Beaded Sky Cardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki, rúllukanti og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-26 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8-8½ cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (= 2 lykkjur fleiri) og A.2 (= 1 lykkja fleiri). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 121 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 26,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 27. hverja lykkju (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 121-125-129-135-139-145 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Paris. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna svo uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur) og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 5 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt), þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 6 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 7 (= ranga): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Setjið eitt merki að innanverðu við kant að framan í annarri hlið á stykki (= fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 107-111-115-121-125-131 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 4-5-11-10-11-15 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan = 125-130-140-145-150-160 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón og kant að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 2 lykkjur sléttprjón, A.1, 1 lykkja sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 22-23-25-26-27-29 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 169-176-190-197-204-218 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan þar til berustykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 3 lykkjur sléttprjón, A.1, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 22-23-25-26-27-29 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 213-222-240-249-258-276 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan þar til berustykkið mælist 12-12-13-15-15-16 cm frá merki FINNDU ÞÍNA STÆRÐ: Prjónið síðan næstu umferð frá réttu eftir þinni stærð að neðan. STÆRÐ S-M-L: Prjónið kant að framan eins og áður, * 4 lykkjur sléttprjón, A.2, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 22-23-25 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 235-245-265 lykkjur. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Prjónið kant að framan eins og áður, * 4 lykkjur sléttprjón, A.1, 3 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 26-27-29 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 301-312-334 lykkjur. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan þar til berustykkið mælist 16-17-18-20-20-22 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, * 4-4-4-5-5-5 lykkjur sléttprjón, A.2, 4-4-4-4-4-4 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 22-23-25-26-27-29 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 257-268-290-327-339-363 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 18-19-20-22-22-24 cm frá merki, aukið út 2-7-9-0-8-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 259-275-299-327-347-371 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan eins og áður. Þegar berustykkið mælist 21-22-23-24-26-27 cm frá merki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 45-48-51-55-59-64 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-48-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 77-83-89-97-105-115 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 46-48-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 45-48-51-55-59-64 lykkjur sléttprjón (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 183-195-211-227-247-267 lykkjur Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 43-44-46-47-49-50 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 30-30-34-38-42-42 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 213-225-245-265-289-309 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 47-48-50-52-54-55 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-48-54-60-62-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-56-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 11-12-11-10-8-8 cm frá skiptingunni, Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 4-6-6-8-12-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 58-62-70-78-86-90 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 14-15-14-14-12-12 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. Ertu búin að klára þetta mynstur? |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.