Augendre skrifaði:
Est ce que vous pourriez m'expliquer pourquoi dans l'explication pour l'empiecement il y a 18 mailles avec l'augmentation et sur la grille A1 et A5 il n'y a que 17 mailles de représentées je n'arrive pas a disposer mes motifs merci à vous
07.06.2025 - 14:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Augendre, au tout premier rang sur l'endroit, on tricote 17 m jersey en augmentant 1 m (devant gauche), mais seules les 17 premières de ces mailles seront tricotées en suivant le diagramme, la dernière de ces mailles appartient au raglan ainsi que la 1ère des mailles de la manche, ainsi vous avez 8 m de bordure devant, 17 m pour le 1er rang de A.1, 2 m jersey pour le raglan, avec le fil marqueur entre ces 2 mailles, 18 m pour la manche etc.. Bon tricot!
09.06.2025 - 09:42
Augendre skrifaði:
Bonjour je ne comprends pas comment placer mes marqueurs par rapport au 2mailles de jersey endroit je vous remercie par avance
06.06.2025 - 11:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Augendre, les marqueurs sont ici placés entre les mailles, les mailles des raglans sont donc les 2 mailles avec le marqueur au milieu soit: 1 m end, marqueur, 1 m end. Vous augmentez ainsi pour le raglan avant la m endroit avant le marqueur et/ou après la maille endroit après le marqueur. Bon tricot!
06.06.2025 - 13:02
Catherine PESSIN skrifaði:
Bonjour Comment adapter ce modèle avec 2 aiguilles (sans aiguille circulaire) en faisant les dos et devant séparément ? Merci de votre réponse C.P
12.03.2025 - 19:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pessin, cette leçon pourra éventuellement vous aider, mais notez qu'ici, vous tricotez l'empiècement puis le dos/les devants en allers et retours sur aiguille circulaire, vous pouvez donc tricoter sur aiguilles droites, vos mailles seront juste plus serrées et ce sera plus simple que de tout réajuster. Vous pouvez ensuite utiliser les infos du lien pour les manches. Bon tricot!
13.03.2025 - 15:33
Paulien skrifaði:
When working the PATTERN and increase for RAGLAN, is it: knit, yarn over, stitchmarker, yarn over, knit or is it: yarn over, knit, stitch marker, knit, yarn over?
11.03.2025 - 23:56DROPS Design svaraði:
Hi Paulien, You increase on each side of the 2 knitted stitches, so yarn over, knit 1, marker, knit 1, 1 yarn over. The 2 knitted stitches with the marker between them are the raglan-line and stay the same throughout. Happy knitting!
12.03.2025 - 05:56
Beata skrifaði:
I wonder whether the diagrams show only the right side rows or both the right and wrong side rows (when looking from the right side). By the way, is there a general tip for identifying if DROPS pattern diagrams display both right and wrong side rows, or just the right side rows, assuming the wrong side is made based on the instructions and not shown in the diagram? I cannot find a clear indication. Thank you!
21.07.2024 - 20:10DROPS Design svaraði:
Dear Beata, most of our patterns show all rows, both from the right and wrong side, seen from the right side. In almost all of the patterns, under EXPLANATIONS FOR THE PATTERN, there will be a section called PATTERN, which will specify this. In this case it says: "See diagrams A.1 to A.5. Choose diagram for your size. The diagrams show all rows in the pattern from the right side." So it shows ALL rows in the pattern, but the rows from the wrong side will have to be worked invertedly, so that you see the chart pattern from the right side. Here you have a lesson on how to interpret our knitting charts: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. Happy knitting!
22.07.2024 - 01:25
Cristina Bujorean skrifaði:
Can you please tell me if the “purl 3 together…” are made on the right side or the wrong side?
06.06.2024 - 03:24DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Bujorean, they are worked on the right side, just as shown in this video. Happy knitting!
06.06.2024 - 07:50
Doriana skrifaði:
Hallo, ich habe nochmal eine Frage zu den Raglan-Zunahmen. Irgendwie entstehen doch Löcher, obwohl ich es genauso machen, wie in der Anleitung beschrieben. Aber vielleicht habe ich es falsch verstanden. Könnt Ihr mir weiterhelfen? Danke und viele Grüße Doriana
24.05.2024 - 08:14DROPS Design svaraði:
Liebe Doriana, in diesem Video zeigen wir, wie solche Zunahmen gestrickt werden, beachten Sie vielleicht, daß die Umschläge nicht zu locker sind. Viel Spaß beim Stricken!
31.05.2024 - 08:01
Doriana skrifaði:
Hallo, ich stecke beim I-Cord fest: die 6 Maschen, die in der Beschreibung als "kraus rechts" bezeichnet werden, werden die in der 1. Hin-Reihe rechts oder links gestrickt? Kraus rechts ist ja immer rechts in jeder Reihe, aber dann wären es wieder rechte Maschen auf der Seite, da die 1. Reihe links gestrickt ist. Danke im Voraus, Viele Grüße Doriana
23.05.2024 - 08:26DROPS Design svaraði:
Liebe Doriana, die Maschen der Blende werden so gestrickt: am Anfang der Reihe: 2 Maschen I-Cord + 6 Maschen rechts, am Ende der Reihe: 6 Maschen rechts + 2 Maschen I-Cord; siehe auch dieses Video (hier stricken Sie aber keine Zunahmen wie im Video). Viel Spaß beim Stricken!
23.05.2024 - 08:44
Eva Berger skrifaði:
Hej stickar man de tre maskorna i mönstret från rätsidan. Ser ut som avigsidan i mönstret
06.05.2024 - 23:54DROPS Design svaraði:
Hej Eva, dem strikker du fra retsiden :)
08.05.2024 - 13:55
Karin skrifaði:
Ich möchte die Jacke in marineblau/dunkelblau stricken. Ist Belle oder Paris dunkler?
05.05.2024 - 17:52DROPS Design svaraði:
Liebe Karin, Paris würde aber hier keine Alternative sein, da Paris gehört zur Garngruppe C, diese Jacke wird mit Belle (Garngruppe B) gestrickt. Ihr DROPS Händler wird Ihnen gerne die beste passende Farbe - auch per Telefon oder per E-Mail - empfehlen. Viel Spaß beim Stricken!
06.05.2024 - 08:40
Dandelion Heart Cardigan#dandelionheartcardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri og I-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-20 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkja/bakstykkis og erma (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar i mynstri á framstykkjum/bakstykki og í sléttprjóni á ermum: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann, það á ekki að myndast gat. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til hann til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Síðan er fellt af fyrir næstu 4-4-5-5-5-5 hnappagötum með ca 9-9½-8-8-8½-9 cm millibili. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 126-126-130-130-146-146 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 8 kantlykkjur að framan MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 8 kantlykkjur að framan með I-cord. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Í næstu umferð eru settir 4 merkiþræðir í stykkið, þetta er gert samtímis sem prjónað er frá réttu þannig: 8 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 17-17-17-17-21-21 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 1-1-3-3-1-1 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (vinstra framstykki), prjónið 20-20-20-20-24-24 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 0-0-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (ermi), prjónið 36-36-40-40-40-40 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 1-1-1-1-3-3 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (bakstykki), prjónið 20-20-20-20-24-24 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 0-0-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (ermi), prjónið 17-17-17-17-21-21 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 1-1-3-3-1-1 lykkjur jafnt yfir, endið með 8 kantlykkjur að framan eins og áður (hægra framstykki) og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – lesið útskýringu að ofan = 129-129-141-141-155-155 lykkjur. Hver merkiþráður situr á milli 2 lykkja slétt frá stroffi (séð frá réttu). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en 8 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður. Nú er prjónað MYNSTUR jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. að fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 8 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við merkiþráðinn (þ.e.a.s. hvoru megin við 2 lykkjur í sléttprjóni), prjónið 18-18-20-20-24-24 lykkjur sléttprjón (ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við merkiþráðinn, prjónið A.2, prjónið A.3, prjónið A.4, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við merkiþráðinn, prjónið 18-18-20-20-24-24 lykkjur sléttprjón (ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við merkiþráðinn, prjónið A.5, endið með 8 kantlykkjum að framan eins og áður = 137-137-149-149-163-163 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka, þ.e.a.s. prjónið A.1/A.5 á framstykkjum, A.2/A.3/A.4 á bakstykki, sléttprjón á ermum og 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. Að auki heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 20-23-26-27-21-17 sinnum ásamt útaukningu í fyrstu umferð = 289-313-349-357-323-291 lykkjur. ATH: Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina, heldur mynstrið áfram á sama hátt, passið uppá að mynstrið passi yfir hvert annað á hæðina. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum/bakstykki. Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykkjum/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (það er aukið út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið út með þessum hætti 4-4-2-4-14-22 sinnum á framstykkjum/bakstykki (2-2-1-2-7-11 sinnum á ermum). Á eftir síðustu útaukningu eru 313-337-361-381-407-423 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-19-20-22-25-28 cm frá merki. Í stærð XXL og XXXL hefur berustykkið náð réttu máli fyrir skiptingu. Í stærð S, M, L og XL er prjónað áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 19-20-21-23 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 51-54-57-60-66-70 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 62-68-74-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-14-16-20 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið 87-93-99-105-115-123 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 62-68-74-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-14-16-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 51-54-57-60-66-70 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 201-217-233-253-279-303 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð 54-58-62-67-74-80 lykkjur inn frá hvorri hlið, það eru 93-101-109-119-131-143 lykkjur á milli merkiþráð á bakstykki. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Haldið síðan áfram með mynstur, þ.e.a.s. prjónið mynstur frá framstykkjum og bakstykki eins langt og hægt er inn að hvorri hlið undir ermum, lykkjur undir hvorri ermi sem ekki ganga jafnt upp í mynstur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-1! Fækkið lykkjum svona í 4. hverjum cm alls 3 sinnum = 189-205-221-241-267-291 lykkjur (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið þar til stykkið mælist 17-18-18-18-17-16 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 17-21-21-25-27-27 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 206-226-242-266-294-318 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 8 kantlykkjur að framan eins og áður, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 8 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 62-68-74-78-80-80 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-14-16-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-10-14-16-20 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu = 64-72-80-88-92-96 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 15-15-15-14-12-10 cm frá skiptingunni. Það eru 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-4-4-4-0-0 lykkjur jafnt yfir = 64-68-76-84-92-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 19-19-19-18-16-14 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dandelionheartcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.