DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 5 frábærum garntegundum!
Product image DROPS Melody yarn
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Misty Move

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 258-11

#mistymovesweater

DROPS Design: Mynstur ml-123
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-200-250-250-300-300 gr litur 24, marsipan
Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK (tilheyrir garnflokki C)
200-200-225-250-275-300 gr litur 40, marsipan

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 5,5 með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpca Silk = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð.
Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl.
Nú er bakstykkið látið bíða og byrjun á framstykki er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum.
Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónað og aukið út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni.
Síðan eru lykkjur fitjaðar upp meðfram hliðum á framstykkjum og lykkjur frá bakstykki eru settar til baka á prjóninn. Prjónað er fram og til baka yfir allar lykkjur þar til útaukning fyrir hálsmáli er lokið. Fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan og síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur. Lykkjur eru fyrst auknar út á hvorri ermi, síðan eru lykkjur auknar út bæði á ermum og á framstykki/bakstykki.
Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 28-30-30-32-34-34 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið.
EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 7-7-7-7-7-8 sinnum (= 14-14-14-14-14-16 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 56-58-58-60-62-66 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða hjálparprjón.

HÆGRI ÖXL:
Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttun upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði / hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl.
Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 14-14-14-14-14-16 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 16-16-16-16-16-18 lykkjur.
Í lok síðustu umferðar frá röngu, prjónið síðustu 2 lykkur brugðið saman = 15-15-15-15-15-17 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykki prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 14-14-14-14-14-16 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 16-16-16-16-16-18 lykkjur.
Í byrjun síðustu umferðar frá röngu, prjónið fyrstu 2 lykkjur snúnar brugðið saman = 15-15-15-15-15-17 lykkjur.

Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermakúpu, prjónið eins og útskýrt er að neðan.

UMFERÐ 1 (rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt yfir þær lykkjur sem eftir eru á vinstra framstykki, setjið 1 merki hér, prjónið upp 16 lykkjur meðfram hlið frá vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 16 lykkjur meðfram hlið frá hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið lykkjurnar til baka frá hægra framstykki á vinstri prjóninn, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, prjónið síðustu 3 lykkjur = 118-120-120-122-124-132 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 16 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 16 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt = 124-126-126-128-130-138 lykkjur. Útaukning við miðju að framan er nú lokið.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 18 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 18 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt út umferðina, síðan eru fitjaðar upp 20-22-22-24-26-26 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar = 148-152-152-156-160-168 lykkjur í umferð.

Prjónið síðan stykkið í hring.
UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki er sá sami.
Prjónið þessar 2 umferðir alls 4-4-3-3-1-1 sinnum (aukið hefur verið út alls 6-6-5-5-3-3 sinnum á ermum = 28-28-26-26-22-22 lykkjur á hvorri ermi og 54-56-56-58-60-64 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 164-168-164-168-164-172 lykkjur.

Næsta umferð er prjónuð þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið slétt yfir 28-28-26-26-22-22 lykkjur á ermi, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið 50-52-52-54-56-60 lykkjur slétt frá bakstykki, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið slétt yfir 28-28-26-26-22-22 lykkjur á ermi, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt út umferðina (= 8 lykkjur fleiri, hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma).
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.
Endurtakið þessar 2 umferðir þar til aukið hefur verið út 7-8-11-12-15-16 sinnum bæði á fram- og bakstykki og ermum. Aukið hefur verið út alls 13-14-16-17-18-19 sinnum á ermum = 220-232-252-264-284-300 lykkjur.

Stykkið mælist nú ca 13-14-16-17-18-19 cm mælt fyrir miðju á ermi frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, mælist stykkið ca 18-19-21-22-23-24 cm yst meðfram handveg.
Prjónið fram að fyrsta merki (= skipting á milli framstykkis og vinstri öxl).
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 42-44-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 68-72-78-82-90-96 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 42-44-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 68-72-78-82-90-96 lykkjur slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148-160-176-188-208-224 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og rendur hringinn þar til stykkið mælist 25-26-26-26-26-28 cm, mælt frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp undir ermi.
Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 16-16-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 164-176-196-208-232-248 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4 cm er fellt af.
Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm.

ERMAR:
Setjið 42-44-48-50-52-54 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 48-52-58-62-66-70 lykkjur.
Prjónið sléttprjón umferðina hringinn þar til ermin mælist 12-11-10-9-8-6 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-4-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 =52-56-64-68-72-76 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4 cm fellið af. Ermin mælist ca 28-28-29-29-30-29 cm frá öxl.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 80 til 92 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.02.2025
Uppskrift hefur verið uppfærð. Leiðrétting í texta, hægri og vinstri öxl.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 258-11

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistymovesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Valérie skrifaði:

Bonjour dans les instructions, il est indiqué "DEVANT GAUCHE" : pour éviter toute confusion, ne faudrait il pas appeler ce paragraphe "EPAULE GAUCHE", comme le précédent paragraphe? Car les instructions sont identiques pour ces 2 étapes. Pouvez vous me confirmer qu'il s'agit de la même partie à tricoter? l'un étant à gauche et l'autre à droite? Merci

07.04.2025 - 16:26

DROPS Design svaraði:

Bonjour Valérie, c'est exact, le devant gauche correspond à l'épaule gauche, la modification a été faite pour clarifier. Bon tricot!

08.04.2025 - 09:13

country flag Jette skrifaði:

Hvor finder jeg en størrelsesguide

27.02.2025 - 12:29

DROPS Design svaraði:

Hej Jette, ja du finder måleskitsen nederst i opskriften : Hvilken størrelse skal jeg vælge

06.03.2025 - 11:08

country flag Hilde Segers skrifaði:

Hoeveel bollen wol van DROPS Brushed Alpaca Silk breien met 1 draad heb je nodig voor dit patroon?

22.02.2025 - 19:10

country flag Anneli Ahnstedt Stengård skrifaði:

När får ni hem garnet DROPS Brushed Alpaca Silk.?

20.02.2025 - 07:57

DROPS Design svaraði:

Hej Anneli. Brushed Alpaca Silk nr 40 som används i detta mönster finns på lager hos oss, så be din återförsäljare ta in det om de inte har det på lager. Mvh DROPS Design

20.02.2025 - 08:35

country flag Aline skrifaði:

River flows

17.01.2025 - 16:22

country flag Alexandra skrifaði:

Fields of Barley

16.01.2025 - 16:11