Anne Oldfield skrifaði:
How do I know how much yarn is required. I cannot see it but this is the first pattern of yours I have looked at seriously.
28.11.2017 - 16:20DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Oldfield, you will find total weight of yarn required in each size under tab "Materials", ie 600 g Karisma in size S / 50 g a ball Karisma = 12 balls Karisma are required in size S. Happy knitting!
29.11.2017 - 08:17
Philippe Molle skrifaði:
Bonjour Je pense qu'il y a une erreur dans l'explication du point ci-dessous. Pour moi la maille à reprendre est à tricoter à l'envers et non pas à l'endroit.Déjà deux erreurs dans les explications (voir commentaire précédent ) !!!! Cordialement Philippe = placer 1 maille sur l'aiguille auxiliaire derrière l'ouvrage, tricoter 3 mailles endroit, reprendre la maille en attente et la tricoter à l'endroit
23.10.2017 - 10:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Philippe, vous avez raison, la correction du 5ème symbole a été faite, merci pour votre aide. Bon tricot!
23.10.2017 - 12:11
Molle Philippe skrifaði:
Bonjour La troisième ligne du chapitre Diagramme ne correspond à aucun point du tricot. N'y a t il pas une erreur? Merci de vérifier. Cordialement Philippe
19.10.2017 - 14:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Philippe, il semble que vous avez raison, le diagramme et la légende vont être vérifiés, merci pour votre retour.
19.10.2017 - 16:56
Anna De Angelis skrifaði:
Perché tutti i Vostri modelli sono lavorati con ferri circolari? Io non riesco a realizzarli;come posso fare per lavorarli con i due ferri? Mi piacerebbe tanto!!!! Grazie e Buone Feste Anna De Angelis
11.10.2017 - 12:12DROPS Design svaraði:
Buongiorno Anna. I ferri circolari sono molti diffusi soprattutto nel nord Europa. Generalmente i modelli lavorati in ferri di andata e ritorno possono essere lavorati sui ferri dritti senza modificare le spiegazioni. Al seguente link trova indicazioni su come adattare un modello lavorato in tondo alla lavorazione con ferri dritti. Il suo rivenditore Drops di fiducia è a sua disposizione per ulteriore aiuto. Buon lavoro!
11.10.2017 - 12:29
Trudy skrifaði:
Weet iemand de steken vehouding voor deze trui ,wil hem breien op 2 naalden, Groet .
08.09.2017 - 13:41DROPS Design svaraði:
Hallo Trudy, De stekenverhouding is 20 steken en 26 naalden tricotsteek is 10 cm breed en 10 cm hoog. Je hebt ongeveer naald 4,5 nodig. Pas de naald evt. aan voor de juiste stekenverhouding. Voor tips om een patroon aan te passen van rondbreinaalden naar rechte naalden vind je in deze link meer inormatie.
13.09.2017 - 13:41
Polar Days#polardayssweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og laskalínu úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 184-7 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6 (mynsturteikning A.2 og A.6 á við um stærð XL, XXL og XXXL). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur í mynstri A.1 eins og áður (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt/brugðið og síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur A.1. LASKALÍNA: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Prjónið 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur brugðið saman. Endurtakið úrtöku við hvert og eitt að prjónamerkjum sem eftir eru (= 8 lykkjur færri í umferð). ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 26 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 4,3. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert (í þessu dæmi) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. Kaðlar eru prjónaðir á framstykki og perluprjón í hliðum á bakstykki og á ermum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. ATH: Stærðir XL, XXL og XXXL hafa einn auka kaðal í (= A.2/A.6) í hvorri hlið en það sem er sýnt á mynd. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 218-234-254-276-304-328 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í hlið). Prjónið nú stroff í mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 24-28-32 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.3a (= 10 lykkjur), A.4a (= 3 lykkjur), A.5a (= 26 lykkjur), A.4a, A.3a, prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir þær 140-152-168 lykkjur sem eftir eru. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 32-40-44 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.2a (= 5 lykkjur), A.3a (= 10 lykkjur), A.4a (= 3 lykkjur), A.5a (= 26 lykkjur), A.4a, A.3a, A.6a (= 5 lykkjur), prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir þær 180-200-220 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram hringinn og endurtakið 3 fyrstu umferðir í mynsturteikningu þar til stroffið mælist 5 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 26-30-34-34-42-46 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA, prjónið síðustu umferð í mynsturteikningu yfir næstu 52-52-52-62-62-62 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 26-30-34-34-42-46 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð og fækkið jafnframt um 26-26-30-32-32-36 lykkjur jafnt yfir = 198-214-230-248-276-296 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú mynstur eftir mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: (prjónamerki í hlið er staðsett hér = byrjun á umferð), prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 20-24-28 lykkjur, A.3b (= 14 lykkjur), A.4b (= 4 lykkjur), A.5b (= 34 lykkjur), A.4b, A.3b, A.1 yfir næstu 20-24-28 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= hin hliðin), prjónið A.1 yfir næstu 88-96-104 lykkjur. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: (prjónamerki í hlið er staðsett hér = byrjun á umferð), prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 26-34-38 lykkjur, A.2b (= 6 lykkjur), A.3b (= 14 lykkjur), A.4b (= 4 lykkjur), A.5b (= 34 lykkjur), A.4b, A.3b, A.6b (= 6 lykkjur), A.1 yfir næstu 26-34-38 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= hin hliðin), prjónið síðan a.1 yfir næstu 114-126-138 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-35-35 cm prjónið eina umferð þar sem felldar eru af 10-10-12-12-14-16 lykkjur í handvegi (= 5-5-6-6-7-8 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið = 178-194-206-224-248-264 lykkjur í umferð. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMAR: Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-60-60-64-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Karisma. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-16-14-16-14-16 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónið mynstur A.1 hringinn. Þegar ermin mælist 14-11-11-8-6-5 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 6.-5.-4.-4.-4.-4. umferð alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 66-74-82-86-90-94 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-42-41-40-39-39 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. 5-5-6-6-7-8 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 56-64-70-74-76-78 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 290-322-346-372-400-420 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Byrjið við skiptingu á eftir ermi og á undan bol á bakstykki og prjónið mynstur eins og áður þannig: Prjónið 2-2-2-1-2-6 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (ATH: þetta er nú byrjun á umferð), prjónið 74-82-88-100-108-110 lykkjur (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 64-72-78-82-88-94 lykkjur (= ermi), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 88-96-102-108-116-122 lykkjur (= framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 64-72-78-82-88-94 lykkjur (= ermi). Haldið áfram með mynstur eins og áður og prjónið 1 lykkju slétt hvoru megin við 4 prjónamerkin í stykkinu. Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 3-2-0-0-0-0 sinnum og í annarri hverri umferð 19-24-29-31-34-37 sinnum = 114-114-114-124-128-124 lykkjur. Þar sem lykkjum fækkar í laskalínu og ekki eru nægilega margar lykkjur eftir til að prjóna kaðlana með á framstykki, prjónið nú sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð mælist stykkið ca 20-22-23-25-27-29 cm. Prjónið sléttar lykkjur fram að fyrsta prjónamerki á framstykki, prjónið síðan fram að næsta prjónamerki og fækkið jafnframt um 14-14-14-8-8-4 lykkjur jafnt yfir, prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð slétt = 100-100-100-116-120-120 lykkjur HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-12-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – Munið eftir ÚTAUKNING = 108-108-112-124-128-128 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #polardayssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 184-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.