Linda Irgens skrifaði:
Hej Jeg forstår ikke helt dette: "187-200-215-215-228-228 masker. Fortsæt i glatstrik og retstrik til arbejdet måler 15-15-16-17-18-19 cm, på sidste pind justeres maskeantallet til 186-198-206-210-222-230 masker." Er det en fejl at de først fem skal justeres ned og den sidste skal den justeres op? Linda
07.01.2024 - 22:10DROPS Design svaraði:
Hej Linda, det stemmer, det er for at mønsteret skal stemme hele vejen rundt :)
11.01.2024 - 14:52
Joelle skrifaði:
Pour les augmentations de l’empiècement vous dites « mesurer désormais l’empiècement à partir d’ici » et dans les paragraphes qui suivent vous dites « …jusqu’à ce que l’ouvrage mesure …. » faut-il compter le col puisque vous parlez d’ouvrage ? Merci de bien vouloir m’éclairer
05.12.2023 - 19:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Joelle, mesurez l'ouvrage à ce niveau là à partir du marqueur, toutes les mesures de l'empiècement se font à partir du marqueur. Bon tricot!
06.12.2023 - 08:12
Rosalie skrifaði:
Ik maak maat 7/8 en ben net aan de mouwen begonnen. Er staat dat ik eerst 3 cm moet breien, en dan elke 8 cm in totaal 4x moet meerderen. Daarna staat er “brei verder tot de mouw 29 cm meet vanaf de scheiding”, maar 3+(8x4) = 35 cm. De andere maten lijken hetzelfde probleem te hebben. Begrijp ik iets verkeerd, of is dit een foutje in het patroon?
21.09.2023 - 15:13DROPS Design svaraði:
Dag Rosalie,
Als je gelijk aan het begin ook een meerdering maakt en daarna steeds na 8cm, dan zitten er 3 keer 8 cm tussen.
05.10.2023 - 06:51
Monika Holmström skrifaði:
Hej, jag hittar inte mönsterbeskrivningen och hur mycket garn det behövs
24.10.2022 - 09:01DROPS Design svaraði:
Hej Monika, jo du finder al information lige under billeder: DROPS Children 41-6
25.10.2022 - 13:52
Monika Holmström skrifaði:
Hej, jag hittar inte mönstret och hur mycket garn det behövs
24.10.2022 - 08:59
Jannie Jensen skrifaði:
Måske er det bare mig, men jeg kan ikke finde A1 diagrammet eller er det mig der læser denne opskrift forkert?
11.08.2022 - 17:25DROPS Design svaraði:
Hej Jannie, du finder A.1 til højre for måleskitsen nederst i opskriften :)
12.08.2022 - 10:23
Erika skrifaði:
Hallo, ich habe in meinem wolleknäuel schon 6 knoten. Kann man die knoten in der Wolle lassen oder lösen sie sich beim waschen oder im laufe der Zeit auf? Danke für Ihre Antwort
28.01.2022 - 13:41DROPS Design svaraði:
Liebe Erika, je nach dem Knoten können Sie entweder so lassen (nur bei der Rückseite stellen) oder Faden abschneiden und wie ein neues Knäuel verbinden. Ihr DROPS Laden hat sicher noch Tipps für Sie und wird gerne Ihnen auch telefonisch oder per E-Mail helfen. Viel Spaß beim stricken!
28.01.2022 - 14:04
Red Hibiscus Jacket#redhibiscusjacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki. Stærð 3-12 ára.
DROPS Children 41-6 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur), mínus kanta að framan (= 10) og deilið þeim 62 lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 20,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 20. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 6-6½-7-8-7½-7½ cm millibili. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir berustykki. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 72-76-76-80-80-84 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan næstu umferð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 3 cm (= kantur í hálsmáli), fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 3-4-9-5-10-6 lykkjur jafnt yfir = 75-80-85-85-90-90 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hér, HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 65-70-75-75-80-80 lykkjur (= 13-14-15-15-16-16 mynstureiningar með 5 lykkjum), endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hefur verið aukið út um 26-28-30-30-32-32 lykkjur = 101-108-115-115-122-122 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni þar til stykkið mælist 7-7-7-8-9-9 cm. Prjónið nú þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan garðaprjón, 1-1-0-0-1-1 lykkjur, A.1 yfir næstu 90-95-105-105-110-110 lykkjur (= 18-19-21-21-22-22 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 0-2-0-0-1-1 lykkjur slétt og endið með 5 lykkjur garðaprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hefur verið aukið út um 36-38-42-42-44-44 lykkjur = 137-146-157-157-166-166 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-12-12-13-15-15 cm. Prjónið nú þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1-1-1-1-1-1 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 125-135-145-145-155-155 lykkjur (= 25-27-29-29-31-31 mynstureiningar með 5 lykkjum), 1-0-1-1-0-0 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hefur verið aukið út um 50-54-58-58-62-62 lykkjur = 187-200-215-215-228-228 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni þar til stykkið mælist 15-15-16-17-18-19 cm, í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 186-198-206-210-222-230 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: Prjónið 31-33-34-35-37-38 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 52-56-58-60-64-66 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44 lykkjur á nýjan þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 31-33-34-35-37-38 lykkjur (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 126-134-138-146-154-158 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-20-23-25-26-27 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð í sléttprjóni og aukið út um 10-10-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 136-144-148-156-164-168 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið nú þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið), haldið svona áfram þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl. ERMI: Setjið 36-38-40-40-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-7-8-9-10-11 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 20-25-29-31-35-38 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 23-28-32-35-39-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #redhibiscusjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.