DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13486.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Moon Mist

Prjónuð peysa úr DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S – XXXL.

DROPS 245-7
DROPS Design: Mynstur li-158
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 9025, krít
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-125-150-175-175 g litur 44, tunglskin

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13486.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju á undan / eftir 4 lykkjum með prjónamerki í – síðan kölluð laskalínulykkja.
Laskalínulykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir laskalínulykkju þannig:
Á UNDAN laskalínulykkju:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR laskalínulykkju:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir laskalínulykkju þannig:
Á UNDAN laskalínulykkju:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR laskalínulykkju:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt.

LASKALÍNA-2:
Aukið út um 1 lykkju aukalega á eftir / undan laskalínulykkjum á framstykki / bakstykki (ekki á ermum). Laskalína-2 er prjónuð sem viðbót við Laskalína-1. Þetta er gert þannig:
Á UNDAN laskalínulykkju:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan laskalínulykkju, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, svo ekki myndist gat.
Á EFTIR laskalínulykkju:
Prjónið 3 lykkjur fram hjá laskalínulykkju (hugsanlega er uppsláttur frá útaukningu í sömu umferð sem er ekki talinn sem lykkja hér), notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er hálsmál prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar sem fitjaðar eru upp nýjar lykkjur í hvorri hlið til að forma hálsmálið. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf. Síðan er framstykki / bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loknu máli.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli sem brotinn er saman tvöfaldur.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 62-64-66-68-70-72 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
Setjið 4 prjónamerki og 1 merkiþráð í stykkið þannig: Teljið 1 lykkju, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12-13-14-15-16-17 lykkjur, setjið 1 merkiþráð (miðja að aftan), teljið 12-13-14-15-16-17 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju = 1 lykkja eftir síðasta prjónamerki. Lykkjur með prjónamerki eru núna kallaðar laskalínulykkjur.
Prjónið fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir LASKALÍNA-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur – lesið útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 72-74-76-78-80-82 lykkjur.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 74-76-78-80-82-84 lykkjur.
UMFERÐ 3 (rétta). Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 84-86-88-90-92-94 lykkjur.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 86-88-90-92-94-96 lykkjur.
UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 97-99-101-103-105-107 lykkjur.
UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 100-102-104-106-108-110 lykkjur.
UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í lok umferðar = 116-120-124-128-132-136 lykkjur. Prjónið áfram að merkiþræði mitt að aftan.

Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur.
Prjónið núna berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón hringinn frá miðju að aftan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ATH: Það á núna að auka út fleiri lykkjur á framstykki/ bakstykki en á ermum, þess vegna er aukið út auka lykkjum á framstykki / bakstykki með jöfnu millibili (laskalína-2).
Þetta er gert sem viðbót við laskalína-1. Lestu því allan kaflann um berustykki áður en þú prjónar áfram.

Aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 laskalínulykkjur í annarri hverri umferð alls 3-5-8-13-13-11 sinnum (þ.e.a.s. 7-9-12-17-17-15 sinnum meðtaldar 4 útaukningar fyrir hálsmáli).
JAFNFRAMT í fyrstu umferð, aukið út fyrir LASKALÍNA-2 á framstykki og bakstykki – lesið útskýringu að ofan (laskalína-2 er prjónuð sem viðbót við laskalína-1). Aukið út fyrir laskalína-2 í 12.-12.-14.-10.-8.-8. hverri umferð alls 2-2-2-4-5-6 sinnum.

Þegar aukið hefur verið út fyrir laskalína-1 alls 3-5-8-13-13-11 sinnum eftir hálsmáli eins og útskýrt er að ofan, heldur útaukning fyrir laskalína-1 áfram í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 14-14-12-8-10-14 sinnum á fram- og bakstykki (7-7-6-4-5-7 sinnum á ermum) – munið eftir laskalína-2.
Nú hefur verið aukið út alls 23-25-26-29-32-35 sinnum á framstykki / bakstykki (meðtalin laskalína-2) og 14-16-18-21-22-22 sinnum á ermum.

Eftir alla útaukningu fyrir laskalína-1 og laskalína-2 eru 232-252-268-296-316-332 lykkjur í umferð (70-76-80-88-96-104 lykkjur á milli laskalíulykkja á framstykki / bakstykki og 44-48-52-58-60-60 lykkjur á milli laskalínulykkja á ermum).
Prjónið sléttprjón án þess að auka út þar til stykkið mælist 22-24-25-26-28-30 cm, mælt frá uppfitjunarkanti mitt að aftan.

Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 36-39-41-45-49-53 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 44-48-52-58-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 72-78-82-90-98-106 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 44-48-52-58-60-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 36-39-41-45-49-53 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (hálft bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-172-184-200-220-240 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 21-21-22-23-23-23 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.
Setjið lykkjur frá framstykki á hringprjón 3,5 og látið lykkjur á bakstykki hvíla á hringprjón 5.

FRAMSTYKKI:
= 80-86-92-100-110-120 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 25-27-29-31-35-37 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 105-113-121-131-145-157 lykkjur.
Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm.
Fellið af, notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

BAKSTYKKI:
Færið 80-86-92-100-110-120 lykkjur yfir á hringprjón 3,5 og prjónið á sama hátt og á framstykki.

ERMI:
Setjið 44-48-52-58-60-60 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56-62-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 4-4-4-2-2-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 7-5-3½-3-2½-2 cm millibili alls 4-5-7-9-10-10 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 31-29-28-28-26-24 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir = 64-66-68-70-76-78 lykkjur. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12 cm. Fellið af á sama hátt og framstykki / bakstykki. Ermin mælist ca 43-41-40-40-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt að aftan og prjónið upp frá réttu ca 100-104-108-112-116-120 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 – stillið af þannig að stroffið passi þannig að laskalínulykkjur haldi áfram sem slétt lykkja (séð frá réttu) í kanti í hálsmáli og að það sé oddatala í fjölda lykkja á milli hverra laskalínu, þannig að stroffið gangi jafnt upp hringinn.
Prjónið stroffprjón hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 15 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum við hverja laskalínu.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Christine wrote:

Hallo, Ich habe den Halsausschnitt in Hin- und Rückreihen gestrickt. Jetzt bin ich unsicher, wie weiter. Am Ende steht "Bis zum Markierungsfaden an der hinteren Mitte weiterstricken.". Heißt das, dass ich damit die Runde nun schließen soll und die Passe dann in Runden anschließe? Besten Dank im Voraus und Grüße

20.02.2024 - 17:58

DROPS Design answered:

Liebe Christine, die letzte verkürzte Reihe ist eine Rückreihe, wenden Sie und stricken Sie (= Hinreihe) jetzt bis die Markierungsfaden an der hinteren Mitte und ab jetzt stricken Sie dann in Runden. Viel Spaß beim stricken!

21.02.2024 - 08:18

country flag Annelene Andersen wrote:

Jeg vil gerne strikke moon list 245-7 så jeg vil høre om jeg kan bruge air i stedet for lima ved godt med strikkeprøve men om det er helt galt.

06.02.2024 - 10:02

DROPS Design answered:

Hei Annelene. Man kan ikke erstatte DROPS Lima med DROPS Air, Lima er tynnere enn Air, men i denne oppskriften er Lima strikket sammen med DROPS Kid-Silk slik at disse 2 kvaliteten sammen blir tykkere. Strikkefastheten er oppgitt til 16 masker i bredden og 20 pinner i høyden med glattstrikk og DROPS Air har en veiledende strikkefasthet på 17 m x 22 p. Så om du strikker en prøvelapp med Air og får oppskriftens oppgitte strikkefasthet, kan du bytte, evnt justere litt på pinne str. mvh DROPS Design

15.02.2024 - 10:56

country flag Anna wrote:

Je ne comprends rien je monte 66 mailles car je fais la taille L. Je monte donc1 maille, puis 1 m avec un marqueur, puis 16 m pour les manches, puis de nouveau 1 marqueur puis 14 m demi dos, 1 m pour le fil marqueur et de nouveau 14 m pour le demi dos, puis 1 m marqueur, 16 m . Arrivee à ce stade, j'ai 65 mailles et non 64. Il ne me reste qu'une maille au lieu de deux. Ou alors le fil marqueur ne se met pas dans une maille mais entre deux mailles ? Je ne comprends pas j'ai recompte 6 fois.

19.01.2024 - 16:43

DROPS Design answered:

Bonjour Anna, posez vos marqueurs ainsi: 1 m (devant), 1 m (marqueur), 16 m (manche), 1 m (marqueur), 14 m (demi-dos), fil marqueur, 14 m (demi-dos), 1 m (marqueur), 16 m (manche), 1 m (marqueur), 1 m (devant)=1+1+16+1+14+14+1+16+1+1= 66 mailles. Bon tricot!

22.01.2024 - 07:48

country flag Anna wrote:

Bonjour j'ai un échantillon que je ne peux plus modifier (j'ai tout essayé) le plus près de l'échantillon, c'est 16m par 24 rangs. Est ce que ca ira quand même ? merci

17.01.2024 - 21:25

DROPS Design answered:

Bonjour Anna, s'il vous faut davantage de rangs pour 10 cm, vous aurez probablement besoin de davantage de laine qu'indiqué dans les explications, et comme vous avez besoin de davantage de rangs pour la bonne hauteur, vous pouvez soit ajouter des tours sans augmentations entre les tours avec augmentations, soit tricoter comme indiqué et continuer après le raglan jusqu'à la hauteur indiquée pour l'empiècement, ainsi vous êtes sûre d'avoir la bonne longueur. Bon tricot!

18.01.2024 - 08:54

country flag Åsa Andreasson wrote:

Jag har stickat den här tröjan och är så nöjd. Jag stickade den i drops karisma , färg 37 , och kid-silk , färg 28 , och det blev jättefint. Mjuk och skön och en härligt rymlig modell. En sak som jag undrar är hur man lämpligast mäter ett stickat arbete. Liggande eller hängande? Mvh Åsa

14.01.2024 - 15:07

country flag Annemieke Wicherink wrote:

Het wordt een prachtige trui! Ik heb een vraag over de meerderingen op het moment dat je over gaat van de romp rondbreien naar heen en weer breien in boordsteek en een spilt krijgt. Waarom moet je dan zoveel steken meerderen komt dat om dat je overgaat een dunnere naald? Ik ben bang dat de onderkant te wijd wordt

12.01.2024 - 23:15

DROPS Design answered:

Dag Annemiek,

De boordsteek trekt het werk samen en om dit te voorkomen moet je zoveel steken meerderen.

14.01.2024 - 13:03

country flag Daniela wrote:

Hallo. Leider habe ich es nicht verstanden, warum der Halsausschnitt in Hin- und Rückreihen gestrickt wird. Wann wird dieses Loch geschlossen und wie? Danke für die Antwort.-

27.12.2023 - 21:35

DROPS Design answered:

Liebe Daniela, der Halsausschnitt wird in Hin- und Rückreihen gestrickt, damit der Halsauschnitt hinten länger als der Halsausschnitt vorne wird. Am Ende der 7. Reihe wird man die mittleren Maschen für den Halsausschnitt vorne angeschlagen, dann stricken Sie in Runden = die Maschen am Ende der Reihe bis zum Markierungsfaden an der hinteren Mitte. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 09:10

country flag Mrs Elizabeth Guymer wrote:

The pattern looks great but none of the increases actually add up to the correct amount t of stitches at the end of the yoke increases - supposed to have 296 stitches but that is more than 88 x 2 for front/back added with 58 x 2 for both sleeves - where are the extra 4 supposed to be?

12.12.2023 - 18:54

DROPS Design answered:

Hi Mrs Guymer, Have you inserted the markers in stitches (instead of between stitches)? That could be where your extra 4 stitches are included. Happy knitting!

13.12.2023 - 06:43

country flag Myriam wrote:

Bonjour, je suis bloquée avec les raglans. Comment différent marqueurs manches et dos/devant? Est-ce que cela veut dire: tricoter jusqu’au 1er marqueur côté dos, faire le raglan 2, pas d’augmentation côté manche (donc au contraire du raglan 1, on augmente pas des 2 côtés du raglan? ) Je vous remercie d’avance.

10.12.2023 - 12:10

DROPS Design answered:

Bonjour Myriam, vous avez 4 marqueurs, 1 entre chaque pièce pour séparer les manches du dos et du devant; pour le raglan, vous allez augmenter de part et d'autre de la maille avec un marqueur; mais vous devez augmenter davantage pour le devant/le dos que pour les manches, autrement dit, vous augmentez (raglan-1) pour le devant, le dos et les manches et en plus, vous augmenterez (raglan-2) seulement pour le devant et le dos; puis vous augmenterez alternativement 4 mailles (dos / devant seulement - raglan-1) et 8 mailles (comme avant, dos, devant et manches). Bon tricot!

11.12.2023 - 09:02

country flag Victoria wrote:

Bonjour, Pour les augmentations du raglan 2 et les augmentations du raglan 1 pour les dos/devant : doit-on augmenter seulement de 2 mailles sur deux mailles raglan quand on arrive au dos et devant, ou doit-on augmenter de 4 mailles sur les 4 mailles raglan seulement sur les cotés dos/devant ? Merci d'avance

29.11.2023 - 11:09

DROPS Design answered:

Bonjour Victoria, on va augmenter systématiquement 2 mailles pour les manches (augmentations-1) et soit 2 soit 4 mailles pour le devant et le dos (augmentations-1 + augmentations-2). Bon tricot!

29.11.2023 - 14:15