Annemieke skrifaði:
Bij MEERDEREN VOOR ARMSGATEN staat: eindig met een naald aan de goede kant. Wordt er dan bedoeld dat je de naald aan de goede kant breit of moet je juist stoppen voor je de naald aan de goede kant gaat breien?
14.11.2024 - 16:05DROPS Design svaraði:
Dag Annemieke,
Je breit de laatste naald aan de goede kant.
16.11.2024 - 18:05
Sonja skrifaði:
Hej! Jag hittar mönstret men det finns ingen information om hur många maskor man skall lägga upp eller hur den ska stickas. Kan ni bifoga det? Tack!
18.09.2024 - 08:25DROPS Design svaraði:
Hej Sonja. Nu ska hela mönstret finnas tillgängligt här även på svenska. Mvh DROPS Design
25.09.2024 - 15:01
Sonja skrifaði:
Hej! Jag skulle gärna sticka denna kofta men var finns beskrivningen?
11.09.2024 - 09:03DROPS Design svaraði:
Hej, du hittar beskrivningen genom att klikka på länken Höst & Vinter 2024/25 under GRATIS MÖNSTER.
11.09.2024 - 18:52
Elisabeth Bäcklin skrifaði:
Det finns ingen beskrivning på den här modellen.
30.08.2024 - 23:18
Changing Seasons Cardigan#changingseasonscardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Andes. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, v-hálsmáli, i-cord og vösum. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-42 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1 yfir næstu 5 lykkjur. RANGA: Prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju í slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1 yfir næstu 5 lykkjur. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli, fellið síðan af fyrir 3-3-3-3-4-4 næstu hnappagötum með ca 10-10½-11-11-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og perluprjóns kants. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykki niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkin eru prjónuð. Á framstykkjum er fyrst prjónaður list fyrir kant að framan sem er saumaður niður meðfram hnakka við frágang, síðan eru framstykkin prjónuð með því að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki. Prjónað er niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Endurtakið við hina öxlina. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Listar fyrir kanta að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman, saumur = miðja að aftan, saumið listana við uppfitjunarkantinn á bakstykki. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 18-18-20-20-22-22 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Andes. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-9-9-10-10-11 sinnum (= 18-18-18-20-20-22 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 54-54-56-60-62-66 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan í sléttprjóni þar til stykkið mælist 10-10-10-11-9-9 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-3-4-4-6-6 sinnum (= 4-6-8-8-12-12 prjónaðar umferðir) = 58-60-64-68-74-78 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-17 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónaður vinstri listi í kanti að framan, síðan er vinstra framstykki prjónað meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. VINSTRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Andes. Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 7½-7½-8-8-9-9 cm, endið með umferð frá röngu, prjónið síðan áfram vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar á þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrst 7 lykkjur frá lista í kanti að framan, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónið upp 18-18-18-20-20-22 lykkjur frá bakstykki) = 25-25-25-27-27-29 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki er gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétta lykkjur út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 10-11-10-11-10-11 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út lykkjum fyrir v-hálsmáli, jafnframt því sem einnig á að auka út í hlið við handveg. Útaukning í hlið byrja áður en útaukning fyrir V-hálsmáli er lokið, lesið því báða næstu kafla áður en prjónað er áfram, til að fá yfirlit yfir þegar rendur og útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-6-6-6 sinnum (= 10-10-12-12-12-12 prjónaðar umferðir). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum (= 16-16-16-16-20-20 prjónaðar umferðir). Nú hefur verið aukið út alls 9-9-10-10-11-11 sinnum fyrir v-hálsmáli. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og kantlykkjur að framan. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 22-22-22-23-21-23 cm, aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-3-4-4-6-6 sinnum (= 4-6-8-8-12-12 prjónaðar umferðir). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-31 cm, mælt frá uppfitjunarkanti efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er listi í kanti að framan prjónaðar, síðan er hægra framstykki prjónað meðfram öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. HÆGRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Andes. Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til listi í kanti að framan mælist 7½-7½-8-8-9-9 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á hjálparprjón, fyrst er prjónað áfram yfir lista í kanti að framan þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn við hálsmál þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónið upp 18-18-18-20-20-22 lykkjur frá bakstykki), prjónið síðan 7 lykkjur frá lista í kanti að framan inn í umferð = 25-25-25-27-27-29 lykkjur í umferð. Öll mál á lengdina á framstykki er gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 10-11-10-11-10-11 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út lykkjum fyrir v-hálsmáli, jafnframt því sem einnig á að auka út í hlið við handveg, lesið því báða næstu kafla áður en prjónað er áfram, til að fá yfirlit yfir þegar rendur og útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri – lesið ÚTAUKNING-1, prjónið 1 lykkjur slétt, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-6-6-6 sinnum (= 10-10-12-12-12-12 prjónaðar umferðir). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum (= 16-16-16-16-20-20 prjónaðar umferðir). Nú hefur verið aukið út alls 9-9-10-10-11-11 sinnum fyrir v-hálsmáli. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjum að framan. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 22-22-22-23-21-23 cm, er aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur, aukið út um 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-3-4-4-6-6 sinnum (= 4-6-8-8-12-12 prjónaðar umferðir). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-31 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með eina umferð frá réttu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – byrjið á lykkjum frá hægra framstykki og prjónið umferðina þannig: Prjónið lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 2-4-4-6-6-8 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 58-60-64-68-74-78 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 2-4-4-6-6-8 nýjar lykkjur (= í hlið mitt undir ermi), prjónið lykkjur frá vinstra framstykki. Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og kantlykkjur að framan eins og áður og haldið áfram með útaukningu fyrir v-hálsmáli. Þegar útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 134-142-150-162-174-186 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 15-16-17-18-19-19 cm frá handveg – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Nú á að gera op fyrir vasa, það er gert þannig: UMFERÐ 1 (= rétta). Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 10-10-10-11-12-13 lykkjur slétt, setjið næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur á þráð fyrir vasa, fitjið upp 17-17-19-19-21-21 nýjar lykkjur í umferð, prjónið 66-74-78-88-94-104 lykkjur slétt, setjið næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur á þráð fyrir vasa, fitjið upp 17-17-19-19-21-21 nýjar lykkjur í umferð, prjónið 10-10-10-11-12-13 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan eins og áður = 134-142-150-162-174-186 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 10-10-10-11-12-13 lykkjur brugðið, prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 yfir næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur, 66-74-78-88-94-104 lykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur, 10-10-10-11-12-13 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 10-10-10-11-12-13 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur, 66-74-78-88-94-104 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur, 10-10-10-11-12-13 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 10-10-10-11-12-13 lykkjur brugðið, A.1 yfir næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur, 66-74-78-88-94-104 lykkjur brugðið, A.1 yfir næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur, 10-10-10-11-12-13 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Eftir umferð 4 er síðan prjónað í sléttprjóni með kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 34-35-36-36-37-37 cm frá handveg og næsta umferð er prjónuð frá röngu, er hægt að láta lykkjurnar bíða og prjóna vasa eins og útskýrt er að neðan. VASAR: Setjið 17-17-19-19-21-21 lykkjur af þræði á prjón 8 og prjónið sléttprjón fram og til baka í 19-19-19-18-18-18 cm, þ.e.a.s. þar til vasinn nær alveg niður að lykkjum frá fram- og bakstykki þ.e.a.s. þegar vasinn er jafn langur og fram- og bakstykki sem hefur verið lagt til hliðar, setjið síðan lykkjur frá vasa á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið báða vasana á sama hátt. Nú á að prjóna lykkjur frá vösum saman með lykkjum frá fram- og bakstykki, þetta er gert frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 10-10-10-11-12-13 lykkjur slétt, prjónið næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur frá fram- og bakstykki saman með 17-17-19-19-21-21 lykkjum frá vasa (leggið lykkjurnar þannig að 1 lykkja frá vasa er prjónuð saman með 1 lykkju frá fram- og bakstykki þar til allar lykkjur frá vasa hafa verið prjónaðar saman með samsvarandi lykkjum frá fram- og bakstykki), prjónið 66-74-78-88-94-104 lykkjur slétt, prjónið saman næstu 17-17-19-19-21-21 lykkjur frá fram- og bakstykki með 17-17-19-19-21-21 lykkjum frá vasa, prjónið 10-10-10-11-12-13 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan eins og áður = 134-142-150-162-174-186 lykkjur. Nú er prjónaður kantur neðst á fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. KANTUR: Í næstu umferð frá röngu er prjónaður kantur í MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar kanturinn mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Framstykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, framstykkið er ca 3 cm lengra en loka mál þar sem kantur þar sem lykkjur voru prjónaðar upp er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niðri á bakstykki, peysan mælist 62-64-66-68-70-72 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við á hringprjón 8. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 6-6-6-6-6-7 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 8 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið 40-46-48-52-54-60 lykkjur – stillið af þannig að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4-5-4-5-4-4 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4-5-4-5-4-4 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-3-3-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-3-3-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 8-10-12-12-14-14 sinnum (= 4-5-6-6-7-7 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, prjóna síðan frá réttu að byrjun á umferð (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1 cm mælt mitt undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 2-2-2-3-3-5 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 8-6-6-4½-4-3 cm alls 2-5-5-6-6-7 sinnum = 32-32-34-34-36-36 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-46-46-44-44-43 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og prjónið kant í A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar kanturinn mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Ermin mælist ca 51-52-52-51-51-50 cm frá miðju ofan á öxl. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. Listi í kanti að framan frá hvoru framstykki er saumað saman – saumur = mitt að aftan, saumið síðan listann við lykkjur meðfram hálsmáli. Saumið hliðarsauma á vösum frá röngu á stykki – passið uppá að saumurinn sé ekki stífur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #changingseasonscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.