Echo River |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-16 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Lykkjufjöldinn í A.1 er breytilegur, en er alltaf talinn sem 6 lykkjur. Lykkjufjöldinn í A.6 er breytilegur, en er alltaf talinn sem 45 lykkjur. Finndu þína stærð og byrjaðu á örinni sem tilgreind er (á við A.4, A.5a og A.7a). LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 106-110-114-118-122-130 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Lima. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Setjið 1 merki í byrjun umferðar og prjónið í hring þannig: Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir fyrstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 47-49-51-53-55-59 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 42-44-46-46-48-52 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að síðasta umferð sé önnur umferð í A.1. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið brugðið yfir fyrstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur, prjónið A.1 eins og áður, prjónið brugðið yfir næstu 47-49-51-53-55-59, prjónið A.1 eins og áður, prjónið brugðið yfir síðustu 42-44-46-46-48-52. Prjónið síðustu umferð í kanti í hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur slétt, prjónið A.1 eins og áður, prjónið slétt yfir næstu 47-49-51-53-55-59 lykkjur jafnframt er aukið út um 16-14-20-22-20-16 lykkjur jafnt yfir þær (= 63-63-71-75-75-75 lykkjur), prjónið A.1 eins og áður, prjónið næstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur slétt, prjónið síðustu 37-39-41-39-41-45 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 4-2-4-6-4-0 lykkjur jafnt yfir þær (= 41-41-45-45-45-45 lykkjur) = 126-126-138-146-146-146 lykkjur. Byrjum umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 43-43-47-51-51-51 lykkjur í umferð (= ca miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru 4 merki sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju og þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 14-14-14-18-18-18 lykkjur (= ermi, A.1 situr í miðju af þessum lykkjum). Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 53-53-61-61-61-61 lykkjur (= framstykki). Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 14-14-14-18-18-18 lykkjur (= ermi, A.1 situr í miðju af þessum lykkjum). Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 41-41-45-45-45-45 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalykkjur – lesið útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið laskalykkju, * prjónið A.2, prjónið A.3 yfir næstu 0-0-0-2-2-2 lykkjur, prjónið A.1, prjónið A.4 – byrjið á tilgreindri ör (= ermi) *. Prjónið laskalykkju, prjónið A.5a, A.6, A.7a, prjónið laskalykkju (= framstykki), prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= ermi). Prjónið laskalykkju, prjónið A.2, haldið áfram með A.3 / perluprjón að næstu laskalykkju, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu (= bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð – þegar mynsturteikning A.2 og A.4 hefur verið prjónuð til loka á hæðina, heldur útaukning áfram og perluprjón / A.3 á sama hátt yfir ermar og bakstykki og nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar mynsturteikning A.5a og A.7a hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.5x og A.7x yfir þessar lykkjur JAFNFRAMT sem síðan er aukið út með A.5b og A.7b hvoru megin við framstykki. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Aukið út fyrir laskalínu alls 29 sinnum í öllum stærðum (= 58 umferðir prjónaðar) = 368-368-376-384-384-384 lykkjur. Nú er útaukningu fyrir ermar lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 0-2-4-6-8-12 sinnum til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 368-376-392-408-416-432 lykkjur í umferð. Þegar útaukningu fyrir A.5b og A.7b er lokið (fjöldi útaukninga í hverri stærð er merkt í mynsturteikningu), prjónið A.3 / perluprjón eins og áður yfir þessar lykkjur. Prjónið síðan mynstur eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-23-24-25-27-30 cm frá merki eftir kanti í hálsmáli – stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT þegar næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið laskalykkju slétt (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 72-72-72-76-76-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 3-7-11-15-23-27 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 123-127-135-139-143-151 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 72-72-72-76-76-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 3-7-11-15-23-27 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 100-104-112-116-120-128 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 230-246-270-286-310-334 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= í miðju af 3-7-11-15-23-27 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið slétt fram að merki, umferðin byrjar í lykkju með merki og prjónað er í hring. Nýjar lykkjur undir ermi ásamt laskalykkjum eru prjónaðar inn í mynstur A.3 / perluprjón (mynstrið gengur upp undir ermi á milli framstykkis og bakstykkis). Haldið áfram að prjóna mynstur eins og áður hringinn á öllu fram- og bakstykkinu þar til stykkið mælist 46-48-50-50-52-54 cm frá merki mitt að framan – stillið af að síðasta umferð sé annað hvort 3. eða 8. umferð í A.6. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 22-26-28-32-38-46 lykkjur jafnt yfir bakstykki í umferð 1 = 252-272-298-318-348-380 lykkjur. Þegar stroff mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 72-72-72-76-76-76 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 3-7-11-15-23-27 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-79-83-91-99-103 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 3-7-11-15-23-27 nýjum lykkjum undir ermi – umferðin byrjar í þessari lykkju og þessi lykkja er alltaf prjónuð í sléttprjóni. Stillið af að mynstur A.3 og A.1 haldi áfram eins og áður frá berustykki yfir á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi, en það er mikilvægt að mynstrið verði samhverft hvoru megin við A.1. Prjónið í hring með mynstur eins og áður – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-2-2-3-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-2½-2½-2-1½-1½ cm alls 11-12-13-16-18-19 sinnum = 53-55-57-59-63-65 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-36-36-35-34-31 cm frá skiptingunni. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 24-25-26-27-29-30 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 5-4-5-6-6-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 29-29-31-33-35-37 lykkjur), prjónið A.1 eins og áður, prjónið 23-24-25-26-28-29 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 5-6-7-6-6-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 28-30-32-32-34-36 lykkjur) = 63-65-69-71-75-79 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir fyrstu 29-29-31-33-35-37 lykkjur, prjónið A.1, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir síðustu 28-30-32-32-34-36 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn með stroff þar til stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm – stillið af að síðasta umferð sé síðasta umferð í A.1. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-41-41-41-40-37 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Diane Scraire skrifaði:
Bonjour , Est-ce que vous pourriez m'expliquer que veut dire A3/ point de riz. Parce que pour moi point de riz ce fait 1 endroit, 1envers sur le premier rang et 1 envers,1endroit sur le deuxième rang et on répète ces deux rangs . Je ne comprend pas A3 /point de riz
08.09.2024 - 16:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Diane, le diagramme A.3 est ici une variante fantaisie du point de riz, vous tricoterez des mailles envers à espace réguliers entre les mailles endroit. Bon tricot!
09.09.2024 - 10:32TAG skrifaði:
Hvis jeg har forstått oppskriften riktig, er det flere masker foran enn bak. Hvorfor det? Er det fordi flettene/strukturstrikk blir smalere?
03.09.2024 - 06:00DROPS Design svaraði:
Hej, ja det stemmer, snoningerne bruger flere masker, da de trækker arbejdet sammen :)
06.09.2024 - 09:52Päivi skrifaði:
Onko paidassa takana palmikoita tai kuvioneuletta?
30.08.2024 - 05:40DROPS Design svaraði:
Kyllä, takakappaleessa neulotaan mallineuletta piirrosten A.2 ja A.3 mukaan. Takakappaleessa ei ole palmikoita.
30.08.2024 - 18:05Melva Evans skrifaði:
I cannot follow diagrams. Are there written directions?
27.08.2024 - 23:30Celina skrifaði:
Twirling genser
10.08.2024 - 22:05Alix skrifaði:
The One With All the Cables
09.08.2024 - 22:42Belén skrifaði:
Cream Puff Sweater
08.08.2024 - 20:28