DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Soft Tweed yarn
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1090.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Bright Moon Rising

Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 245-23

#brightmoonrisingsweater

DROPS Design: Mynstur st-041
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-350-400-450-500 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1090.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 6 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykki og erma, merkiþræðirnir sitja á milli þessa 6 lykkja (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-88-88-104-104-104 lykkjur með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk yfir hringprjón 5,5 og hringprjón 4,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5,5 og haldið lykkjunum eftir á hringprjón 4,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroffprjón þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Prjónið þar til stroffið mælist 14 cm.
Nú eru sett 4 merkiþræðir í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu og hver merkiþráður er sett á milli 2 lykkja slétt.

Teljið 12-12-12-16-16-16 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, það eru 12-12-12-16-16-16 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (hálft bakstykki).

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú er prjónað hálsmál og stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan. Prjónað er sléttprjón, en 6 lykkjur í hvorri laskalínu eru prjónaðar þannig (séð frá réttu): 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið (merkiþráðurinn situr á milli 2 lykkja slétt).
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu merkiþræðina (4 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 5 lykkjur fram hjá öðrum merkiþræðinum (í vinstri hlið við hálsmál að framan, séð þegar flíkin er mátuð).
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið við þegar prjónaðar hafa verið 5 lykkjur fram hjá síðasta merkiþræði.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu merkiþræðina (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan.

Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu við hvern merkiþráð = 112-112-112-128-128-128 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur frá miðju að aftan. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur án þess að auka út.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við hvern merkiþráð. Aukið svona út 3 sinnum = 136-136-136-152-152-152 lykkjur. Síðan er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptist 4 og 8 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út 14-16-20-22-24-24 sinnum á fram- og bakstykki (7-8-10-11-12-12 sinnum á ermum). Nú eru 220-232-256-284-296-296 lykkjur í umferð.

Stærð S, M, L, XXL og XXXL (útaukning í stærð XL er lokið):
Haldið áfram í sléttprjóni og með útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermum er lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 3-3-2-1-5 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
Nú hefur verið aukið út alls 23-25-28-28-31-35 sinnum á fram- og bakstykki og 13-14-16-17-18-18 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli).

Á eftir síðustu útaukningu eru 232-244-264-284-300-316 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist ca 23-25-28-28-31-35 cm, mælt mitt að framan á eftir stroffi í hálsmáli.

Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 35-37-40-44-47-51 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 46-48-52-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 70-74-80-88-94-102 lykkjur (framstykki), setjið næstu 46-48-52-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 35-37-40-44-47-51 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-172-184-204-220-240 lykkjur. Byrjið í annarri hliðinni, mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp, prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-17-16-18-17-15 cm frá skiptingu. Setjið síðustu 80-86-92-102-110-120 lykkjur á þráð, prjónið síðan yfir fyrstu 80-86-92-102-110-120 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-24-28-28-28-30 lykkjur jafnt yfir = 102-110-118-130-138-150 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu): 2 lykkjur slétt í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur garðaprjón. Prjónið stroff í 12 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.
Prjónið á sama hátt yfir lykkjur frá bakstykki.

ERMI:
Setjið 46-48-52-54-56-56 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-3-2½-1½-1½-1 cm millibili alls 6-8-9-11-10-10 sinnum = 44-44-46-46-52-54 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 34-33-31-30-28-25 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-10-10-8-10 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm.
Fellið af. Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið kantinn í hálsmáli niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli.
Saumið saman klauf í hvorri hlið, saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, saumið frá efst í klauf og ca 4 cm niður (= 8 cm klauf í hvorri hlið).

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 245-23

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brightmoonrisingsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Yvette skrifaði:

Ah d’accord!! Merci !! Ça y est!! J’ai compris maintenant!! C’est très gentil à vous !!

22.11.2024 - 16:10

country flag Yvette skrifaði:

Merci pour votre réponse, néanmoins même après la vidéo ma question continue. Sur la vidéo les marqueurs sont sur une maille et non pas entre deux mailles comme indiqué sur le modèle, donc impossible de faire les jetés avant et après le marqueur ou alors il y a quelque chose que je ne comprends toujours pas…

22.11.2024 - 14:05

DROPS Design svaraði:

Bonjour Yvette, la vidéo montre la technique des rangs raccourcis et les augmentations des raglans, ici, comme indiqué précédemment, le marqueur se trouve au milieu des 6 mailles du raglan et vous augmentez avant/après les 6 mailles du raglan (uniquement sur l'endroit = comme indiqué dans les explications) et pas de chaque côté du marqueur (comme dans la vidéo, qui montre la technique "standard"). Bon tricot!

22.11.2024 - 14:22

country flag Yvette skrifaði:

Bonjour, j’essaye de faire l’encolure mais je ne comprends pas comment je dois répartir les 6 mailles de chaque raglan (2 m envers, 2 m endroit, 2 m envers; on doit avoir un fil marqueur entre les 2 mailles endroit) avec les augmentations… je fais les augmentations avant et après les deux endroit ? Merci!

21.11.2024 - 23:00

DROPS Design svaraði:

Bonjour Yvette, les 6 mailles des raglans se tricotent à raison de 3 m avant + 3 m après chacun des 4 fils marqueurs insérés juste avant; vous avez automatiquement (vu sur l'endroit): 2 m env, 1 m end, fil marqueur, 1 m end, 2 m env. Augmentez ensuite pour l'encolure aux fils marqueurs (au 1er rang, vous augmentez seulement à 2 des fils marqueurs, au dernier des rangs raccourcis, vous augmenterez aux 2 autres marqueurs (jusqu'au milieu dos). Cette vidéo devrait pouvoir vous aider (tricotez bien les 6 m des raglans comme indiqué précédemment). Bon tricot!

22.11.2024 - 09:49

country flag Christie skrifaði:

In the neckline it says purl past last stitch marker. Does that mean the fourth numbering 1,2,3,4 clockwise? Or complete the round and past the fourth marker?

11.11.2024 - 17:21

DROPS Design svaraði:

Dear Christie, the. marker numbers are in the order they have been inserted seen from RS, so that the front piece is between 2nd and 3rd marker - see also this video where we show how to work such short rows. Happy knitting!

12.11.2024 - 08:55

country flag Linda skrifaði:

Goededag, ik wil de trui Blue Moon Rising alleen Drops Soft Tweed breien, dus zonder de Kid-silk. Hoeveel garen van Drops Soft Tweed heb ik dan ongeveer nodig en wat verandert er dan aan het patroon? Dank voor uw antwoord.

21.10.2024 - 18:10

DROPS Design svaraði:

Dag Linda,

Als je dat doet krijg je een andere stekenverhouding, of je zorgt ervoor dat je dezelfde stekenverhouding krijgt waarbij het breiwerk dus wat opener wordt. In dat geval heb je allen de aangegeven hoeveelheden DROPS Soft Tweed nodig.

23.10.2024 - 09:42

country flag Annick skrifaði:

A la séparation du corps et des manches, les mailles raglan doivent être comptées avec le corps ou avec les manches?? Le nombre de mailles que j'ai, soit 300, n'arrivent pas avec le nombre indiqué pour la séparation. Merci de votre aide!

15.10.2024 - 22:43

DROPS Design svaraði:

Bonjour Annick, tout à fait, les 6 mailles du raglan sont divisées en deux, la division de l'empiècement se fait au milieu de ces 6 mailles. Si votre nombre de mailles est juste et que vous avez augmenté comme il faut, cette division va se faire au bon endroit. Bon tricot!

16.10.2024 - 07:39

country flag Heidi skrifaði:

Welches sind die 6 Raglanmaschen ? Sind es je 3 Maschen vor und nach den Markierungsfäden? Und die Zunahmen sind neben den Raglanmaschen?

13.10.2024 - 19:10

DROPS Design svaraði:

Liebe Heidi, ja genau, die 6 Raglanmaachen werden so gestrickt: (2 M links, 2 Maschen rechts mit dem Markierungsfaden zwischen diese 2 Maschen, 2 M links); dann wird man vor und/nach diesen 6 Maschen für den Raglanzunehmen, siehe RAGLAN. Viel Spaß beim Stricken!

14.10.2024 - 09:09

country flag Alice skrifaði:

Hej! Jag har nu stickat fram till uppläggningen av nya maskor under ärmarna. Varvet avslutades mitt bak på tröjan, och enligt mönstret ska nästa varv börja mitt under ena ärmen. Min fråga är: Ska jag hoppa över maskorna från mitt bak till under ärmen och börja direkt där med nya stickor? Eller ska jag sticka fram till under ärmen innan jag börjar på nästa varv med slätstickning för fram- och bakstycket?

08.09.2024 - 12:08

DROPS Design svaraði:

Hei Alice. Du avslutter midt bak, men så følger du slik det står beskrevet, slik: Oket delas nu till fram- och bakstycke och ärmar så här: Sticka de första 35-37-40-44-47-51 maskorna (halva bakstycket), sätt de följande 46-48-52-54-56-56 maskorna på en tråd till ärm och lägg upp 10-12-12-14-16-18 nya maskor på stickan (i sidan under ärmen), .... Når man kommer midt bak igjen, klipp tråden og flytt maskene på venstre pinne over til høyre pinne til du kommer midt i de nye maskene under ermet. Start å strikke herfra (dette er nå begynnelsen på omgangen). mvh DROPS Design

09.09.2024 - 11:53

country flag Amber skrifaði:

Thank you for the response. To confirm, you start the first short row before or after the marker for the mid back? Thank you again.

16.08.2024 - 08:51

DROPS Design svaraði:

Dear Amber, you start working first row on neckline / short row from mid back and last row ends on mid back. Happy knitting!

16.08.2024 - 16:00

country flag Amber skrifaði:

Thank you for your response, but I am struggling with the section on the short rows and not the rib. When I begin the short rows, where do I join in the new yarn?

16.08.2024 - 07:54

DROPS Design svaraði:

Dear Amber, rounds start on mid back, and short rows for neckline start on mid back, ie row 1 is worked from mid back to 5 sts after 2nd marker, then turn and work 2nd row from WS until 5 sts after last marker (seen from WS), turn and continue working short rows with 2 sts more than previous row increasing on every row from RS at the markers; the last row is worked from RS towards mid back (you have now worked the same number of rows on each side of mid back and increase the same number of sts on each side too). Happy knitting!

16.08.2024 - 08:16