Rebecca Snelling skrifaði:
Hi is this knitted with double yarn? as the amount of wool needed is far greater than all of the other patterns I’ve used before
18.12.2024 - 10:29DROPS Design svaraði:
Hi Rebecca, No, the jacket is worked with a single strand of Drops Snow. Happy Christmas!
19.12.2024 - 07:08
Karin Kattinger skrifaði:
Vielen Dank!
23.10.2024 - 09:04
Karin Kattinger skrifaði:
Es tut mir leid, aber das ist nicht die Antwort auf meine Frage. Wenn die Knöpfe 25 mm groß sind, wie oft soll ich die Anleitung für "Knopfloch" (diese Anleitung besteht nur aus 2 Reihen!) wiederholen? Oder reicht 1x und dann normal weiterstricken bis zum nächsten Knopflauch nach 9,5 cm. Danke!
23.10.2024 - 08:35DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kattinger, diese 2 Reihe sind jeweils für jedes Knopfloch gestrickt, so 1 Mal diese 2 Reihen = 1 Knopfloch. Viel Spaß beim Stricken!
23.10.2024 - 08:49
Karin Kattinger skrifaði:
Knopfloch: wie oft müssen diese beiden Reihen fpr das Knopfloch wiederholt werden, damit das Knopfloch gross genug ist? Danke.
22.10.2024 - 21:29DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kattinger, diese Knöpfe sind 25 mm (siehe hier); und die Knopflöcher werden in ca jeder 9½-10-8½-9-9½-9½ cm gearbeitet - siehe KNOPFLÖCHER. Viel Spaß beim Stricken!
23.10.2024 - 08:30
Karin Kattinger skrifaði:
Guten Tag, die Anleitung ab Reihe 8 "Größe XL und XXL" ist komplett unverständlich. Bei Größe "S,M,L und XXXL" widerspricht sich die Anleitung. Man weiß nicht was nun richtig ist. Wurde die original Anleitung mittels KI übersetzt? Die deutsche Übersetzung ist jedenfalls teilweise falsch und unverständlich. Ich ersuche Sie um mir die richtige Vorgehensweise ab Reihe 8 zu schicken. Vielen Dank.
21.10.2024 - 07:32DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kattinger, die Raglanzunahmen sind nicht gleich je nach der Größe, man wird zuerst 8 Maschen (Vorder, Rückenteil + Ärmel) in jeder 2. Reihe zunehmen, dann wird man abwechslungsweise 4 Maschen (Vorderteile + Rückenteil) und 8 Maschen (Vorder, Rückenteil und Ärmel) in jeder 2. Reihe zunehmen. Hoffentlich kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim Stricken!
21.10.2024 - 09:31
Sabine skrifaði:
Guten Tag , Ich habe eine Frage , für xxl soll ich 46 Maschen anschlagen und auf 1/12/18/12/1 aufteilen da komme ich aber nur auf 44 Maschen . Teile ich die zwei übrigen Maschen am Anfang und ende auf oder am Rückenteil? MfG Sabine
09.10.2024 - 15:52
Corriw Van Der Schoor skrifaði:
Dit patroon past waarschijnlijk heerlijk in mijn rolstoel
02.03.2024 - 21:48
Corrie Van Der Schoor skrifaði:
De kleur toffee prachtig en het patroon zit waarschijnlijk heerlijk in mijn rolstoel
02.03.2024 - 21:46
Autumn Amber Cardigan#autumnambercardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og hálum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-26 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á undan / eftir 4 lykkjum með prjónamerki í. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir lykkju með prjónamerki þannig: Á UNDAN lykkju með prjónamerki: Prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Á EFTIR lykkju með prjónamerki: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjónið í lykkjuna og setjið til baka yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn brugðið. Það á ekki að myndast gat. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Á UNDAN merkiþræði: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, merkiþráður (1 lykkja færri). Á EFTIR merkiþræði: 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu í berustykki (þegar hálsmál hefur verið prjónað til loka). Síðan er fellt af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með 9½-10-8½-9-9½-9½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. HÁLSMÁL: Fitjið upp 42-42-44-44-46-46 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Snow. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1 prjónamerki í fyrstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14-14-16-16-18-18 lykkjur (bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju (4 laskalínu prjónamerki). Prjónið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 44-44-46-46-48-48 lykkjur. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur, aukið út fyrir LASKALÍNU hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í – lesið útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 54-54-56-56-58-58 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur (uppslættir eru prjónaðir snúnir í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 56-56-58-58-60-60 lykkjur. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 66-66-68-68-70-70 lykkjur. UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur (uppslætti eru prjónaðir snúnir í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 9-9-10-10-11-11 nýjar lykkjur í lok umferðar = 75-75-78-78-81-81 lykkjur. UMFERÐ 6 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 9-9-10-10-11-11 nýjar lykkjur í lok umferðar = 92-92-96-96-100-100 lykkjur. UMFERÐ 7 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur (uppslættir eru prjónaðir snúnir í sitt hvora áttina og kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin. Nú er prjónað fram og til baka yfir allar lykkjur frá miðju að framan eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið við miðju að framan – lesið útskýringu að ofan. JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan: STÆRÐ S, M, L og XXXL: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu), en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum / bakstykki. Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykkjum / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (það er aukið út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 10-12-14-18 sinnum á framstykkjum / bakstykki og 5-6-7-9 sinnum á ermum = 152-164-180-208 lykkjur. Útaukningu fyrir ermar er nú lokið. Haldið áfram með útaukningu á framstykkjum / bakstykki 2-2-0-1 sinnum til viðbótar = 160-172-180-212 lykkjur. Útaukningu fyrir framstykki / bakstykki er nú lokið. STÆRÐ XL og XXL: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) 2-1 sinnum = 112-108. Síðan heldur útaukning áfram á sama hátt, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykkjum / bakstykki. Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykkjum / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (það er aukið út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 14-16 sinnum á framstykkjum / bakstykki og 7-8 sinnum á ermum = 196-204 lykkjur. Útaukningu fyrir framstykki / bakstykki og ermar er nú lokið. ALLAR STÆRÐIR: = 160-172-180-196-204-212 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 21-24-24-27-29-31 cm, mælt frá uppfitjunarkanti mitt að aftan. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður, án þess að auka út, að réttu máli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 29-31-32-34-36-38 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 28-30-32-36-36-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 46-50-52-56-60-64 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 28-30-32-36-36-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 29-31-32-34-36-38 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-124-132-140-152-164 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 22-21-23-22-22-22 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 30-34-38-38-42-46 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 146-158-170-178-194-210 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Setjið 28-30-32-36-36-36 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-36-40-44-46-48 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-2-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á undan merkiþræði – lesið ÚRTAKA. Þegar stykkið mælist 9-9-7½-4½-5-5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á eftir merkiþræði – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona til skiptis á undan og á eftir merkiþræði með 5-5-3½-2½-2-2 cm millibili alls 6-6-8-12-12-12 sinnum (3-3-4-6-6-6 sinnum á undan merkiþræði og 3-3-4-6-6-6 sinnum á eftir merkiþræði) = 28-30-32-32-34-36 lykkjur. Þegar ermin mælist 35-33-33-31-29-28 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-20-20-18-20 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 45-43-43-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 90-90-98-98-106-106 lykkjur í kringum hálsmál frá réttu á hringprjón 6 – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 2. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 10-10-11-11-12-12 cm. Fellið aðeins laust af. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnambercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.