Mauricette Mouton skrifaði:
Vous dites 29 augmentations mais il y a aussi 8 augmentations double.
15.01.2025 - 18:13
Mauricette Mouton skrifaði:
Bonjour j'arrive au moment de la séparation du corps et des manches, je fais la taille M et mes manches font 80 mailles et non pas 72 comme indiqué dans les explications ? Est-ce normal ? Merci
15.01.2025 - 15:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mouton, vous devez augmenter 29 fois tous les 2 rangs pour les manches, vous devez ainsi avoir 72 mailles en taille M: 29 augmentations, 14 m de la manche réparties au début avec 4 m de A.4, 6 m de A.1 et A.4 de A.5) et 29 augmentations soit 29+14+29=72 mailles. Bon tricot!
15.01.2025 - 16:19
Solange Cazorla skrifaði:
Bonjour puis je tricoter ce modèle avec des aiguilles droites je parle des manches mer
13.01.2025 - 19:16
Mauricette Mouton skrifaði:
Bonjour je suis arrivée au rang 5 du diagramme A3b et je suis perdue je ne sais pas à quel moment je mets A. 3a. Si quelqu'un peut m'aider. Merci d'avance.
12.01.2025 - 18:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mouton, lorsque vous avez terminé A.3a en hauteur, tricotez A.3x sur les premières mailles de A.3a et tricotez A.3b sur les mailles restantes = autrement dit, vous continuez les torsades exactement comme avant (A.3x) et tricotez maintenant A.3b sur les mailles restantes = vous continuez à augmenter à la fin de A.3b tous les rangs sur l'endroit. Vous ne tricotez maintenant plus A.3a. Bon tricot!
13.01.2025 - 10:07
Micheline Dax skrifaði:
Coucou, je ne comprends pas le premier rang de l'empiecement. Où exactement dois-je augmenter les 6 mailles de A.2 ? (19+6 mailles) A2 à déjà 25 mailles. Merci pour votre aide
09.01.2025 - 18:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dax, vous devez augmenter 6 mailles dans les 19 mailles suivantes, ainsi, vous avez 25 mailles pour tricoter A.2; ces augmentations viennent compenser en largeur les torsades du diagramme. Bon tricot!
10.01.2025 - 08:12
Nicole BURAC skrifaði:
Bonjour, Merci à vous ça y es c bon pour mes mailles Bonne journée
08.01.2025 - 14:29
Laëtitia skrifaði:
Bonjour, Pouvez-vous me dire si les A3 et A7 se démarrent en haut ou en bas. Il n'y a pas de flèche 😊 Merci !!
08.01.2025 - 08:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Laëtitia, tous les diagramme se lisent de bas en haut, soit dès le 1er rang, soit à partir de la flèche indiquée pour la taille tricotée. (Sur l'envers, lisez les diagrammes de gauche à droite). Bon tricot!
08.01.2025 - 15:57
Nicole BURAC skrifaði:
Bonjour, Je suis au niveau du repli du col mais je ne trouve pas 129 mailles je l ai refait 2 fois impossible et mon nombre de mailles correspond pour le col. Pourriez vous m aidez svp
08.01.2025 - 01:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Burac, avez-vous pris en compte le fait que A.1 se tricote sur 6 mailles mais qu'au 1er, vous faites 1 jeté dans chaque A.1 et que vous avez du coup 7 mailles pour chaque A1? Quand on compte les mailles, on compte toujours 6 mailles pour A.1. Vous devriez alors avoir le compte ainsi: 1 m lis, 25 m côtes 1/1, 6 m A.1, 51 m côtes, 6 m A.1, 25 m côtes 1/1 et 1 m lis = 115 m + 7 m montées à la fin des 2 rangs indiqués=129 mailles. Bon tricot!
08.01.2025 - 07:33
Grundig Laëtitia skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas comment tricoter un jeté torse sur un rang envers. Ça fait un trou 😊
07.01.2025 - 15:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Grundig, veillez à ce que votre jeté ne soit pas trop lâche, dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter 1 jeté à l'envers/torse à l'envers. Bon tricot!
07.01.2025 - 17:14
Sylvie Augendre skrifaði:
Bonjour je me permet de vous contacter car je ne comprends pas comment placer mes mailles pour chaque diagramme je n'arrive donc pas à commencer mon ouvrage j'aimerais si c'est possible avoir des explications plus concrètes merci pour votre aide je fais la taille S
06.01.2025 - 15:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Augendre, en taille S, tricotez le 1er rang ainsi: 8 m bordure devant, A.2 sur 19+6 augm. = les 25 m du diagramme, A.3a = 1 maille, 1 augm (raglan) (=devant = 8+19+1=28 m + les augm.) et 1 m end (raglan), A.4 (4 m+ 1jeté), A.1 = 6 m et A.5 (4 m+ 1 jeté) (= manche, 14 m + les augm), 1 m end (raglan), 1 augm, A.4 (4 m + 1 jeté), 33 m de A.6 (= 8 fois les 4 m du diagramme + la 1ère maille), 1 augm (raglan) 1 m end (= dos, 4+33=37 m + 2 m raglan), A.4 (4 m+ 1jeté), A.1 = 6 m et A.5 (4 m+ 1 jeté) (= manche, 14 m + les augm), 1 m end (raglan), A.7a (1 m), A.8 (=19 m + 6 augm = 25 m du diagramme), 8 m de bordure (devant, 28 m + 1 m raglan). Bon tricot!
07.01.2025 - 10:20
Winter Rain Cardigan#winterraincardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-4 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN: Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Lykkjufjöldinn í A.1, A.2, A.3x, A.7x og A.8 er breytilegur, en er alltaf talinn án uppsláttar sem gerir gat í kaðli. Finndu þína stærð og byrjaðu á örinni sem tilgreind er. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-9½-8½-8½-9 cm milli hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-115-123-127-135-139 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Karisma. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir fyrstu 25-25-27-27-31-31 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 47-51-55-59-59-63 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 25-25-27-27-31-31 lykkjur, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 3½-3½-3½-4-4-4 cm (= ca hæð á kanti í hálsmáli þegar hann er brotinn saman tvöfaldur). Í lok næstu 2 umferða eru fitjaðar upp 7 lykkjur fyrir kant að framan = 125-129-137-141-149-153 lykkjur í umferð, kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist 7-7-7-8-8-8 cm – stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1. Setjið 1 merki að innanverðu í kanti að framan í annarri hlið á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í 1 lykkju og þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 28-28-28-28-32-32 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 14-14-18-18-18-18 lykkjur – A.1 situr í miðju á þessum lykkjum (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 37-41-41-45-45-49 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 14-14-18-18-18-18 lykkjur – A.1 situr í miðju á þessum lykkjum (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju. Það eru 28-28-28-28-32-32 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta merki (= hægra framstykki). Prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, með kant að framan eins og áður, fram og til baka og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalykkjur – lesið útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: FRAMSTYKKI: Prjónið kant að framan eins og áður (= 8 lykkjur kantur að framan), prjónið A.2 yfir næstu 19 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir þær, prjónið A.3a yfir næstu 1-1-1-1-5-5 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-0-1-1 lykkjur yfir þær (= 34-34-34-34-39-39 lykkjur fyrir framstykki – uppslátturinn er ekki talinn með), prjónið laskalykkju slétt. ERMI: Prjónið A.4, prjónið A.6 yfir næstu 0-0-2-2-2-2 lykkjur, prjónið A.1, prjónið A.5 – byrjið við tilgreinda ör (= 14-14-18-18-18-18 lykkjur fyrir ermi – uppslátturinn er ekki talinn með). BAKSTYKKI: Prjónið laskalykkju slétt, prjónið A.4, prjónið A.6 yfir næstu 33-37-37-41-41-45 lykkjur (mynstrið gengur ekki jafnt upp með 4 lykkjum, en bakstykkið kemur til með að verða samhverft) (= 37-41-41-45-45-49 lykkjur fyrir bakstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið laskalykkju slétt. ERMI: Prjónið A.4, prjónið A.6 yfir næstu 0-0-2-2-2-2 lykkjur, prjónið A.1, prjónið A.5 – byrjið við tilgreinda ör (= 14-14-18-18-18-18 lykkjur fyrir ermi – uppslátturinn er ekki talinn með). FRAMSTYKKI: Prjónið laskalykkju slétt, prjónið A.7a yfir næstu 1-1-1-1-5-5 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-0-1-1 lykkju yfir þær, prjónið A.8 yfir næstu 19 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir þær, endið með kant að framan eins og áður (= 8 lykkjur kantur að framan), (= 34-34-34-34-39-39 lykkjur fyrir framstykki – uppslátturinn er ekki talinn með) – munið eftir HNAPPAGAT. Haldið svona áfram fram og til baka – munið eftir að prjóna uppsláttinn fyrir útaukningu fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur perluprjón og útaukning áfram inn í þegar prjónað mynstur á ermum og bakstykki, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar A.3a og A.7a (= 19-19-19-19-21-21 útaukningsumferðir) hefur verið prjónað til loka á hæðina í völdum stærðum, prjónið A.3x yfir A.3a og A.7x yfir A.7a, JAFNFRAMT sem síðan er aukið út með A.3b og A.7b þar til loka fjöldi útaukninga fyrir laskalínu á hæðina er náð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 29 sinnum = 72-72-76-76-76-76 lykkjur á milli laskalykkja fyrir hvora ermi, 71-71-71-71-77-77 lykkjur fyrir framstykki (uppslátturinn er ekki talinn með) og 95-99-99-103-103-107 lykkjur fyrir bakstykki + 4 laskalykkjur = 385-389-397-401-413-417 lykkjur. Nú er útaukningu fyrir ermar lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 2-4-4-6-8-12 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. aukið hefur verið út 31-33-33-35-37-41 sinnum á hæðina á fram-/bakstykki) = 393-405-413-425-445-465 lykkjur í umferð (uppslátturinn er ekki talinn með). Þegar réttur fjöldi útaukninga á framstykki og bakstykki hefur verið náð, prjónið síðan með A.3y yfir A.3b og A.7y yfir A.7b – passið uppá að mynstrið passi áfram inn í þegar prjónað mynstur Haldið áfram með mynstur og kant að framan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 23-24-25-26-28-30 cm frá merki mitt að framan – stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar við laskalykkjur þannig: Prjónið 74-76-76-78-86-90 lykkjur eins og áður – til og með laskalykkju (= framstykki), setjið næstu 72-72-76-76-76-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 3-7-15-19-23-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 101-109-109-117-121-133 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 72-72-76-76-76-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 3-7-15-19-23-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 74-76-76-78-86-90 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 255-275-291-311-339-359 lykkjur (uppslátturinn er ekki talinn með). Prjónið mynstur og kant að framan þannig: Prjónið kant að framan, prjónið A.2, A.3x, A.3y, haldið áfram með perluprjón / A.6 frá A.3y yfir laskalykkjur og nýjar lykkjur undir ermi (mynstrið gengur jafnt upp á milli framstykkis og bakstykki), prjónið perluprjón fram að og til og með síðustu laskalykkju, (perluprjón heldur áfram yfir í A.7y), prjónið A.7y, A.7x, A.8, endið með kant að framan. Prjónið mynstur og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 46-48-49-50-52-54 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 10-14-18-24-30-32 lykkjur jafnt yfir bakstykki = 265-289-309-335-365-391 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroff mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 51-53-54-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 72-72-76-76-76-76 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 3-7-15-19-23-23 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-79-91-95-99-99 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 3-7-15-19-23-23 nýjum lykkjum undir ermi – umferðin byrjar í þessari lykkju og þessi lykkja er alltaf prjónuð í sléttprjóni. Stillið af að mynstur A.6 og A.1 haldi áfram eins og áður frá berustykki yfir á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi, en það er mikilvægt að mynstrið verði samhverft hvoru megin við A.1. Prjónið í hring með mynstur eins og áður – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-4-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-2½-1½-1½-1½-1½ cm alls 11-12-17-18-18-18 sinnum = 53-55-57-59-63-63 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 35-35-35-33-32-30 cm frá skiptingunni. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 24-25-26-27-29-29 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 5-4-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 29-29-31-33-35-35 lykkjur), prjónið A.1 eins og áður, prjónið 23-24-25-26-28-28 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 5-6-7-6-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 28-30-32-32-34-34 lykkjur) = 63-65-69-71-75-75 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir fyrstu 29-29-31-33-35-35 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir síðustu 28-30-32-32-34-34 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn með stroff þar til stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm – stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 40-40-40-39-38-36 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterraincardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 38 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.