DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Snow Baby

Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki, buxur, húfa, sokkar úr DROPS Alpaca ásamt bolta, hringlu og teppi.

DROPS Baby 13-18
DROPS design: Modell nr z-020-by
--------------------------------------------------------

Peysa, buxur:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)

Húfa:
Stærð 1/3 - 6/9 - 12/18 mán
Höfuðmál: ca 40/42 - 42/44 - 44/46 cm

Sokkar:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán
Lengd á fæti: 10-11-12 cm

Garn í allt settið:
250-250-300 (350-400) gr litur nr 100, natur

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio

Peysa:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-100-150 (150-200) gr litur nr 100, natur

Buxur:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-150-150 (150-200) gr litur nr 100, natur

Húfa:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50-50-50 gr litur nr 100, natur

Sokkar:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50-50-50 gr litur nr 100, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR og SOKKAPRJÓNAR nr 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL nr 2,5.
DROPS PERLUTALA, nr 523: 5 stk
FYLGIHLUTIR: Silkiborði; ca 80 cm fyrir húfu og 2 x 50 cm fyrir sokka.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1-M.4. Mynsturteikning sýnir mynstur frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. og 4. l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagati þegar 1 cm er eftir á undan kraga:
1/3 mán: 4, 10, 16, 22 og 26 cm.
6/9 mán: 5, 11, 17, 23 og 28 cm.
12/18 mán: 6, 13, 20, 27 og 32 cm.
2 ára: 9, 16, 23, 30 og 36 cm.
3/4 ára: 9, 17, 25, 33 og 39 cm.

ÚRTAKA-1 (á við um kraga á peysu):
Öll úrtaka er gerð í byrjun umf.
Fækkið um 1 l í byrjun umf þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um buxur):
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki: 2 l slétt saman.
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki: 2 l snúnar slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um kraga á peysu):
Aukið út um 1 l með því að taka þráðinn upp á milli 2 l og prjóna þá lykkju snúna slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki: Stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp með tveimur prjónum (notið t.d. 2 hringprjóna í saman grófleika) og fitjið upp 163-180-197 (214-231) l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) í hring á 2 prjóna (þetta er gert svo að kanturinn verði teygjanlegri). Dragið annan prjóninn út og prjónið 2 umf slétt. Prjónið síðan M.1 þrisvar sinnum á hæðina með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Eftir M.1 eru prjónaðar 2 umf í sléttprjóni (kanturinn heldur áfram að vera í garðaprjóni til loka) – jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 148-166-184 (196-214) l í 1. umf (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan). Setjið 1 prjónamerki í 39-44-49 (51-56) l inn frá hvorri hlið = 70-78-86 (94-102) l á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið nú M.2 með 5 kantlykkjum í hvorri hlið. Jafnframt þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin í 3.-3.-4. (4.-5.) hverjum cm alls 4 sinnum = 132-150-168 (180-198) l – þær l sem ekki ganga upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni, passið uppá að mynstrið passi eins og áður. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – í hægri kant að framan. Þegar stykkið mælist ca 16-17-20 (23-25) cm – passið uppá að prjónaðar verði 2 umf í sléttprjóni eftir 1 umf með götum – fellið af 10 l í hvorri hlið fyrir handvegi (þ.e.a.s. 5 l hvoru megin við prjónamerkin) = 52-60-68 (76-84) l á bakstykki og 30-35-40 (42-47) l á hvoru framstykki.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið laust upp 36-36-42 (42-42) l á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, haldið áfram með M.2. Jafnframt þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi í 4.-7.-5. (5.-5.) umf alls 8-10-10 (13-15) sinnum = 52-56-62 (68-72) l – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar stykkið mælist 15-16-19 (23-27) cm eru felldar af 10 l mitt undir ermi = 42-46-52 (58-62) l.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermarnar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 196-222-252 (276-302) l. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið síðan 1 umf slétt frá réttu jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 186-218-250 (266-298) l (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan). Prjónið síðan og fækkið lykkjum samkvæmt M.3 (þær 5 kantlykkjur í hvorri hlið halda áfram eins og áður) – endið mynstrið við ör í réttri stærð. Eftir M.3 eru 109-114-115 (122-136) l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 72-76-82 (86-92) l.

KRAGI:
Fellið af síðustu 3 l í hvorri hlið = 66-70-76 (80-86) l. Prjónið garðaprjón – jafnframt í 3. umf er aukið út um 1 l í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING! Aukið út á milli 2 fyrstu og 2 síðustu l í umf í annarri hverri umf alls 3 sinnum. Jafnframt þegar kraginn mælist 2 cm eru sett 3 prjónamerki í stykkið (1 við hvora öxl og 1 fyrir miðju að aftan). Aukið nú út um 1 l hvoru megin við öll prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING.
Endurtakið útaukningu eftir 4 umf = 84-88-94 (98-104) l. Þegar kraginn mælist 5 cm er fækkað um 1 l síðast í hvorri hlið í annarri hverri umf 3 sinnum – sjá ÚRTAKA-1= 78-82-88 (92-98) l. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum og saumið tölur í.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið í kringum kraga þannig: 1 fl í fyrstu l, * 3 ll, 1 st í fyrstu ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*.
Heklið neðst í kring á ermum þannig: 1 fl í fyrstu l, * 5 ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður í hring á hringprjóna, skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BUXUR:
Byrjið efst fyrir miðju og prjónið niður.
Fitjið upp 120-128-136 (140-144) l á hringprjóna nr 2,5. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Haldið áfram í sléttprjóni jafnframt sem aukið er út jafnt yfir til 156-168-180 (192-204) l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja að aftan og 1 prjónamerki á eftir 78-84-90 (96-102) l = miðja að framan.
Prjónið M.2 jafnframt sem upphækkun að aftan er prjónuð þannig: Prjónið 12 l, snúið stykkinu við (til þess að koma í veg fyrir göt er fyrsta l tekin óprjónuð þegar prjónað er til baka og hert er á þræði). Prjónið 24 l, snúið við. Haldið svona áfram með því að prjóna 12 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við 8-10-10 (12-12) sinnum til viðbótar. Prjónið síðan í hring yfir allar l. Þegar stykkið mælist 12-15-16 (17-18) cm (mælt fyrir miðju að framan) aukið út um 1 l hvoru megin við 2 miðju-l að framan í annarri hverri umf alls 10 sinnum (aukið út með því að taka upp l frá fyrri umf og prjónið hana slétt) = 176-188-200 (212-224) l. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-21-22 (23-24) cm fyrir miðju að framan. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 3 l, prjónið 82-88-94 (100-106) l, fellið af 6 l, prjónið 82-88-94 (100-106) l, fellið af 3 l. Hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig.

SKÁLM:
Setjið l af annarri skálminni á þráð og l af hinni skálminni er skipt á sokkaprjóna nr 2,5 = 82-88-94 (100-106) l. Prjónið í hring á sokkaprjóna (mynstrið heldur áfram eins og áður) – setjið 1 prjónamerki innan á skálm = byrjun umf. Þegar skálmin mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkið – sjá ÚRTAKA-2 að ofan – með 2-2-2½ (2½-3) cm millibili alls 4-5-6 (7-8) sinnum = 74-78-82 (86-90) l. Þegar skálmin mælist 10-13-16 (21-26) cm prjónið M.4 (byrjið neðst í mynstri). Prjónið nú 1 umf í sléttprjóni jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 60-64-68 (72-76) l. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 10 cm og fellið síðan laust af með stroffi.
Prjónið hina skálmina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op á milli skálma. Brjótið uppá stroffið neðst á skálmum.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

HÚFA:
Fitjið upp 82-88-100 l á prjóna nr 2,5.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – jafnframt er gert 1 gat í hvorri hlið í 6. hverri umf með því að fella af 3. l frá kanti og fitja upp 1 nýja l yfir l sem felld var af í næstu umf.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 6 cm er prjónað M.2 með 5 l garðaprjón í hvorri hlið (götin halda áfram í 6. hverri umf) þar til stykkið mælist 14-15-16 cm. Passið uppá að það séu 2 umf í sléttprjóni á eftir síðasta gatamynstri. Jafnframt í síðustu um eru felldar af 5 l garðaprjón í hvorri hlið og lykkjum er fækkað til 70-80-90 l. Setjið 5 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki eftir 1 l, síðan eiga að vera 14-16-18 l á milli merkja, það verða þá 13-15-17 l á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið garðaprjón jafnframt sem því sem lykkjum er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki í annarri hverri umf alls 12-14-16 sinnum = 10 l eftir á prjóni.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kant í garðaprjóni neðst á húfunni fyrir miðju að aftan í ysta lykkjubogann.

Heklið með heklunál nr 2,5 meðfram uppfitjunarkanti á húfunni þannig: 1 fl í fyrstu l, * 5 ll, hoppið yfir 2 l og festið með 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. Heklið alveg eins í kringum mynstureiningu í garðaprjóni aftan á húfunni. Brjótið kantinn að framan í garðaprjóni tvöfaldan að réttu og saumið niður neðst í hvorri hlið.
Þræðið silkiborða í neðri kant á húfunni.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan.

SOKKUR:
Fitjið upp 68-68-68 l á 2 sokkaprjóna nr 2,5.
Dragið annan sokkaprjóninn út og prjónið 2 umf slétt. Prjónið M.1 5-6-7 sinnum á hæðina (stykkið mælist ca 5-6-7 cm). Prjónið nú 1 umf slétt frá rétu jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 34-38-42 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: 1 kantlykkja, * 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kantlykkju. Prjónið aftur 1 umf slétt frá röngu, setjið síðan síðustu 12-13-15 l í hvorri hlið á þráð = 10-12-12 l á prjóni. Prjónið garðaprjón í 4-4½-5 cm yfir þessar l. Setjið síðan l af þræði til baka á prjóninn, prjónið að auki upp 10-11-13 l hvoru megin við miðju stykki = 54-60-68 l alls á prjóni. Prjónið 3-4-5 cm í garðaprjóni yfir allar l jafnframt eftir 1½-2-2½ cm er lykkjum fækkað í annarri hverri umf til loka þannig: Fækkið um 1 l í byrjun og í lok umf og prjónið saman 2 l sl hvoru megin við 2 miðju-l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið sauminn undir fæti og upp meðfram miðju að aftan yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Þræðið silkiborða í gegnum gataumferð.

Prjónið annan sokk á sama hátt.
----------------------------------------------------------

TEPPI:
Sjá mynstur undir DROPS Baby 13-22

BOLTI OG HRINGLA:
Sjá mynstur undir DROPS Baby 13-32

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, sláið uppá prjóninn
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

b13-18 Jacket, pants, socks

Мария, Russian Federation

Snow Baby

Joej5, France

Snow Baby

JoeJ5, France

Snow Baby

Yuliya, Russian Federation

b13-18 Snow Baby

Lena, Sweden

b13-18 Snow Baby

Kim, United States

b13-18 Snow Baby

Selina, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 13-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (136)

country flag Quratulain Qamar wrote:

Thank you so much for answering the earlier question. I love this pattern. I am almost finished with the sweater. I have 2 questions 1 Where can I post he picture 2. My bottom border curls over no matter what, what did I do wrong? how is your border loking so straight? Much appreciate your beautiful designs

16.11.2023 - 13:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Qamar, you can just block the jacket: wet it or wash it (always follow washing instructions) and let it dry flat, using pins if necessary. You can send us a link to add your project to our #dropsfangallery - read more here. Happy knitting!

17.11.2023 - 08:03

country flag Quratulain Qamar wrote:

Collar. "At the same time, when collar measures 2 cm / 3/4'', insert 3 markers in piece, 1 by each shoulder and 1 mid back." this is so vague. Can you please say after how many stitches . The sleeves and back and front are all on the same needle plus this is the yoke so where are the shoulders?

15.11.2023 - 11:29

DROPS Design answered:

Dar Mrs Qamar, lay the piece flat and just follow the shoulders on your piece and insert a marker there (make sure there is the same number of sts before 1st marker at the beg of the round and after 2nd marker at the end of the round), then count the number of stitches between shoulders and insert a 3rd marker here for mid back. Happy knitting!

16.11.2023 - 09:15

country flag Eva wrote:

Hej! Jag har stickat hättan men förstår inte riktigt monteringsanvisningen. Finns det fler bilder? Hur ska den se ut bakifrån?

22.08.2023 - 21:57

DROPS Design answered:

Hei Eva. Har kun det ene bildet bakfra som du ser øverst på oppskriften (bilde nr. 3), men der ser du fint hvordan den ser ut på baksiden. Når du har strikket ferdig luen, syr du rillekantene sammen (de 5 maskene i hver side). Så bretter du rillekanten dobbelt mot retten og syr fast nederst i hver side. Tre 1 silkebånd i nederkant av kysen. mvh DROPS Design

28.08.2023 - 11:30

country flag Leah G wrote:

M1 graph says the pattern is over 17 stitches but I don't understand how. 3 knit togethers, 6 yo and 3 knit togethers adds up to 18, not 17.

14.04.2023 - 15:47

DROPS Design answered:

Dear Leah, you work: k2tog 3 times (over 6 stitches) and 6 yarn overs, with 5 knit stitches between the yarn overs and k2tog 3 times. Since you have decreased 6 stitches and increased 6 stitches, the number of stitches remains the same (remember that yarn overs are worked between stitches and not in them). Happy knitting!

16.04.2023 - 19:45

country flag Angela wrote:

I cannot for various reasons understand graphs not matter how much I’d love to… are they available as written patterns? I miss out on all of your wonderful patterns with diagrams and it’s soul destroying. I can’t be the only one can I who struggles? Thank you

16.10.2022 - 03:24

DROPS Design answered:

Dear Angela, these patterns are only available in the format that you can see online. If you have trouble understanding the graphs, you can try reading the following lesson in case they can help you: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. Happy knitting!

16.10.2022 - 23:09

country flag Terezia Cifrova wrote:

Nechápem.kabatik snou baby.zacinam na napr.168 ociek.potom nikde neuberam a mám pribrať na 148 očká kde sa stratili tie zvyšné.dakujem

16.04.2022 - 14:35

DROPS Design answered:

Dobrý den, v návodu byla chyba. Nahodíte např. na 163 ok a později upravíte počet ok na 148, tj. ujmete rovnoměrně 15 ok. Ať se daří!

09.05.2022 - 14:35

country flag Gail wrote:

Socks: After putting stitches on holder, do I cut yarn to knit the 10 remaining? \r\nOnce I knit the 4 cm on the 10 stitches, do I cut the yarn to pick up the stitches on the side?

05.04.2022 - 23:17

DROPS Design answered:

Dear Gail, yes, you can cut the yarn and then join it to work the middle 10 stitches. After you have worked 4 cm in garter stitch over these 10 stitches, cut the yarn aain. Then continue working from first stitch on the right side of the middle part, joining the yarn and working the 12 sts on a thread, picking up sts, etc. Happy knitting!

06.04.2022 - 07:59

country flag Ilse wrote:

Hallo, liebe Fachleute, ich habe eine Frage zum Muster 3. In Reihe 16 sollen zwei Umschläge direkt nacheinander erfolgen oder ist eine rechte Masche dazwischen zu stricken?

26.03.2022 - 13:08

DROPS Design answered:

Liebe Ilse, es gibt 1 rechte Masche dazwischen, dh: 2 Maschen rechts zusammen, 1 Umschlage, 1 Masche rechts, 1 Masche rechts abheben , 1 Masche rechts stricken und die abgehobene M darüber ziehen. Viel Spaß beim stricken!

28.03.2022 - 08:35

country flag Kina wrote:

Stickar koftan :) är de 10 kantmaskorna medräknade i uppläggningen ”163” el skall jag lägga till dessa :)

19.08.2021 - 18:38

DROPS Design answered:

Hej Kina. Kantmaskorna är medräknade, så du lägger upp totalt 163 maskor. Mvh DROPS design

20.08.2021 - 09:06

country flag Marit Hetlevik wrote:

Skal strikke jakken snow baby, får ikkje mønsteret til og stemme, der det skal strikkes 2 rs kast 2vrs, første omg går fint. Men når eg begynner med 2 omg av mønsteret blir da feil. (Kast 2vrs - 2rs ikkje nåk masker. Mvh Marit

18.10.2020 - 21:09

DROPS Design answered:

Hej Marit, skriv hvilket diagram og hvilken pind, så skal vi forklare :)

22.10.2020 - 12:29