur. Prjónið síðan þannig, fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu: A.3, byrjið á 2. umferð í mynstri (frá vinstri hlið í mynsturtexta) (= 10 lykkjur), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 10 lykkjur og endið með A.2, byrjið á 2. umferð í mynstri (frá vinstri hlið í mynsturtexta) (= 10 lykkjur). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á hvorri hlið, lykkjum er fækkað innan við A.2 og A.3 – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 3-5-6-7-8-9 sinnum = 75-75-81-81-87-87 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm (úrtöku er nú lokið) prjónið áfram frá réttu þannig: A.2, A.4 þar til 11 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju sléttprjón og A.3. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram frá réttu þannig: A.2, A.5 A (= 7 lykkjur), A.5 B yfir næstu 42-42-48-48-54-54 lykkjurnar, A.5 C (= 6 lykkjur), endið með A.3. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af miðju 31-31-35-35-39-39 lykkjur. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju frá hálsi = 21-21-22-22-23-23 lykkjur eftir á hvorri öxl. ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við háls við úrtöku eru prjónaðar í sléttprjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. FRAMSTYKKI: = 81-85-93-95-103-105 lykkjur. Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 52-54-56-57-59-61 cm = 75-75-81-81-87-87 lykkjur. Setjið nú miðju 25-25-29-29-33-33 lykkjur á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 21-21-22-22-23-23 lykkjur eftir á öxl – ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við háls þegar fellt er af eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Endurtakið á hinni öxlinni. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma, saumið kant í kant í ystu lykkjuna til að sleppa við þykkan saum. HÁLSMÁL: Prjónið upp 80 til 100 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur af þræði) á stutta hringprjóna 4. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið síðan af með sléttum lykkjum. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #amandinetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.