Mary skrifaði:
Buongiorno, Dividendo lo sprone non mi torna il numero delle maglie: ad esempio taglia M, 20 maglie per le maniche + 26 per il davanti ed il dietro sono in totale 92 ma io ho avviato 96 maglie. Grazie della risposta che vorrete darmi
21.04.2025 - 08:05DROPS Design svaraði:
Buongiormo Mary, le 4 maglie mancanti sono peobabilmente le 4 maglie IN CUI inserire il segnapunti. Buon lavoro!
23.04.2025 - 08:28
Luisa skrifaði:
Buongiorno, le vostre creazioni sono molto molto belle ma vengono lavorate con ferri circolari o a doppia punta, non riesco a trovare con ferri lineari. Grazie per avere letto la mia domanda
22.03.2025 - 14:58DROPS Design svaraði:
Buongiorno Luisa, tantissimi modelli DROPS sono lavorati in piano per cui può usare anche i ferri lineari, e ci sono anche tanti tutorials per imparare ad usare i ferri circolari. Buon lavoro!
22.03.2025 - 16:45
Blossom Whisper#blossomwhispersweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með rúllukanti, laskalínu og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-15 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-96-96-104-104-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir. Prjónið 4 umferðir slétt (= rúllukantur). Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 33-35-35-37-37-39 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 22-26-26-30-30-34 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 22-26-26-30-30-34 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. Munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er undir laskalínu. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-10-10-11-7-6 sinnum (= 8-20-20-22-14-12 prjónaðar umferðir) = 120-176-176-192-160-160 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja lykkju með merki (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 11-9-10-11-15-17 sinnum (= 44-36-40-44-60-68 umferðir prjónaðar = 11-9-10-11-15-17 sinnum útaukning á ermum, 22-18-20-22-30-34 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 252-284-296-324-340-364 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út alls 26-28-30-33-37-40 sinnum á framstykki/bakstykki og 15-19-20-22-22-23 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 22-23-25-28-31-34 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Haldið eftir fyrstu lykkju á prjóni (þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 50-58-60-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 76-84-88-98-106-116 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 50-58-60-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 75-83-87-97-105-115 lykkjur sléttprjón (= alls 76-84-88-98-106-116 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-188-200-220-240-264 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 190-206-220-242-264-290 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af. Peysan mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-58-60-64-64-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 60-68-72-76-78-82 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til ermin mælist 15-13-12-9-8-7 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 66-74-78-84-86-90 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af. Ermin mælist 17-15-14-11-10-9 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blossomwhispersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.