Roseanne |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð aðsniðin peysa með laskalínu og köðlum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Paris. Stærð S-XXXL.
DROPS 176-3 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 98 lykkjur), mínus kanta að framan (td. 8 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,5. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið fyrstu út 2 lykkjur á undan A.2 á vinstra framstykki, eftir A.2 og á undan A.2 á bakstykki og á eftir A.2 á hægra framstykki þannig: Aukið út um 2 lykkjur á undan A.2 með því að prjóna þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 2 lykkjur á eftir A.2 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn næst A.2 prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Seinni uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Aukið síðan út með 1 lykkju við A.2 á hvoru framstykki og 1 lykkju voru megin við A.2 á bakstykki þannig: Aukið út um 1 lykkju á undan og á eftir A.2 með því að slá einu sinni uppá prjóninn (= alls 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. LASKALÍNA Á ERMI: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á hvorri hlið á ermi, þ.e.a.s. á eftir og á undan A.2 (= 2 lykkjur fleiri á hvorri ermi). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. LEIÐBEININGAR: Þegar aukið er út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð á að prjóna eitt gat á undan og á eftir A.2 í umferð frá réttu án úrtöku þannig: Á undan A.2: Byrjið 2 lykkjum á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Á eftir A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermi): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.2, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING-2 (á við um brugðnu mynstureiningarnar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í skiptingunni á milli sléttum lykkjum og brugðnum lykkjum. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið frá röngu þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 síðustu lykkjurnar slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir garðaprjóni í hálsi. Fellið síðan af 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 9-9-9-8-8-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 98-100-100-104-110-110 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4,5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í þriðju umferð (slétt frá réttu) er aukið út um 12-14-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 110-114-114-118-126-126 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, prjónið A.1 (= 4 lykkjur í fyrstu umferð) alls 2-2-2-2-3-3 sinnum, 1 lykkja brugðið, 1-2-2-3-1-1 lykkjur slétt (= vinstra framstykki), A.2 (= 8 lykkjur í fyrstu umferð), 12 lykkjur slétt (= vinstri ermi), A.2 (= 8 lykkjur), 1-2-2-3-1-1 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.1 alls 5-5-5-5-7-7 sinnum, 1 lykkja brugðið, 1-2-2-3-1-1 lykkja slétt (= bakstykki), A.2, 12 lykkjur slétt (= hægri ermi), A.2, 1-2-2-3-1-1 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.1 alls 2-2-2-2-3-3 sinnum, 1 lykkja brugðið og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: Mismunandi er aukið út á fram-/bakstykki og ermum þannig: FRAM- OG BAKSTYKKI: Lesið LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI. Aukið út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 1-2-2-3-3-6 sinnum, aukið síðan út um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 16-17-19-21-23-22 sinnum. ERMAR: Lesið LASKALÍNA Á ERMI. Aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 11-17-19-20-18-20 sinnum og síðan í 4. hverri umverð alls 3-1-1-2-4-4 sinnum – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 238-270-286-314-330-358 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 37-41-43-48-52-57 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-68 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 68-76-80-90-98-108 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-68 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 37-41-43-48-52-57 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki). Stykkið mælist nú 16-18-20-22-24-26 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl og niður. Fram- og bakstykki og ermar eru nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-170-182-202-222-242 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með mynstrið fram og til baka eins og áður, nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 10 cm frá skiptingu. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað í hverri brugðinni mynstureiningu á milli 2 kaðla (fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman) = 6-6-6-6-10-10 lykkjur færri (þ.e.a.s.1-1-1-1-2-2 lykkjur á hvoru framstykki og 4-4-4-4-6-6 lykkjur á bakstykki). Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 140-156-168-188-204-224 lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju í hverri mynstureiningu með brugðnum lykkjum á milli kaðla þar sem lykkjum var fækkað áður – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 6-6-6-6-10-10 lykkjur fleiri) = 146-162-174-194-214-234 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju brugðið hvoru megin við hvern kaðal (= 18-18-18-18-26-26 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu hvoru megin við hvern kaðal með 3 cm millibili alls 5 sinnum = 236-252-264-284-344-364 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð er haldið áfram með mynstur fram og til baka án úrtöku og útaukningar. Þegar stykkið mælist ca 31 cm frá skiptingu – endið eftir 4. eða 8. umferð í mynsturteikningu, prjónið 2 umferðir sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 6 umferðir í garðaprjóni, skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og fellið af með hringprjón 5. ERMI: Setjið 48-56-60-64-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-62-68-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn og A.2 yfir miðju lykkjur undir ermi (A.2 er 8 lykkjur í fyrstu umferð). Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2 – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 2 lykkjur færri). Fækkið svona alls 9-13-15-16-16-17 sinnum í S: Í 6. hverri umferð, í M: Í 4. hverri umferð, í L + XL: Í 3. hverri umferð, í XXL + XXXL: Í annarri hverri umferð = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 28-26-25-24-22-22 cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón, skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5 og fellið af með sokkaprjón 5. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (42)
Il me tarde de pouvoir tricoter ce modele je regarde tous les jours
24.01.2017 - 09:35Je voudrais le commencer maintenant magnifique
23.01.2017 - 20:39Molto bello stile romantico sembra una farfalla
17.01.2017 - 20:20Jäckchen wie diese sind super praktisch, schnell mal was zum überziehen. Bitte unbedingt mit rein nehmen.
17.01.2017 - 14:17Coup de cœur
12.01.2017 - 22:00Söt modell men lite för djup urringning bak
21.12.2016 - 18:45Really lovely pattern. Would like a higher neckline at the back.
20.12.2016 - 22:35J'aime! Très féminin! Celui-là aussi, j'aimerais le tricoter
20.12.2016 - 17:07Really like this apart from the low neck at the back. Should fit into the nape of the neck
19.12.2016 - 22:44Love the feminine style and design of the back.
13.12.2016 - 20:00