Í þessu DROPS myndbandi gefum við ykkur stutta yfirsýn yfir hvernig flík með berustykkið með evrópskum öxlum mun sitja á líkamanum við mátun og hvar útaukningar-/úrtökulínur eru staðsettar.
STUTT YFIRLIT MEÐ VERKLÝSINGU:
Verkið er prjónað ofan frá og niður án þess að þörf sé á að sauma það saman í lokin.
BAKSTYKKI:
Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka á hálsmáli. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við JAFNFRAMT því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Síðan er prjónað áfram niður að handvegi. Bakstykkið er látið bíða og framstykkið prjónað.
FRAMSTYKKI:
Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út fyrir hálsmáli. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið eru stykkin sett saman og eftir það er framstykkið prjónað niður að handvegi.
BERUSTYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring.
ERMAR:
Lykkjur eru oftast prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við, en það er einnig hægt að prjóna ermarnar neðan frá og upp og sauma við fram- og bakstykki í lokin.
HÁLSMÁL:
Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli.
Mynstur þar sem þessi aðferð er notuð
Skrifaðu athugasemdir eða spurningar fyrir þetta myndband
Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.