DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Hermine Jacket

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri og klukkuprjónslykkjum á berustykki. Stærð 2 til 12 ára.

DROPS Children 41-13
DROPS Design: Mynstur z-048-bn
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-300-350-350 g litur 9020, ljós perlugrár

DROPS TALA, Mocha NR 623: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 103 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 93 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 9,3.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 9. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjum að framan.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum er í þessu dæmi prjónuð ca 8. og 9. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 6-7-8-7-8-8½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 99-101-103-107-109-111 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Prjónið 1 umferð brugðið frá réttu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni) og aukið jafnframt út um 2-6-10-12-16-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 101-107-113-119-125-131 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 30-32-34-36-38-40 mynstureiningar með 3 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Eftir þriðju umferð í A.1 eru 131-139-147-155-163-171 lykkjur í umferð. Prjónið A.1 til loka, endurtakið síðan 2 umferðir með stjörnu í A.1 þar til stykkið mælist 6-7-7-8-8-9 cm frá prjónamerki við háls – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A (= 4 lykkjur), prjónið A.2B þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 29-31-33-35-37-39 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.2A þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 247-263-279-295-311-327 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 59-63-67-71-75-79 mynstureiningar með 4 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.2A þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist
12-13-14-15-16-17 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-6-6-2-6-2 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 257-269-285-297-317-329 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 41-43-46-48-51-53 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 52-54-56-58-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 71-75-81-85-91-95 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 52-54-56-58-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 41-43-46-48-51-53 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 165-173-185-193-205-213 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Prjónið þar til stykkið mælist 16-19-22-24-27-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Til að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman, aukið út lykkjur eins og útskýrt er að neðan.
Prjónið 1 umferð slétt frá rétu þar sem aukið er út um 24-24-26-26-30-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 189-197-211-219-235-243 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm.
Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón og sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 52-54-56-58-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 - prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-60-62-64-68-70 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-3½-4½-4½-5 cm millibili alls 5-5-5-5-6-6 sinnum á hæðina = 48-50-52-54-56-58 lykkjur.
Prjónið áfram án úrtöku þar til ermin mælist 18-22-26-29-32-36 cm frá skiptingu.
Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 21-25-29-33-36-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan þessa lykkju (þessi lykkja er núna kölluð klukkuprjónslykkja)
symbols = Aukið út um 4 lykkjur í 1 klukkuprjónslykkju með því að prjóna 5 lykkjur í sömu lykkju þannig (frá réttu):
Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan þessa lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjunni af vinstra prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju án þess að lyfta lykkjunni af vinstra prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, lyftið síðan lykkjunni af vinstra prjóni = 5 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur fleiri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
symbols = 1 mynstureining á hæðina
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Andreani wrote:

Bravo a drops design pour les modeles et leurs explications via les tuto

27.02.2023 - 21:29

country flag Andreani wrote:

J ai realise ce modele avec deux types de laine il est tres reussi surtout avec lalpaga tres doux au toucher et tres souple les explications sont bien faites . bonne idee des tuto pour les debutantes bravo a drops

27.02.2023 - 21:27

country flag Ester wrote:

Increase 4 stitches by working 5 stitches in the Fisherman’s rib stitch as follows (from the right side): Knit 1 in the stitch below this stitch, but do not slip the stitch from the left needle, * make 1 yarn over, knit 1 in the same stitch but do not slip the stitch from the left needle *, work from *-* 1 more time, then slip the stitch from the left needle = 4 stitches increased. Can you please explain this one more time?

05.12.2022 - 07:06

DROPS Design answered:

Hi Ester, You are working 4 extra stitches in one and the same stitch (the Fisherman's rib stitch). You first knit the stitch as normal but do not slip it from the left needle, make 1 yarn over and knit the same stitch again, make 1 yarn over and knit the stitch 1 more time . So you now have 3 knitted stitches and 2 yarn overs on the right needle and can slip the Fisherman's rib stitch from the left needle. As you would have had 1 knitted stitch (if you had not done all the increases) this means you have increased 4 stitches. Happy knitting!

06.12.2022 - 06:54

country flag Chantal Lessard wrote:

Bonjour, je n'ai pas d'aiguilles 2.5mm circulaire, est-ce que je peux commencer le col avec des aiguilles double pointe ? car il se travaille en aller-retour. Merci beaucoup de votre aide. Chantal

04.11.2022 - 13:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lessard, si vous avez des aiguilles droites en 2,5 elles seront plus pratiques, mais si vous n'avez que des doubles pointes en 2,5 ça le fera aussi, répartissez bien vos mailles pour ne pas en perdre et rappelez-vous de bien tourner pour tricoter alternativement sur l'endroit et sur l'envers. Bon tricot!

04.11.2022 - 13:57

country flag María José wrote:

No entiendo la explicación del canesú del patrón z-048-bn Si hago la labor como la entiendo, no se parece a la fotografía. No sé dónde estoy fallando

28.09.2022 - 18:52

DROPS Design answered:

Hola María José, ¿puedes concretar en qué apartado del canesú tienes problemas?

03.10.2022 - 00:00

country flag Maryse wrote:

(suite) par ailleurs je crois qu'il y a confusion ensuite entre A2 A et A2B merci d'éclaircir ce point aussi

18.12.2021 - 08:38

DROPS Design answered:

Bonjour Maryse, lorsque vous avez répété les 2 derniers rangs de A.1 jusqu'à ce que votre ouvrage mesure 6-7-7-8-8-9 cm depuis le marqueur, tricotez A.2A (= 4 m) au-dessus du 1er A.1 du rang (sur l'endroit), et tricotez A.2B au-dessus de chaque A.1 jusqu'à la fin du rang, et terminez par la 1ère m de A.2A (au-dessus de la 1ère m de A.1 = la même maille = 1 m en côte anglaises), ainsi vous augmentez dans chaque A.1 sauf dans le 1er et vous avez ensuite 8 m dans chaque A.2B et tout le rang (1 m en côtes anglaises, 3 m env), vu sur l'endroit. Bon tricot!

20.12.2021 - 07:18

country flag Maryse SIKSOU wrote:

Bonjour je ne suis pas certaine de comprendre l'empiècement Après avoir fait A1 et A1*(4 mailles) on doit reprendre le motif sur 3 mailles avant de passer à A2 ? merci de votre retour

18.12.2021 - 08:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Siksou, quand A.1 a été tricoté entièrement en hauteur (= 6 rangs), répétez les 2 derniers rangs de A.1 (= ceux marqués par une étoile) jusqu'à la hauteur indiquée, puis tricotez A.2A et A.2B (vous allez augmenter dans A.2B). Bon tricot!

20.12.2021 - 07:15

country flag Duverger wrote:

Traduire en français

28.11.2021 - 18:10

DROPS Design answered:

Bonjour Duverger, vous pouvez trouver le trouver ici: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=10510&cid=8 Bon tricot!

28.11.2021 - 18:36