Stone Island#stoneislandsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, klukkuprjónslykkjum á ermum, klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-51 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 4 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 1,3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING Á ERMI: Útaukning er gerð í umferð sem er eins og 2. Eða 4. Umferð í A.1. Prjónið fram að miðjulykkju á ermi (= lykkja með prjónamerki í), prjónið * 1 lykkja slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju, en bíðið með að sleppa lykkjunni af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum í sömu lykkju, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 4 lykkjur fleiri í sömu lykkju), lyftið síðan lykkjunni af vinstra prjóni. Endurtakið á hinni erminni. Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum í stærð L, XL, XXL og XXXL): Lykkjum er fækkað svona mismunandi eftir stærðum: Stærð L og XXXL: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið (prjónamerki situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). Stærð XL og XXL: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu 3 lykkjur (prjónamerki situr í miðju af þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Prjónað er sléttprjón á fram- og bakstykki og áferðamynstur með klukkuprjónslykkjum á ermum. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-108-108-116-116-124 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með DROPS Puna. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið síðan A.1 hringinn. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 9 cm. Síðar er kanturinn í hálsmáli brotinn saman tvöfaldur og við frágang þá verður hann ca 4 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 4-6-6-8-8-10 lykkjur og jafnframt út um 3-1-3-1-4-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, prjónið A.2 yfir næstu lykkju, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hálfs bakstykkis og hægri ermi), prjónið A.1 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.1, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), A.3 yfir næstu lykkju, sléttar lykkjur yfir næstu 7-11-11-15-15-19 lykkjur og aukið jafnframt út um 5-2-5-1-7-5 lykkjur jafnt yfir, A.2 yfir næstu lykkju, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), prjónið A.1 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.1, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og hálfs bakstykkis), prjónið A.3 yfir næstu lykkju, sléttar lykkjur yfir næstu 3-5-5-7-7-9 lykkjur og aukið jafnframt út um 2-1-2-0-3-2 lykkjur jafnt yfir =114-116-122-122-134-138 lykkjur. Nú er 1 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki í stykkinu). Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju á hvorri ermi (= slétt lykkja). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram hringinn með mynstri A.1 á milli prjónamerkja á ermum og A.2/A.3 + sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru á framstykki og bakstykki – JAFNFRAMT í 2. umferð byrjar ÚTAUKNING Á ERMI – sjá útskýringu að ofan (= 4 lykkjur fleiri á hvorri ermi). Aukið svona út í 8.-8.-6.-6.-4.-4. hverri umferð alls 6-7-10-11-13-14 sinnum. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið mynstureiningu við laskalínu 7-8-9-10-11-12 sinnum til viðbótar (alls 8-9-10-11-12-13 sinnum), síðan eru fyrstu 3-3-1-1-0-0 umferðir í mynsturteikningu prjónaðar. Þegar öll útaukning hefur verið gerð á ermum, framstykki og bakstykki eru 302-328-366-390-430-458 lykkjur í umferð (það hafa verið auknar út 24-28-40-44-52-56 lykkjur á hvorri ermi og það hafa verið auknar út 35-39-41-45-48-52 lykkjur í hvorri hlið á bakstykki og framstykki). Stykkið mælist nú ca 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki sem var sett eftir kant í hálsmáli. Ef stykkið er styttra en þetta er prjónað áfram með A.1 á ermum og sléttprjón á framstykki og bakstykki að réttu máli. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 44-48-52-56-62-67 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 65-69-81-85-93-97 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9-9-9-11-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 86-95-102-110-122-132 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 65-69-81-85-93-97 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9-9-9-11-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 42-47-50-54-60-65 lykkjur sem eftir eru (= ca hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 190-208-222-242-266-290 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 22 cm. Nú er eftir ca 9 cm stroff að loka máli. Prjónið e.t.v. áfram að óskaðri lengd fyrir stroff. Til að stroffið komi ekki til með að dragast saman, aukið nú út um 20-22-24-28-28-32 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 210-230-246-270-294-322 lykkjur. Skiptið stykkinu í hvorri hlið þannig að það verða 105-115-123-135-147-161 lykkjur á bakstykki og 105-115-123-135-147-161 lykkjur á framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan hvort stykki fyrir sig. FRAMSTYKKI: Prjónið stroff fram og til baka, en byrjið frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar kanturinn mælist 9 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkju og kantlykkjur í garðaprjóni og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Prjónið stroff fram og til baka, en byrjið frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar kanturinn mælist 9 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir klukkuprjónslykkju og kantlykkjur í garðaprjóni og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 65-69-81-85-93-97 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9-9-11-11-13 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 74-78-90-96-104-110 lykkjur. Prjónið mynstur A.1 eins og áður. Mynstrið á að ganga jafnt upp alla leið umferðina hringinn. Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S og M: Prjónið áferðamynstur hringinn þar til ermin mælist 42-40 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stærð L, XL, XXL og XXXL: Prjónið áferðamynstur hringinn þar til ermin mælist 4 cm frá skiptingu. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju undir ermi. Í næstu umferð byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-4-4 sinnum = 82-88-96-102 lykkjur. Haldið áfram með áferðamynstur þar til ermin mælist 39-37-36-34 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stoneislandsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-51
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.