DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 176-11
DROPS Design: Mynstur ml-022
Garnflokkur D eða A + A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
300-300-350-400-400-450 g litur 06, púðurbleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 12 lykkjur og 14 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 7 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 175 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 31) = 5,6. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca 4. og 5. hver lykkja og 5. og 6. hver lykkja saman.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp fyrir handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 175-190-200-210-230-245 lykkjur á hringprjóna 7 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 4 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 6 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 31-34-36-34-38-41 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 144-156-164-176-192-204 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 8. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 73.-79.-83.-89.-97.-103. lykkju í umferð (= 71-77-81-87-95-101 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í á fram- og bakstykki). Næsta umferð er prjónuð þannig:
Stærð: S + XXL: Prjónið A.1 hringinn (= 6-8 mynstureiningar 24 lykkjur).
Stærð: M + L + XL + XXXL: Prjónið 3-5-8-3 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 72-72-72-96 lykkjur, A.2 (= 1 lykkja), 5-9-15-5 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 72-72-72-96 lykkjur, A.2 (= 1 lykkja), endið með 2-4-7-2 lykkjur sléttprjón.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 47-48-49-50-51-52 cm – passið uppá að næsta umferð sé odda umferð mynsturteikningu, fellið síðan af 11-11-11-13-13-13 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (lykkja með prjónamerki í + 5-5-5-6-6-6 lykkjur hvoru megin við hana). Fram- og bakstykki er síðan prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 61-67-71-75-83-89 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri við handveg eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 19-19-19-21-21-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 19-22-24-25-29-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – Mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki of stífur. Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRAMSTYKKI:
= 61-67-71-75-83-89 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka alveg eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Setjið nú miðju 17-17-17-19-19-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 19-22-24-25-29-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til eftir er 1 umferð þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins.

ERMI:
Fitjið upp 30-30-30-30-35-35 lykkjur á sokkaprjóna 7 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 4 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-3-1-1-4-4 lykkjur jafnt yfir = 27-27-29-29-31-31 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Næsta umferð er prjónuð þannig: 1-1-2-2-3-3 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 24 lykkjur), A.2 (= 1 lykkja), 1-1-2-2-3-3 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstur þannig: Þegar stykkið mælist 8-6-6-6-8-8 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3½-3-2½-2 cm millibili alls 9-10-10-11-12-13 sinnum = 45-47-49-51-55-57 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 43-41-41-40-38-36 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – passið uppá að næsta umferð sé jöfn umferð í mynstri. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka á hringprjón frá miðju undir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki eru prjónaðar 2 umferðir þar sem felldar eru af 5 lykkjur í byrjun hverrar umferðar. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 48-46-46-45-43-41 cm ofan frá og niður. Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkant þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón ofan á öxl. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (prjónamerki mitt undir ermi á að passa við handveg).

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 56 til 62 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stutta hringprjóna 7. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = frá réttu: 2 lykkjur brugðið saman
symbols = KÚLA: Prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju þar til komnar eru 4 lykkjur, snúið við og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir þessar 4 lykkjur, snúið við og prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Notið síðan vinstri prjón og lyftið annarri lykkjunni yfir á hægri prjón yfir fyrstu lykkjuna og af prjóni, lyftið þriðju lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna og síðan fjórðu lykkjuna yfir fyrstu lykkjuna (= 1 lykkja eftir).
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Patricia wrote:

‘work the stitches that do not fit the pattern in stocking stitch’ If there’s are 61 stitches and the pattern is 24 stitches, do you work 2x 24 stitches and the remains 13 stitches in stocking stitch

16.04.2023 - 19:03

DROPS Design answered:

Dear Patricia, you should continue pattern so that it is lined up from body, ie in first size you will work only the middle 4 repeats of A.1 over the 6 repeats worked on body - the first and last stitches on the row will be worked in stocking stitch. Happy knitting!

17.04.2023 - 09:58

country flag Clare Burkett wrote:

Thanks for the quick response! I've gone wrong somewhere so I'm going to rip back to row 25 and proceed from there!

29.04.2022 - 14:37

country flag Clare Burkett wrote:

Confused re pattern row 36. Row 35 an extra stitch is made then two stitches are purled together but in row 36 4 stitches are purled then 3 in plain but this doesn't match the layout as the last purl stitch overlies a plain stitch on row 35. Also there are 2 plain stitches on row 36 overlying the two purl stitches which were purled together and thus there is only one stitch in reality. Unsure of how to proceed.

28.04.2022 - 20:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Burkett, every yarn over in the diagram is compensated with a decrease, on row 35 work: K2, YO, K1, P2, P2 tog, K1, P4, K1, P4, K1, P2 tog, P2, K1, YO, K1 (= 24 sts). When working in the round, work row 36: K4, P3, K1, P4, K1, P4, K1, P3, K3 (=24 sts). Can this help? Happy knitting!

29.04.2022 - 08:22

country flag Unni Håkonsdatter Hansen wrote:

I bl a mønster linje 14 står det at det skal strikkes 2 vrange masker over 1 vr maske( sammenstikk) Hvordan mener dere dette skal løses?

24.08.2021 - 11:12

country flag Anne Laipio wrote:

Ohjeen neuletiheys ja silmukkamäärät eivät mielestäni vastaa annettuja mittoja, Esim. 12 silmukkaa on 10 cm. S-kokoon tulee 175s , jolloin ympärysmitta on 145cm. Ohjeen kuvassa S-koon leveys on 60cm eli ympärysmitta 120cm. Tällöin silmukkamäärä pitäisi olla mielestäni 144. Ohjeen mukaan tehtynä puserosta tulee liian iso. Tulkitsenko jotenkin väärin.

19.03.2021 - 11:40

DROPS Design answered:

Ohjeen neuletiheys perustuu sileään neuleeseen. Puserossa neulotaan kuitenkin pitsikuvoita ja nyppyjä, jolloin työstä tulee hieman kapeampi kuin jos neulottaisiin sileää neuletta,

23.03.2021 - 16:22

country flag Audrey wrote:

Bonjour, je ne comprends pas comment réaliser la fin des manches. Après avoir fini les augmentations, il faut juste travailler en aller-retour sur l’ensemble des mailles au lieu de travailler en rond? Ou juste les 24 mailles du point fantaisie?

01.10.2020 - 22:35

DROPS Design answered:

Bonjour Audrey, à la fin de la manche, vous tricotez en rangs (plus en rond), autrement dit, à la fin d'un tour impair, au lieu de tricoter le tour pair suivant sur l'endroit, tournez et tricotez toutes les mailles sur l'envers, et continuez maintenant ainsi en tricotant alternativement sur l'endroit et sur l'envers. Bon tricot!

02.10.2020 - 08:27

country flag Margaret Birks wrote:

Knitting Candied Almonds, and just starting to do the sleeves. I cannot knit with DPN, can I knit the sleeves in the round with a circular needle? Or can I knit with two needless UK style?

05.03.2020 - 15:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Birks, you can either work them in the round with a circular needle and magic loop technique or adapt the pattern to work them back and forth. Happy knitting!

05.03.2020 - 16:51

country flag Margaret Birks wrote:

Candied Almonds. I have now cast of the required stitches for the armholes. So I now have 2 seperate pieces of the garment on the round pins, the back and the front. With the back piece or the front piece how do I progress knitting in the round?

24.02.2020 - 14:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Birks, after you have cast off the stitches for the armholes you will continue back and front piece separately back and forth on needle, ie slip the stitches on front piece on a thread or a stitch holder and keep the stitches on back piece on needle and continue working back piece, starting from WS. Happy knitting!

24.02.2020 - 14:40

country flag Margaret Birks wrote:

On pattern for candied almonds it tells me to refer to diagram A1 and A2. I can only find diagram A1

31.01.2020 - 20:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs Birks, diagram A.2 is the diagram with 1 stitch and same nmber of rows on the left side of A.1. Happy knitting!

03.02.2020 - 09:28

country flag Margaret Birks wrote:

What chest size in cm or inches is Medium. To fit 34/36/38 inches?.OR 86/91/96 cm

30.01.2020 - 16:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Birks, compare a similar garment you have and like the shape to the measurements at the bottom of the page to find out the matching size - read more here. Happy knitting!

31.01.2020 - 07:02