DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Daisy Lane Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, sléttprjóni, vösum, stuttum ermum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

DROPS 231-54
DROPS Design: Mynstur sk-164
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-300-350-350-400-450 g litur 02, perlugrár

DROPS TALA, Mocha NR 623: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir annarri hverri brugðinni einingu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 173 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 32,6.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna til skiptis 31. og 32. og 32. og 33. hverja lykkju slétt saman, lykkjum er ekki fækkað yfir lykkjur í garðaprjóni.
Ef auka á út, þá er það gert í þessu dæmi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 32. og 33. hverja lykkju, lykkjum er ekki fækkað yfir lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 7½-8 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7½-7½-8-7½-7½-8 cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna að klauf. Síðan er framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Bakstykkið er 3 cm lengra en framstykkin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Fyrst eru prjónuð 2 stykki fyrir hvorn vasa, afgangur af vösum er prjónaður eftir að peysan hefur verið prjónuð til loka og sett saman í lokin.

VASI (fyrri hluti):
Fitjið upp 28 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á sokkaprjóna / hringprjóna 4 með DROPS Sky. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorir hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11 cm, fellið kantlykkjur af = 26 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð.
Prjónið annan vasa á sama hátt.
Geymið vasana og prjónið kant í hálsmáli og berustykki. Hinn helmingurinn af þessum 2 vösum er prjónaður eftir að peysan hefur verið prjónuð til loka og sett saman í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI OG BERUSTYKKI:
Fitjið upp 119-123-131-135-143-147 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna 3 með DROPS Sky.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 3 cm, aukið út aðra hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 146-151-161-166-176-181 lykkjur. Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út þær 1 lykkja brugðið sem eftir eru til 2 lykkjur brugðið 173-179-191-197-209-215 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 8 cm, prjónið eftir stærðum þannig:

STÆRÐ XS:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 168 lykkjur.

STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 1-9-11-17-29 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 180-200-208-226-244 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Setjið eitt prjónamerki innan við kant að framan í annarri hlið á stykki.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki, prjónið mynstur þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2-0-3-2-3-2 lykkjur slétt, prjónið A.1 þar til 6-5-7-6-8-7 lykkjur eru eftir (= 31-34-37-39-42-46 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 1-0-2-1-3-2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 230-248-274-286-310-336 lykkjur í umferð.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 9-9-10-11-12-13 cm frá prjónamerki, prjónið mynstur þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 2-0-3-2-3-2 lykkjur slétt, prjónið A.2 þar til 6-5-7-6-8-7 lykkjur eru eftir (= 31-34-37-39-42-46 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið 1-0-2-1-3-2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 292-316-348-364-394-428 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist 13-13-15-16-18-20 cm frá prjónamerki.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 45-48-52-55-61-67 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-66-74-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 82-88-96-102-112-126 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 60-66-74-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 45-48-52-55-61-67 lykkjur (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 188-204-220-236-258-284 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Setjið 2 prjónamerki í stykkið mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum (= 4-5-5-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Þau eru notuð síðar þegar auka á út.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16 cm = 196-212-228-244-266-292 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-19-19-20-20-20 cm frá skiptingu.
Nú er gert op fyrir vasa og næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 17-18-19-20-21-22 lykkjur, setjið næstu 26 lykkjur á þráð (hinn helmingurinn af vasanum á að prjónast hér síðar), prjónið 26 lykkjur af þræði frá öðrum vasanum (passið uppá að prjóna frá réttu á vasanum), prjónið þar til 43-44-45-46-47-48 lykkjur eru eftir á prjóni, setjið næstu 26 lykkjur á þráð (hinn helmingurinn af vasanum á að prjónast hér síðar), prjónið 26 lykkjur af þræði frá hinum vasanum (passið uppá að prjóna frá réttu á vasanum) og prjónið síðustu 17-18-19-20-21-22 lykkjur á prjóni.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21-23-23-24-24-24 cm. Prjónið nú 4 lykkjur garðaprjón við bæði prjónamerkin – þ.e.a.s. 2 lykkjur garðaprjón hvoru megin við bæði prjónamerkin. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 4 lykkjur í hvorri hlið, skiptist stykkið fyrir bakstykki og framstykki þannig að það verða 94-102-110-118-128-142 lykkjur fyrir bakstykki og 51-55-59-63-69-75 lykkjur fyrir hvort framstykki. Prjónið nú hvert stykki fyrir sig.

BAKSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til klaufin mælist 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 15-17-19-19-21-23 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) = 109-119-129-137-149-165 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið (lykkjur í garðaprjóni eru prjónaðar eins og áður).
Prjónið nú stroff fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 8 cm. Fellið nú af með sléttri lykkju yfir snúna slétta lykkju, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni, 2 lykkjur garðaprjón að hlið og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar klaufin mælist mælist 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-7-9-9-9-11 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir lykkjur í garðaprjóni) = 58-62-68-72-78-86 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið (lykkjur í garðaprjóni eru prjónaðar eins og áður).
Prjónið nú stroff fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin brugðið, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið nú af með sléttri lykkju yfir snúna slétta lykkju, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 57-59-61-63-65-67 cm frá öxl og niður.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki.

ERMI:
Setjið 60-66-74-76-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-12-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-5-5-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með ca 2½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 5-8-8-8-8-7 sinnum = 58-60-68-72-76-82 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 13-14-12-11-10-8 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 62-64-72-78-82-88 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 17-18-16-15-14-12 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VASI (seinni hluti):
Prjónið fram og til baka á hringprjóna.
Setjið 26 lykkjur af þræði á hægra framstykki á hringprjón 4. Í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 28 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til vasinn mælist 11 cm, fellið laust af.
Prjónið vasann á vinstra framstykki á sama hátt.
Saumið vasana innan við 1 kantlykkju í kringum allan vasann. Festið síðan vasana að innanverðu á peysunni með smáu, fíngerðu spori í hvort af 2 neðstu hornunum (þetta á ekki að sjást frá réttu á peysunni).

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt án þess að sleppa lykkjunni af prjóninum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, en í aftari lykkjubogann og lyftið síðan lykkjunni af vinstra prjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri)
symbols = bakstykkið er 3 cm lengra en framstykkin. Þ.e.a.s. heildar lengd á bakstykki er 60-62-64-66-68-70 cm og stroffið neðst er 8 cm á bakstykki
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-54

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Eva Ljung wrote:

Mönster Daisy Lane Cardigan fickor på fram-bakstycke ska man sticka 20 m sen sätta 26 m på en tråd och sen sticka dem? Hur går det till? När man precis tagit av de från stickan? Med vänlig hälsning, Eva Ljung

10.04.2024 - 23:09

DROPS Design answered:

Hei Eva. Det er ikke de 26 maskene du nettopp satte på en tråd, men de 26 maskene fra tråden på den ene lommen du strikket helt i begynnelsen. Se gjerne hjelpevideoen: Hur man stickar en lös ficka på insidan av ett plagg. Ikke samme plagget, men du ser da teknikken som er brukt. Klikk på VIDEOR til høyre (eller under) for bildet. mvh DROPS Design

15.04.2024 - 09:41

country flag Angela wrote:

Vorrei realizzare questo modello taglia M, con le maniche lunghe e il filato Cotton Merino. Mi serviranno quanti grammi,per le maniche lunghe, oltre ai 600gr della conversione? Grazie

27.08.2023 - 18:28

DROPS Design answered:

Buonasera Angela, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

28.08.2023 - 23:08

country flag Lieselotte Mahal wrote:

Ich verstehe das Einstricken der Tasche nicht....gibt es ein Video

05.09.2022 - 18:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Mahal, ja sicher, hier finden Sie ein Video, das erklärt, wie die Tasche gestrickt wird. Viel Spaß beim stricken!

06.09.2022 - 09:10

country flag Siv Rosberg wrote:

Hej! I mönstret står att jag ska sticka 24cm från ärmhålet innan jag delar för sprund. På skissen visas 29 cm ner till sprundet. Vilket ska jag följa? Vänligen Siv

23.07.2022 - 21:29

DROPS Design answered:

Hej Siv, Måleskitsen viser 29 cm ned til ribben, sprundet starter før ribben :)

04.08.2022 - 07:54