Louise Panvig skrifaði:
Jeg kan slet ikke få det til at passe med 11 masker i strikkeprøven. Hverken på pind 7 eller 8
30.01.2024 - 15:27
Katharina skrifaði:
Hallo, in der Anleitung steht beim Rückenteil nach Anschlag der bei mir 24 Maschen, dass die Schulterzunahmen in jeder Hinreihe gemacht werden sollen. Dies habe ich gemacht und nach Ansicht des Videos alles wieder aufgerebbelt. Es muss lt. meinem Verständnis in JEDER Reihe eine Zunahme erfolgen, wie im Video zu sehen. Viele Grüße aus Hamburg
25.10.2023 - 17:18DROPS Design svaraði:
Liebe Katarina, bei diesem Modell soll man aber für den Rückenteil in jeder Hin-Reihe zunehmen, dh in jeder 2. Reihe und nicht in jeder Reihe. Das Video zeigt die Technik, aber dann soll man die Zunahmen genauso wie bei der Anleitung stricken. Viel Spaß beim stricken!
26.10.2023 - 06:39
Conni Foged skrifaði:
Mindfullnes
04.08.2023 - 16:01
Andrea Ævarsdóttir skrifaði:
Chunky monkey
03.08.2023 - 19:20
Outdoor Escape Sweater#outdoorsscapesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í perluprjóni, með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, háum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-24 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. PERLUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚTAUKNING: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI / 3 lykkjur: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI / 3 lykkjur: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað fram í hring á hringprjón. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. Peysan er prjónuð í perluprjóni (fyrir utan stroff og 3 lykkjur í sléttprjóni á bakstykki). BAKSTYKKI: Fitjið upp 22-22-22-24-24-28 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð. Nú er prjónað PERLUPRJÓN fram og til baka – lesið útskýringu að ofan, nema ystu 3 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni þar til útaukningu er lokið. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – lesið ÚTAUKNING . Haldið svona áfram og aukið út í hverri umferð frá réttu 18-20-22-22-24-24 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 58-62-66-68-72-76 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan perluprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 12-13-13-14-15-16 cm, mælt yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, geymið stykkið og prjónið framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið við vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 18-20-22-22-24-24 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. það er prjónuð upp 1 lykkja í annarri hverri umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið perluprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu eins og útskýrt er að ofan, aukið er út á eftir 3 lykkjum (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út um 1 lykkju í alls 4 sinnum = = 22-24-26-26-28-28 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu, klippið þráðinn og geymið stykkið. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 18-20-22-22-24-24 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið perluprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu eins og útskýrt er að ofan, aukið er út á undan 3 lykkjum (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út um 1 lykkju í alls 4 sinnum = = 22-24-26-26-28-28 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið perluprjón yfir 22-24-26-26-28-28 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 14-14-14-16-16-20 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið perluprjón eins og áður yfir 22-24-26-26-28-28 lykkjur frá vinstra framstykki = 58-62-66-68-72-76 lykkjur. Prjónið perluprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 26-27-29-30-31-32 cm, mælt yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið perluprjón yfir 58-62-66-68-72-76 lykkjur frá framstykki á prjóni, fitjið upp 4-4-4-8-10-14 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið perluprjón yfir 58-62-66-68-72-76 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-4-4-8-10-14 nýjar lykkjur í lok umferðar = 124-132-140-152-164-180 lykkjur. Prjónið PERLUPRJÓN í hring þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki – lesið útskýringu að ofan. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að það myndist klauf í hliðum. Setjið 62-66-70-76-82-90 lykkjur frá framstykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið áfram einungis yfir lykkjur frá bakstykki. BAKSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 10-10-14-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 72-76-84-88-96-104 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur á hringprjón 7. Prjónið á sama hátt og bakstykki. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 8 og prjónið upp frá réttu 29-30-32-33-34-36 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 13-14-14-15-16-16 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 42-44-46-48-50-52 lykkjur meðfram handvegi. Prjónið perluprjón fram og til baka þar til ermin mælist 2-2-2-4-5-6 cm. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 8 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið perluprjón. Þegar ermin mælist alls 4-4-4-5-5-7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8 cm millibili alls 4 sinnum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-35-34-34-34-33 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi. Það eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið laust af. Ermin mælist ca 46-45-44-44-44-43 cm. HÆGRI ERMI: Prjónið hina ermin á sama hátt, en prjónið upp lykkjur gagnstætt við fyrri ermi, þ.e.a.s. prjónið upp 13-14-14-15-16-16 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 29-30-32-33-34-36 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 60 til 76 lykkjur í kringum kant í hálsmáli á stuttan hringprjón 7. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 14 cm. Fellið af aðeins laust. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #outdoorsscapesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.