Anna skrifaði:
BEADED SKY - do you have a video to watch and learn the A1 and A2 charts for the yoke
14.06.2025 - 03:18
Gunnvor Hundebo skrifaði:
Jeg har garn ønsker oppskriften.
27.05.2025 - 18:03
Gunnvor Hundebo skrifaði:
Nydelig genser. Har garn skulle så gjerne fått oppskriften på mail.
27.05.2025 - 18:00
Bodil Birk skrifaði:
Ingen kommentar
25.05.2025 - 13:32
Beaded Sky#beadedsky |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-25 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (= 2 lykkjur fleiri) og A.2 (= 1 lykkja fleiri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 106 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 26,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 26. og 27. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 106-110-114-120-124-130 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Paris. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna svo uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur) og prjónið þannig: Prjónið 4 umferðir sléttprjón, síðan eru prjónaðar 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 35-36-38-40-41-43 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 4-5-11-10-11-15 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 110-120-125-130-140-145 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: * Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 22-24-25-26-28-29 sinnum berustykkið hringinn = 154-168-175-182-196-203 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 3 lykkjur sléttprjón, A.1, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 22-24-25-26-28-29 sinnum berustykkið hringinn = 198-216-225-234-252-261 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 12-12-13-15-15-16 cm frá merki FINNDU ÞÍNA STÆRÐ: Prjónið síðan næstu umferð frá réttu eftir þinni stærð að neðan. STÆRÐ S-M-L: * Prjónið 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 22-24-25 sinnum berustykkið hringinn = 220-240-250 lykkjur. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: * Prjónið 4 lykkjur sléttprjón, A.1, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 26-28-29 sinnum berustykkið hringinn = 286-308-319 lykkjur. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 16-17-18-20-20-22 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 4-4-4-5-5-5 lykkjur sléttprjón, A.2, 4-4-4-4-4-4 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 22-24-25-26-28-29 sinnum berustykkið hringinn = 242-264-275-312-336-348 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 18-19-20-22-22-24 cm frá merki, aukið út 2-0-9-0-0-12 lykkjur jafnt yfir = 244-264-284-312-336-360 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar berustykkið mælist 21-22-23-24-26-27 cm frá merki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 46-48-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 76-84-88-96-106-116 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-48-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 76-84-88-96-106-116 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-196-212-236-256 lykkjur Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-44-46-47-49-50 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-32-36-36-40-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 196-216-232-248-276-300 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust. Peysan mælist 47-48-50-52-54-55 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-48-54-60-62-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-56-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 11-12-11-10-8-8 cm frá skiptingunni, Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 4-6-6-8-12-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 58-62-70-78-86-90 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 14-15-14-14-12-12 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beadedsky eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.