Tracie skrifaði:
Thank you for the speedy reply, I'm afraid I'm sill confused as I only have 6 stitches I can use for decreasing in one repeat how can I reduce 5
17.02.2020 - 11:55DROPS Design svaraði:
Dear Tracie there are 6 stitches at the end of A.1 + 6 sts at the beg of next A.1 = 12 stitches - you will have to decrease over these 12 stitches (where you worked K2 tog x 6). Happy knitting!
17.02.2020 - 12:57
Tracie skrifaði:
Hi im having trouble with the first decrease, it says i have to reduce 75 sts evenly on first row after A1 is complete with out dec over the YO and no matter how i try and work it out i can not get rid of 75 STS in one row. how is it done?
16.02.2020 - 20:49DROPS Design svaraði:
Dear Tracie, decrease 5 stitches over the decreases from A.1 (5 dec over 15 repeats of A.1 = 75 sts decreased on row). Happy knitting!
17.02.2020 - 09:45
Ingrid skrifaði:
Alt for lite garn til str 13-14 år!! Minst ett nøste for lite, kanskje to. Enda ikke ferdig med fellingene på overdelen, og garnet er nesten brukt opp, da har jeg brukt mønsterfargen på ermkantene og hullraden i livet også.
11.06.2019 - 06:00
Corinn skrifaði:
How do you combine the sleeve edge at the Yoke?
17.04.2019 - 03:04DROPS Design svaraði:
Dear Corinn, both sleeve edges are worked separately then joined together with the stitches from body as shown in the video below. Happy knitting!
23.04.2019 - 10:58
Johanneke skrifaði:
Er staat bij de benodigde artikelen, lint van 10 cm breed. Denk dat dit mm moet zijn.
18.02.2019 - 10:39
Pia skrifaði:
Er det noe som ikke stemmer her? «Når arb måler 13 cm felles det 1 m i hver side av merketrådene (= 4 m felt) – LES FELLETIPS. Gjenta fellingene på hver 4.-5.-6.-6½.-7.-7½.cm 6 ganger til» Etter fellingene vil arbeidet da måle 37-43-49-52-55-58cm etter mine beregninger, men hullraden skal strikkes etter 37-41-45-49-53-57cm? På bildet ser det ut som det felles mye oftere, og at man strikker et stykke uten felling før hullraden strikkes.
09.07.2018 - 18:52DROPS Design svaraði:
Hej Pia, det kan være at det er en anden størrelse på billedet, men opskriften er skrevet så fellingerne skal være jævnt fordelt. Hvis du følger opskriften så får du målene som står i måleskitsen. God fornøjelse!
10.07.2018 - 09:48
Kristine skrifaði:
Det mangler bilde av knappestolpen bak.
05.07.2018 - 15:06Jacqui skrifaði:
I am having difficulty understanding, when the pattern reads: Work next row as follows from WS (P YOs to make holes): Work 36-38-40-42-44-46 sts as before (= right back piece), cast off 6 sts for armhole, work 62-66-70-74-78-82 sts as before (= front piece), cast off 6 sts for armhole and work the last 36-38-40-42-44-46 sts (= left back piece) Do I perl all stiches and then knit 36? Or do I cast off on the WS
04.07.2018 - 08:06DROPS Design svaraði:
Dear Jacqui, that's right you are working this row from WS so that you will purl all sts - but still work the 5 sts in each side as before, ie in garter st. Happy knitting!
04.07.2018 - 10:01Kathryn Briggs skrifaði:
Size 9/10 The first button hole is 20 cm down the back?
08.06.2018 - 01:47DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Briggs, first buttonhole will be knitted when piece measures 20 cm from bottom edge. Happy knitting!
08.06.2018 - 08:29
Ida skrifaði:
Hei, er det mulig å bruke et annet garn. eks. merinoull?
30.06.2017 - 14:29
Bright Smile#brightsmiledress |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður kjóll í garðaprjóni með öldumystri, hringlaga berustykki og tölukanti aftan á baki úr DROPS Cotton Merino. Stærð fyrir börn 3-14 ára.
DROPS Children 28-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. RENDUR: Þegar prjónað er eftir A.1 eru prjónaðar rendur þannig: Skiptið um lit í hvert skipti sem A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. 1. mynstureining af A.1: vanillugulur 2. mynstureininga af A.1: natur Endurtakið rendurnar 3 sinnum á hæðina (A.1 er prjónað alls 8 sinnum á hæðina). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í hliðum, byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti (= miðja að aftan). 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 3/4: 18, 23, 28, 33, 38, 43 og 48 cm STÆRÐ 5/6: 18, 24, 30, 36, 42, 47 og 53 cm STÆRÐ 7/8: 22, 28, 34, 40, 46, 52 og 58 cm STÆRÐ 9/10: 20, 27, 34, 41, 48, 55 og 63 cm STÆRÐ 11/12: 19, 26, 33, 40, 47, 54, 61 og 68 cm STÆRÐ 13/14: 18, 26, 34, 42, 50, 58, 65 og 73 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, kantur fyrir tölur er við miðju að aftan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 248-248-265-265-282-299 lykkjur á hringprjón 4 með litnum vanillugulur DROPS Cotton Merino. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 238-238-255-255-272-289 lykkjur (= 14-14-15-15-16-17 mynstureiningar af A.1), endið með 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með A.1, garðaprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Kantur með 5 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið er prjónaður í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 8 sinnum á hæðina er prjónað áfram með litnum vanillugulur og sléttprjóni (kantur í garðaprjóni), JAFNFRAMT í fyrstu umferð í sléttprjóni er fækkað um 74-66-75-67-76-85 lykkjur jafnt yfir – ATH! Passið uppá að fækka lykkjum yfir úrtöku í A.1 og ekki yfir lykkjum þar sem slegið er uppá prjóninn í A.1, lykkjum er ekki fækkað yfir kant í garðaprjóni = 174-182-190-198-206-214 lykkjur. Setjið 2 merkiþræði í stykkið, 46-48-50-52-54-56 lykkjur inn frá hvorri hlið (framstykki = 82-86-90-94-98-102 lykkjur). Þegar stykkið mælist 13 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina (= 4 lykkjur færri) –lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 4-5-6-6½-7-7½ cm millibili 6 sinnum til viðbótar = 146-154-162-170-178-186 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-41-45-49-53-57 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið með 5 lykkjur garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (uppslátturinn er prjónaður brugðið svo það myndist gat): Prjónið 36-38-40-42-44-46 lykkjur eins og áður (= hægra bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 62-66-70-74-78-82 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 36-38-40-42-44-46 lykkjur (= vinstra bakstykki). Geymið stykkið og prjónið kant á ermi. KANTUR Á ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 44-47-49-52-55-57 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum vanillugulur. Prjónið A.2 (endið umferð með 0-1-1-0-1-1 lykkjur slétt þegar uppslátturinn er prjónaður), í síðustu umferðinni í mynsturteikningu eru felldar af 6 lykkjur mitt undir ermi = 38-41-43-46-49-51 lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermakanta á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 210-224-236-250-264-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 9 merkiþræði í stykkið þannig (án þess að prjóna): 1. merkiþráð eftir 21-24-26-25-28-30 lykkjur, síðan eru sett 8 merkiþræðir í stykkið með 21-22-23-25-26-27 lykkja millibili (á eftir síðasta merkiþræði eru 21-24-26-25-28-30 lykkjur eftir). Prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju vinstra megin við hvern merkiþráð (= 9 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð 11-12-13-14-15-16 sinnum til viðbótar, fækkið lykkjum til skiptis hægra og vinstra megin við merkiþræðina (= alls 12-13-14-15-16-17 sinnum) = 102-107-110-115-120-123 lykkjur. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð er prjónað frá réttu þannig: 5 lykkjur garðaprjón, A.2, endið með 0-1-0-1-0-1 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Í umferð 8 í A.2 (sjá ör í mynsturteikningu) er fækkað um 18 lykkjur jafnt yfir = 84-89-92-97-102-105 lykkjur. Prjónið til loka A.2. Stykkið mælist ca 50-55-60-65-70-75 cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant. Þræðið silkiborða upp og niður í gataumferð á undan berustykki. Tölukantur að aftan er einungis til skrauts, en ef hneppa á kjólnum, verður að klippa silkiborðann í tvennt og festa hvorn enda í hvora hlið í kanti. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brightsmiledress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 28-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.