DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Vanilla Cream

Peysa með gatamynstri á berustykki, laskalínu, ¾ ermum og A-formi prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Alpaca. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-7
DROPS Design: Mynstur nr z-780
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-400-400-450 g litur 2110, ljós gulur
50-50-50-100-100-100 g litur 101, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð og 20 lykkjur og 48 umferðir áferðamynstur (A.1) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir kanta með garðaprjóni í kringum ermar og háls.
DROPS PERLUTALA, Blóm (hvít) NR 600: 5 st í öllum stærðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (á við um kant í hálsi):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út/fækka lykkjum í umf, teljið fjölda lykkja á prjóni (t.d. 124 l), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem á að auka út/fækka (t.d. 10) = 11,4. í þessu dæmi á auka út til skiptis eftir ca. 11. og 12. hverja lykkju.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum eru prjónaðar til skiptis ca 10. og 11. hver lykkja og 11. og 12. Hver lykkja saman. Ekki er aukið út/lykkjum fækkað yfir kanta að framan.

UPPHÆKKUN:
Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 72-74-79-82-87-91 lykkjur, setjið eitt prjónamerki (= miðja að aftan), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7-7-7-8-8-9 lykkjur, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14-14-14-16-16-18 lykkjur brugðið frá röngu. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 21-21-21-24-24-27 lykkjur slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28-28-28-32-32-36 lykkjur brugðið. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með því að prjóna yfir 7-7-7-8-8-9 lykkjur fleiri í hvert skipti sem prjónað er yfir miðju 70-70-70-80-80-90 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll útaukning er gerð frá réttu. Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er í uppskrift.
Aukið út á undan prjónamerki þannig: Byrjið á 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 1 lykkju slétt.
Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri).
Í næstu umferð (frá röngu) prjónið uppsláttinn snúinn svo að ekki myndist gat, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1.

HNAPPAGAT
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat. Fyrsta hnappagatið er fellt af í fyrstu umferð frá réttu eftir kanti í garðaprjóni í hálsi. Fellt er af fyrir næstu 4 hnappagöt með ca 8-8-9-9-10-10 cm millibili.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út hvoru megin við lykkjuna með prjónamerki í þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkjuna með prjónamerki í slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) prjónið uppslættina brugðið svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.2 (= 3 lykkjur), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 124-128-136-140-146-152 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 2,5 með litnum hvítur. Prjónið 10 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í 7. umferð (= rétta) er aukið út um 10-10-11-12-14-15 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 134-138-147-152-160-167 lykkjur. Aukið út alveg eins í 9. umferð = 144-148-158-164-174-182 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 3.
Til að fá flíkina til að passa betur er prjónuð smá UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 22-22-24-26-28-28 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 122-126-134-138-146-154 lykkjur – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið til baka frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (án þess að prjóna lykkjurnar): 1. prjónamerki er sett á eftir 23-24-26-27-29-31 lykkjur (= vinstra framstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 20 lykkjur (= vinstri ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 36-38-42-44-48-52 lykkjur (= bakstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 20 lykkjur (= hægri ermi), nú eru 23-24-26-27-29-31 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á hægra framstykki.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið A.1 fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hið og 4 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (2 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki). ATHUGIÐ PRJÓNFESUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu í A.1 er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum þannig:
FRAM-OG BAKSTYKKI: Aukið út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) 15-15-12-14-19-19 sinnum, síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) 9-12-15-17-16-19 sinnum (= alls 24-27-27-31-35-38 sinnum).
ERMAR: Aukið út í annarri hverri umferð 5-7-12-8-9-5 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 14-16-15-20-21-26 sinnum (= alls 19-23-27-28-30-31 sinnum).
Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, þ.e.a.s. þær 4 lykkjur í hverri laskalínu eru prjónaðar allan tíman í sléttprjóni.
JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 7-7-8-8-9-9 mynstureiningar á hæðina með A.1 er skipt yfir í litinn ljósgulur (umferð með ör í mynsturteikningu er síðasta umferð með litnum hvítur). Stykkið mælist nú ca 11-11-12-12-13-13 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Haldið áfram með A.1 með útaukningu fyrir laskalínu eins og áður. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 294-326-350-374-406-430 lykkjur í umferð. Í næstu umferð frá réttu á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er prjónað þannig (ekki er aukið út yfir kanta að framan eða 4 lykkjur í hverri laskalínu): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 47-51-53-58-64-69 lykkjur (= vinstra framstykki) og aukið jafnframt út 8-9-10-11-12-13 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 58-66-74-76-80-82 lykkjur (vinstri ermi) og aukið jafnframt út 12-14-14-16-16-16 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 84-92-96-106-118-128 lykkjur (= bakstykki) og aukið jafnframt út 16-18-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 58-66-74-76-80-82 lykkjur (= hægri ermi) og aukið jafnframt út 12-14-14-16-16-16 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 47-51-53-58-64-69 lykkjur (= hægra framstykki) og aukið jafnframt út 8-9-10-11-12-13 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Nú eru 350-390-418-450-486-514 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-19-21-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og ca 22-24-26-28-30-32 cm frá öxl og niður. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 50-55-58-64-71-77 lykkjur brugðið (= hægra framstykki), setjið næstu 70-80-88-92-96-98 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 5-5-7-7-9-11 nýjar lykkjur undir ermi (= í hlið á fram- og bakstykki), prjónið 100-110-116-128-142-154 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 70-80-88-92-96-98 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 5-5-7-7-9-11 nýjar lykkjur undir ermi (= í hlið á fram- og bakstykki), prjónið 50-55-58-64-71-77 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 220-240-256-280-312-340 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 5-5-7-7-9-11 nýjum lykkjum undir hvorri ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með litnum ljósgulur og prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 22 umferðir = 308-328-344-368-400-428 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 28 cm frá skiptingu (ef óskað er eftir að peysan verði lengri er hægt að halda áfram með útaukningu í hliðum að óskaðri lengd). Prjónið 8 umferðir garðaprjón, fram og til baka yfir allar lykkjur (án þess að skipta um prjón). Fellið af – til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju JAFNFRAMT er fellt af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Öll peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Haldið áfram með litnum ljósgulur, setjið 70-80-88-92-96-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5-5-7-7-9-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-85-95-99-105-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (þ.e.a.s. í miðju af 5-5-7-7-9-11 nýjum lykkjum), láið prjónamerki fylgja með í stykkinu.
Prjónið sléttprjón hringinn og A.2 yfir miðju 3 lykkjur undir ermi.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið svona í annarri hverri umferð alls 3-4-5-6-7-8 sinnum. Fækkið síðan alls 11-14-17-16-17-17 sinnum í S: Í 8. hverri umferð, í M: Í 6. hverri umferð, í L og XL: Í 4. hverri umferð, í XXL og XXXL: Í 3. hverri umferð = 47-49-51-55-57-59 lykkjur. Þegar stykkið mælist 35-33-31-30-28-26 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á sokkaprjóna 3 og fellið af. Ermin mælist ca 37-35-33-32-30-28 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Daniela Stroh wrote:

Warum werden in der Halsblende erst Maschen zugenommen und dann wieder abgenommen?

16.05.2022 - 17:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Stroh, so bekommt man eine schöne Halsblende. Viel Spaß beim stricken!

17.05.2022 - 08:59

country flag Lorna wrote:

Is A2 repeated for the length of the sleeve or is it worked just once? Thanks

15.07.2021 - 01:40

DROPS Design answered:

Dear Lorna, the A.2 pattern is repeated all through the sleeves, and shaping is done each side of A.2. Happy Stitching!

15.07.2021 - 02:21

country flag Regina Hapka wrote:

Hallo, ich hab (mal wieder) eine Frage zu dieser Anleitung. Beim unterteilen des Strickstücks in Vorder- Ärmel und Rückenteil, geben Sie an, dass das Vorderteil nach den 5 Blendmaschen 77 Maschrn hat in der größten Größe. Was mache ich mit den restlichen 5 Maschen? Ich habe doch vorher erst 69 Maschen und nehme noch 13 Maschen zu. Das macht zusammen 82 Maschen.

20.06.2021 - 19:59

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hapka, nach den Raglanzunahmen sollen Sie noch eine Hinreihe stricken und gleichzeitig Maschen reglemäßig verteilt zunehmen, dh: +13 M bei jedem Vorderderteil (= 82 M), + 16 M bei jeder Ärmel (= 98 M) und +26 M beim Rückenteil (= 154 M), dh insgesamt 514 M auf der Nadel. Dann stricken Sie die Verteilung: 82 M (Vorderteil = 5 Blendemaschen + 77 M), usw. Kann es Ihnen helfen?

21.06.2021 - 08:23

country flag Regina Hapka wrote:

Ich würde gern wissen ob bei dem Muster A1 zwischen den Lochreihen immer 4 Reihen glatt rechts gestrickt werden muß. MfG Regina Hapka

04.06.2021 - 21:02

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hapka, ja genau, 2 Reihen glatt rechts vor der Lochreihen + 2 Reihen danach, so haben Sie 4 Reihen glatt rechts wenn A.1 wird wiederholt. Aus dem 2. Foto kann man das auch sehen. Viel Spaß beim stricken!

07.06.2021 - 07:06

country flag Lorna wrote:

Do I do a yarn over for the back and side increases, or simply increase in the stitch? Thanks for all your help.

02.10.2020 - 06:32

DROPS Design answered:

Hi Lorna, You make a yarn over for the increases in the sides, on each side of the stitch with the marker (see Increase tip at top of pattern). Happy knitting!

02.10.2020 - 07:00

country flag Lorna wrote:

Sorry. I think I was confusing the increase tip for the sides in the body with the front and back pieces. Does that mean then that the front and back piece increase is the same as the raglan for the sleeves? Thanks.

01.10.2020 - 19:21

country flag Lorna wrote:

I am not sure how to proceed with the increases. How do I differentiate between the body and the raglan? If I yarn over before and after the markers, would I be increasing both body and raglan? Also the 2 stitches on either side of the transition, are they a part of the yarn over or is the yarn over before those 2 stitches? Thanks.

01.10.2020 - 04:40

DROPS Design answered:

Dear Lorna, as the pattern says, you shoul put 4 stitch markers, or marker threads in between the stitches, they will tell you where the division between body and sleeve pieces are. As the rythm of the increases are different on the body and the sleeves, you don't always have to increase before AND after the markers, will not always have increases on the body and the sleeves, though most of the times you will. The two stitches at the two sides of the markers will be the raglan line, and yarnovers for the increases should be done before and after those two stitches. Happy Knitting!

01.10.2020 - 09:38

country flag Eva Madsen wrote:

Findes opskriften ikke på dansk?

17.04.2020 - 07:54

DROPS Design answered:

Hei Eva. Jo, den fins på dansk. Bare velg ønsket språk i nedtrekksmenyen under bildet. God Fornøyelse!

17.04.2020 - 08:28

country flag Eirin wrote:

Etter forhøyningen står det at man skal felle 22-28 masker jevnt fordelt. Er det rett? Blir ikke rillekanten stående opp da? Skulle det stått økt?

25.03.2020 - 21:36

DROPS Design answered:

Hei Eirin. Det er riktig slik det står, det skal felles. Fellingen vi ikke gjøre det slik at rillekanten vil bli stående opp. Plagget får en bedre formstabilitet før økningene til raglan starter. God Fornøyelse!

30.03.2020 - 12:36

country flag Heidi Brestrup wrote:

Jeg skjønner ikke når vi skal strikke A2

31.03.2019 - 10:50

DROPS Design answered:

Hej Heidi, du strikker efter A.2 på ærmerne. God fornøjelse!

05.04.2019 - 15:31