Caroline skrifaði:
Hei. Lurte på om dere kunne kommen med Run Run Rudolph heldress i mindre størrelser? Feks 1-3 mnd og 3-6 mnd?
21.05.2024 - 15:17DROPS Design svaraði:
Hej Caroline, vi sætter det på ønskelisten og så kan det være du kan bruge maskeantallet fra DROPS Baby 20-23 så længe :)
23.05.2024 - 11:23
Brigitte Keslich skrifaði:
Hallo, kann es sein, dass ein Fehler im Diagramm A1 12/18+2 in der zweiten Reihe ist. In der Reihe 1 wird 1 Masche pro Diagramm zugenommen. In Reihe sind es auf einmal 2 Maschen mehr. Gibt es hierzu eine Korrektur?
12.07.2022 - 21:54DROPS Design svaraði:
Liebe Brigitte, In der ersten Reihe sind 2 Zunahmen: eine nach der ersten Masche von A.1 und die andere am Ende des Rapports, nach der 6. Masche.
24.07.2022 - 20:10
Anne skrifaði:
Hallo, ich will jetzt die Passe stricken. Muss ich mit A2 anfangen und danach A1 und A2 im Wechsel ?
12.10.2021 - 23:25DROPS Design svaraði:
Liebe Anne, die Passe stricken Sie so: 5 Blenden-Maschen krausrechts, wiederholen Sie jetzt Diagram A.1 bis 6 Maschen übrig sind (= je nach der Größe 11 oder 12 Rapporte à 6-7 Maschen), dann stricken Sie A.2 (= 1 Masche) und 5 BlendenMaschen kraus rechts. Bei den Rückreihen stricken Sie: A.2, dann A.1 wiederholen aber jetzt von links nach rechts lesen. Viel Spaß beim stricken!
13.10.2021 - 08:09
Margaretha Olsson skrifaði:
Såg just var jag gjort fel!
26.02.2021 - 15:56
Margaretha Olsson skrifaði:
Fastnar på mönstret A1 3/4 år. 4e varvet ser ut att vara en maska mer i rapporten än vad det blir med bara en ökning i rapporten på varv 3. Jag får inte ihop det.
26.02.2021 - 15:52DROPS Design svaraði:
Hej Margaretha. Du har 2 ökningar på varv 3 i diagram A.1. Du har ett omslag mellan maska nr 1 och 2 och ett omslag efter sista maskan i diagrammet. Mvh DROPS Design
01.03.2021 - 09:52
Ginet DuPerron skrifaði:
Vraiment original et très chaud.
17.08.2020 - 20:07
Run Run Rudolph#runrunrudolphonesie |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaður galli fyrir börn með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 12 mán – 6 ára.
DROPS Children 32-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan): Allur kanturinn að framan er prjónaður með litnum ljós brúnum. Þ.e.a.s. notið 1 dokku af litnum ljós brúnn í hvorn kant að framan þegar þess er þörf (þ.e.a.s. í umferð þar sem ljós brúnn er ekki hluti af mynstri). Skipt er um þráð á milli kants að framan og berustykkis (þetta er gert svona til þess að forðast að festa þræði út á kanti að framan). Þegar skipt er um þræði eru þræðirnir tvinnaðir saman með hverjum öðrum svo að lykkjurnar hangi saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (= 74 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 10,6. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 9. og 10. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert til skiptis á eftir ca 10. og 11. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat – ATH: Ekki er lykkjum fækkað/aukið út yfir kanta að framan). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi og innan á skálm): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu eftir 1½-2 cm í kanti á hálsmáli, síðan er fellt af fyrir næstu 4-5-6-6 hnappagötum með ca 8-8-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Einfaldara er að stilla lengd á ermum og skálmum ef stykkið er prjónað ofan frá og niður og því er gallinn prjónaður ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum ljós brúnn. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 7-5-4-1 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 77-83-88-95 lykkjur. Prjónið síðan upphækkun aftan í hnakka í sléttprjóni þannig (þetta er gert til að flíkin passi betur): Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur í umferð, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur í annarri hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur í annarri hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur í umferð, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni – ATH: Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11-12-11-12 mynstureiningar með 6-6-7-7 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 187-203-220-239 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið með litnum ljós brúnn. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 7-7-10-7 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 194-210-230-246 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 13-14-15-16 cm mælt fyrir miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli). Nú skiptist stykkið þannig: Prjónið 29-31-34-36 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 52-56-62-66 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið þær 29-31-34-36 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki) = 122-130-142-150 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í 32-34-37-39 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 58-62-68-72 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka með sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 10-10-12-12 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-20-24-24 cm frá skiptingu = 130-138-150-158 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-35-38 cm frá skiptingu, endið kant að framan við miðju að framan. Fellið af fyrstu 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 124-132-144-152 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur í 3 cm – stykkið mælist nú 32-34-38-41 cm frá handveg og 45-48-53-57 cm frá miðju að framan (mælt án kants í hálsmáli). Nú skiptist stykkið fyrir skálmar. SKÁLM: Byrjið við miðju að framan, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið sléttprjón hringinn yfir fyrstu 62-66-72-76 lykkjur (þær 62-66-72-76 sem eftir eru hvíla nú á prjóninum). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= innanverðu á skálm). Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur að innanverðu á skálm – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona hverri umferð alls 2-3-3-3 sinnum = 58-60-66-70 lykkjur. Fækkið lykkjum áfram í hverri 4-5-7-9 umferð alls 8-7-8-8 sinnum = 42-46-50-54 lykkjur. Þegar skálmin mælist 13-18-25-31 cm frá skiptingu, aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm eða að óskaðri lengd. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 65-70-75-80 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið lykkjur af hringprjóni á sokkaprjón 4 og prjónið hina skálmina á sama hátt. Allur gallinn mælist ca 71-79-93-103 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið lykkjur af öðrum þræðinum á sokkaprjón 4 og prjónið að takið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-56-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 lykkjur (= mitt undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós brúnn. Þegar ermin mælist 2-2-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-4.-4. hverri umferð alls 7-9-10-12 sinnum = 34-34-36-36 lykkjur. Þegar ermin mælist 10-12-15-18 cm frá skiptingu, aukið út um 6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm eða að óskaðri lengd. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 50-50-55-55 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. SNOPPA: Heklið með litnum rauður með heklunál 3 þannig: Heklið 4 loftlykkjur og 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, klippið frá og festið enda. Heklið 1 snoppu á hvert hreindýr (= 11-12-11-12 snoppur). Hnýtið snoppurnar á hvert hreindýr og festið enda. FRÁGANGUR: Leggið hægri kant að framan yfir vinstri kant að framan og saumið niður með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #runrunrudolphonesie eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 32-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.