DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Hermine

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri og klukkuprjónslykkjum á berustykki. Stærð 2 til 12 ára.

DROPS Children 41-14
DROPS Design: Mynstur z-051-bn
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-300-350-350 g litur 9020, ljós perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 9,2.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 9. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 8. og 9. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-90-92-96-98-100 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Prjónið 2 umferðir brugðið og aukið jafnframt út um 2-6-10-12-16-20 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 90-96-102-108-114-120 lykkjur. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið A.1 hringinn (= 30-32-34-36-38-40 mynstureiningar með 3 lykkjum).
Eftir þriðju umferð í A.1 eru 120-128-136-144-152-160 lykkjur í umferð.
Prjónið A.1 til loka, endurtakið síðan 2 umferðir með stjörnu í A.1 þar til stykkið mælist 6-7-7-8-8-9 cm frá prjónamerki mitt að aftan – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú A.2 hringinn (= 30-32-34-36-38-40 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 240-256-272-288-304-320 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan A.3 hringinn (= 60-64-68-72-76-80 mynstureiningar með 4 lykkjum).
Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá prjónamerki mitt að aftan.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-0-0-0-0 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 244-260-272-288-304-320 lykkjur.
Prjónið nú sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki mitt að aftan.
Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 35-38-40-43-45-48 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 52-54-56-58-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-76-80-86-90-96 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 52-54-56-58-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 35-38-40-43-45-48 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 152-164-172-184-192-204 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 16-19-22-24-27-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Til að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman, aukið út lykkjur eins og útskýrt er að neðan.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-24-26-28-28-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 174-188-198-212-220-234 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 52-54-56-58-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 - prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-60-62-64-68-70 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-3½-4½-4½-5 cm millibili alls 5-5-5-5-6-6 sinnum á hæðina = 48-50-52-54-56-58 lykkjur.
Prjónið áfram án úrtöku þar til ermin mælist 18-22-26-29-32-36 cm frá skiptingu.
Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm til loka máls, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 21-25-29-33-36-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins.

Mynstur

symbols = brugðin lykkja
symbols = slétt lykkja
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan þessa lykkju (þessi lykkja er núna kölluð klukkuprjónslykkja)

symbols = aukið út um 4 lykkjur í 1 klukkuprjónslykkju með því að prjóna 5 lykkjur í sömu lykkju þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan þessa lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjunni af vinstra prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju án þess að lyfta lykkjunni af vinstra prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, lyftið síðan lykkjunni af vinstra prjóni = 5 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur fleiri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
symbols = 1 mynstureining á hæðina
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Hermine

Enredadaenmisovillos, Spain

Hermine Sweater

Elke, Netherlands

Hermine

Yuliya, Russian Federation

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Mamen wrote:

Hola. Querría saber si existe una versión para mujer de este patrón (lo estoy tejiendo para mi hija y quiero uno a juego para mí). Gracias.

05.11.2023 - 17:04

DROPS Design answered:

Hola Mamen, puedes buscar patrones en punto inglés para mujer (como este: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=11046&cid=23) y trabajar el que prefieras. También puedes buscar cualquier jersey con canesú redondo para mujer y aplicar el patrón utilizado en el canesú para el patrón de niños en el de mujer, con diferente número de repeticiones del patrón.

05.11.2023 - 19:56

country flag Nell Di Francesco wrote:

Bonjour! C'est le premier pull que je fais et la seconde fois que je suis un modèle. Je ne comprends pas le 4ème tour de A1. On passe de 1 maille endroit et 3 mailles envers à 1 maille double et 2 mailles envers avec 1 jeté entre. Dans ce cas-là, comment obtenir le même résultat que sur la photo ? Faire ce motif comme indiqué sur 3 mailles décale ma ligne de "tresses".

30.08.2023 - 00:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Di Francesco, au 3ème tour de A.1, vous tricotez: 1 m côtes anglaises, 1 m env, 1 jeté, 1 m env. Au 4ème tour de A.1, vous allez tricoter: 1 m end, 1 m env, tricotez le jeté torse à l'envers, 1 m env=> vous avez maintenant 3 mailles envers entre les mailles en côtes anglaises. Bon tricot!

30.08.2023 - 09:03

country flag Sara wrote:

Hi, I wanna make the 10 years pattern but with 20 sts for 10 cm gauge. So how should I adjust the pattern?!

03.05.2023 - 15:46

DROPS Design answered:

Dear Sara, you can take inspiration from another pattern with the same tension to adjust number of stitches - see all our jumpers for children with tension 22-20 here. Happy knitting!

04.05.2023 - 07:48

country flag Aline Houle wrote:

Je trouve votre pull très beau et intéressant. Peut-il être fait en modèle robe? Si oui comment faire pour qu'il soit bien ajusté (plus étroit au corps) Je cherche vraiment un modèle avec manches raglan style étroit pour fille ¢ a 5 ans. Merci beaucoup a l'avance.. Super beau pull...

05.09.2022 - 13:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Houle, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, mais vous pourrez découvrir ici tous nos modèles de robes en 5 ans, vous y trouverez sans doute l'inspiration. Bon tricot!

05.09.2022 - 13:53

country flag Marie Andreani wrote:

Bravo pour les modeles et pour les explications Une fan de drops

29.08.2022 - 00:31

country flag Anja Banach wrote:

Hallo, im Rumpfteil müssen 22 Maschen zugenommen werden. Muss ich das auf Brusthöhe oder unten am Bund machen?

15.01.2022 - 18:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Banach, die 22 Maschen nehmen Sie in die 1. Größe wenn der Rumpfteil 16 cm (ab Verteilung) misst, und in der ganzen Runde, nicht nur über das Vorderteil - diese Lektion kann Ihnen damit helfen. Viel Spaß beim stricken!

17.01.2022 - 08:23

country flag Chantal Bouchet wrote:

Bonjour je voudrais savoir comment faire apres un pull commencé par le col que les cotés restent bien droit? que cela ne part pas évasé merci chantal

09.12.2021 - 06:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bouchet, je ne suis pas bien sûre de comprendre votre question, de quels côtés parlez-vous? Est-ce que cette leçon pourrait vous aider à visualiser?

09.12.2021 - 07:44

country flag Rennie Koonstra wrote:

Ik snap patroon A1 van breipatroon z-051-bn niet De ie nld moet ik 3 st av, 1 st r Dan de 2e ndl 3 st av en dan recht breien in de steek eronder, die gaat dan naar de rechternld, 1 omslag wat doe ik met die bovenste st, doe ik die ongebreid naar de rechternld? Dan past nld 3, niet meer met 3 av, 1 recht

14.11.2021 - 21:38

DROPS Design answered:

Dag Rennie,

Je leest het telpatroon van onder naar boven en van rechts naar links, dus je breit eerst het hokje rechts onder in het telpatroon, dan het hokje wat er links naast staat, etc.

17.11.2021 - 16:40

country flag Sylvia Gilbert wrote:

I have purchased 6 balls (I think 50g balls) of Drops Alpacca wool to knit a jumper for a 5 - 6 year old. My wool has arrived and it appears much finer ply than I thought it would be. I see the pattern above 'Hermine' which I like and would like to do this or if you have another pattern for just a plain raglan or set in sleeve jumper? Have I enough wool for either?

12.11.2021 - 01:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gilbert, you will find all patterns for children worked with a yarn group A - such as Alpaca here - what about this one? Use our converter to get the new amount in Alpaca. Happy knitting!

12.11.2021 - 07:46