Ula skrifaði:
Drogi Dropsie 😉 Dziekuje za znak. Szczerze mowiac jestem juz jakies 3 projekty do przodu. Usiluje sobie odtworzyc lecz nadaremnie 🙈Niemniej jednak znalazlam źródło nieścisłości a bluzeczka gotowa. Bardzo dziekuje za gotowosc to pomocy! I zawsze dziekuje serdecznie za pomoc przeszłą i przyszłą 🤗 Dołączyłabym zdjecie ale nie wiem jak..🙈
23.11.2020 - 12:23DROPS Design svaraði:
Witaj Ulu, zamieść zdjęcia na naszej grupie na facebooku DROPS Workshop, a jeśli udostępniasz już swoje prace gdzieś na facebooku, albo na instagramie, możesz przesłać nam linki do swoich dzieł na naszej stronie w dropsfan gallery TUTAJ. Pozdrawiamy serdecznie!
23.11.2020 - 17:00
Ula skrifaði:
Dzień dobry! Wykonalam tyl. Wszystko sie zgodziło. Jednak po zamknieciu po 3o.po obu stronach na podkroj rekawa na przodzie mam 22o.po obu stronach na ramiona i 12o na drucie pomocniczym. Czyli (62-12-6):2=22. Zamykajac jak na tyle na rekawy 3x1, 4x1 zostaje mi 15o. na ramię. Po odjeciu 7o na dekolt zostaje 8o. Prosze o pomoc co robie nie tak..
17.08.2020 - 13:10DROPS Design svaraði:
Witaj Ulu, przepraszam, że przegapiłam twoje pytanie, zmyliła mnie flaga UK. Napisz czy się udało, a jak nie to jaki rozmiar wykonujesz. Pozdrawiam!
20.11.2020 - 17:05
Wenche Myhre skrifaði:
Jeg får ikke maske antallet man skal ha igjen på skulderen til å stemme med så mange det står at man skal ha i oppskriften?.... strikker str L og får mye færre masker igjen på skulderen? Har regnet og regnet men skjønner ikke det her.
11.07.2020 - 08:21DROPS Design svaraði:
Hei Wenche. Bakstykket = 72 masker, felle 1 maske i hver side 6 ganger på annenhver pinne = 12 felte, deretter felle 1 maske i hver side 4 ganger på hver 4. pinne = 8 felte masker. Når arbeidet måler 40 cm felles de midterste 26 masker og du har 13 masker på hver skulder. Felle 1 maske i hver side mot halsen = 12 masker på hver skulder. Forstykket: Fell som bakstykket = 52 masker, når arb måler 33 cm settes de midterste 10 maskene på 1 tråd. 21 masker på hver skulder, fell 2 masker 3 ganger i hver side mot hals = 15 masker på hver skulder, deretter felles det 1 maske 3 ganger på hver skulder = 12 masker på hver skulder, samme som bakstykket. God Fornøyelse!
13.07.2020 - 11:13
Barbier Brigitte skrifaði:
Bonjour, Quel sorte de jeté faut-il faire au début du 23 rang de A.1 puisque la maille qui vient après n'est ni une maille endroit, ni une maille envers mais une maille glissée ? et pourquoi ce rang est-il décalé ? Je débute...Merci !
01.03.2019 - 00:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Barbier, au 23ème rang de A.1, commencez ce tour 1 maille avant la fin du tour, faites 1 jeté (= 1ère m de A.1), déplacez votre marqueur début de tour ici, glissez la m suivante à l'endroit (= la dernière m du tour), tricotez les 2 m suivantes ensemble à l'end (= les 2 premières m du 1er A.1), et passez la m glissée par-dessus la m tricotée. Continuez A.1 ainsi, c'est-à-dire que la dernière m de chaque motif est remplacée par le jeté du début du A.1 précédent, et cette dernière maille se tricote avec les 2 premières m du A.1 suivant. Bon tricot!
01.03.2019 - 09:59Linda skrifaði:
I wish the patterns would be designed for flat knitting and not circular
15.07.2017 - 17:10DROPS Design svaraði:
Dear Linda, please find here some tips to adapt a pattern onto straight needles. Happy knitting!
17.07.2017 - 10:01Laura skrifaði:
Lovely pattern!
06.06.2017 - 13:53
Joyful Jane#joyfuljanetop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-67 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um handveg): Fækkið lykkjum fyrir handveg innan við 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á eftir 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 4 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handvegi, síðan er framstykkið og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 120-132-144-168-192-204 lykkjur á hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið A.1 (= 10-11-12-14-16-17 mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar prjónaðar hafa verið 12 umferðir í A.1 er skipt yfir á hringprjón 5 áður en haldið er áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 11 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki á eftir 60-66-72-84-96-102 lykkjum (= í hliðum). Prjónið síðan sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-13-14-14-14-15 cm aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2-2-2-4-4-4 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum í hvorri hlið = 136-148-160-180-204-216 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 14-14-16-18-18-20 lykkjur í hvorri hlið (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum – aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Í fyrstu umferð á eftir 4 umferð í garðaprjóni eru felldar af 6-6-8-10-10-12 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (fellið af 3-3-4-5-5-6 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki eru nú prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 62-68-72-80-92-96 lykkjur. Prjónið sléttprjón, en 4 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 3-5-6-10-17-17 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-3-0-0 sinnum í hvorri hlið = 48-50-52-54-58-62 lykkjur eftir á prjóni. Haldið áfram í sléttprjón og 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 11-12-12-13-14-16 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm og fellið af. Prjónið síðan hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 62-68-72-80-92-96 lykkjur. Prjónið síðan alveg eins og á bakstykki og fellið af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 30-32-33-35-36-38 cm setjið miðju 12-12-10-10-10-10 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hveri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-3-4-4 sinnum = 11-12-12-13-14-16 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 70 til 86 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stutta hringprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #joyfuljanetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-67
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.