DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rose Twist

Peysa með opnum kaðli við miðju að framan prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-4
DROPS Design: Mynstur z-790
Garnflokkur A + A - eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 3112, dauf bleikur
Og einnig:
DROPS KID-SILK (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 4 – fyrir kanta með garðaprjóni og stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðal.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

ÚTAUKNING-1 (á við um handveg):
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu.
Aukið út innan við 3 kantlykkjum í garðaprjóni meðfram handveg. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu.
Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni + 2 kantlykkjur í sléttprjóni (= 3 lykkjur). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-3 (á við um brugðnu mynstureiningarnar hvoru megin við kaðal við miðju að framan):
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu.
Aukið út um 1 lykkju í síðustu brugðnu lykkjuna á undan sléttprjóni í vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) og aukið út um 1 lykkju í fyrstu brugðnu lykkjuna á eftir sléttprjóni í hægri hlið á stykki (séð frá réttu). Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju brugðið fram og til baka í sömu lykkju.

ÚRTAKA-1 (á við um brugðnu mynstureininguna hvoru megin við kaðal við miðju að framan):
Allar úrtökur eru gerðar frá réttu. Fækkið lykkjum lengst út við brugðnu mynstureiningarnar (þ.e.a.s. út að hliðum). Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman.

ÚRTAKA-2 (á við miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum.

BAKSTYKKI:
Byrjið með hægri öxl (þegar flíkin er mátuð), prjónið síðan vinstri öxl áður en fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmáli og prjónað áfram yfir allar lykkjur.

HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 17-18-19-17-18-19 lykkjur á hringprjóna 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þráð Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt (1. umferð = ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hálsi): 14-15-16-14-15-16 lykkjur sléttprjón, 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, að auki er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok umferðar við háls. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, að auki eru fitjaðar upp 26-26-26-32-32-32 nýjar lykkjur í lok umferðar = 44-45-46-50-51-52 lykkjur í umferð. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan.

VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 17-18-19-17-18-19 lykkjur á hringprjóna 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt (1. umferð = ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá handveg): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið 14-15-16-14-15-16 lykkjur sléttprjón, fitjið að auki upp 1 nýja lykkju í lok umferðar við háls = 18-19-20-18-19-20 lykkjur í umferð. Prjónið til baka frá röngu með brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Í næstu umferð frá réttu er prjónuð vinstri og hægri öxl saman við bakstykki þannig:

BAKSTYKKI:
Byrjið með lykkjum frá vinstri öxl, prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru á vinstri öxl, haldið áfram í sléttprjóni yfir lykkjur á hægri öxl þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg = 62-64-66-68-70-72 lykkjur á prjóni. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjón og 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-16-16-15-13-11 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við handveg – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-7-10-13 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-5-6-7-8 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 72-78-86-94-104-114 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón með 6-7-8-9-10-11 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir í garðaprjóni yfir síðustu 6-7-8-9-10-11 lykkjur í hvorri hlið, haldið áfram með sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 28-30-31-32-33-34 cm frá öxl er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2½-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 8-9-9-10-10-12 sinnum í hvorri hlið = 88-96-104-114-124-138 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur).

FRAMSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl, fitjið upp lykkju fyrir hálsmáli, prjónið síðan hægri öxl áður en prjónað er áfram yfir allar lykkjur.

VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 17-18-19-17-18-19 lykkjur á hringprjóna 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt (1. umferð = ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hálsi): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 13-14-15-13-14-15 lykkjur sléttprjón, 3 kantlykkjur í garðaprjón við handveg. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg og 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls. Þegar stykkið mælist 3 cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 3 sinnum, 2 l 1 sinni og 18-18-18-24-24-24 lykkjur 1 sinni (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni) = 40-41-42-46-47-48 lykkjur á prjóni. Eftir að síðustu lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp á prjóninn er stykkið lagt til hliðar. Prjónið nú hægri öxl að framan.

HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar stykkið er mátað):
Fitjið upp 17-18-19-17-18-19 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt (1. umferð = ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu (þ.e.a.s. frá handveg): 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 13-14-15-13-14-15 lykkjur í sléttprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni við háls. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni við háls og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg. Þegar stykkið mælist 4 cm eru fitjaðar upp nýjar lykkju við háls í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 3 sinnum og 2 lykkjur 1 sinni = 22-23-24-22-23-24 lykkjur. Eftir að síðustu lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp á prjóninn er prjónað til baka frá röngu með brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Í næstu umferð frá réttu er prjónuð hægri öxl og vinstri öxl saman við framstykki þannig:

FRAMSTYKKI:
Setjið inn lykkjur af hægri og vinstri öxl á sama hringprjón 5 án þess að prjóna lykkjurnar = 62-64-66-68-70-72 lykkjur á prjóni. Setjið 1 lykkju eftir 31-32-33-34-35-36 lykkjur og látið prjónamerki fylgja með áfram (= miðja að framan).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, sléttprjón þar til eftir eru 11-11-11-14-14-14 lykkjur á undan prjónamerki, 8-8-8-10-10-10 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur í hverja og eina af næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjum (= 6-6-6-8-8-8 lykkjur fleiri), 8-8-8-10-10-10 lykkjur brugðið, sléttprjón þar til eftir eru 3 lykkjur í umferð og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg = 68-70-72-76-78-80 lykkjur á prjóni. Prjónið til baka frá röngu í garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur (miðju 12-12-12-16-16-16 lykkjur eru prjónaðar brugðið).
OPINN KAÐALL: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, sléttprjón þar til eftir eru 14-14-14-18-18-18 lykkjur á undan prjónamerki, 8-8-8-10-10-10 lykkjur brugðið, setjið næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur slétt, prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, 8-8-8-10-10-10 lykkjur brugðið, sléttprjón þar til eftir eru 3 lykkjur í umferð og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Skiptið nú stykkinu við miðju að framan þannig: Setjið helminginn af lykkjum (þ.e.a.s. 34-35-36-38-39-40 lykkjur) fyrir hægri hlið á stykki (séð frá röngu) á þráð = 34-35-36-38-39-40 l eftir í umferð.
Haldið áfram fram og til baka yfir lykkjur í vinstri hlið á stykki með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur – ystu lykkjurnar við miðju að framan eru nú prjónaðar í garðaprjóni.
JAFNFRAMT í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) er fækkað um 1 lykkju í brugðnu mynstureiningunni – LESIÐ ÚRTAKA-1 þar til 4-4-4-5-5-5 brugðnar lykkjur eru eftir. Prjónið 3 umferðir fram og til baka án þess að fækka í brugðnu mynstureiningunni. Aukið síðan um 1 lykkju í brugðnu mynstureiningunni í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) – LESIÐ ÚTAUKNING-3 þar til 8-8-8-10-10-10 brugðnar lykkjur eru eftir.
HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-16-16-15-13-11 cm er aukið út fyrir handveg á hlið alveg eins og á bakstykki.
Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð til baka frá röngu eftir að síðasta lykkjan hefur verið aukin út í brugðnu mynstureiningunni eru lykkjurnar í vinstri hlið á stykki geymdar.
Setjið til baka lykkjurnar af þræði í hægri hlið á stykki á hringprjóna 5 og prjónið alveg eins, en með úrtöku og útaukningu í brugðnu mynstureiningunni í gangstæðri hlið. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð til baka frá röngu eftir að síðasta lykkjan hefur verið aukin út í brugðnu mynstureiningunni á setja kaðalinn saman.
OPINN KAÐALL SETTUR SAMAN:
Prjónið frá réttu eins og áður yfir lykkjurnar í hægi hlið á stykki þar til eftir eru 6-6-6-8-8-8 lykkjur í umferð, setjið þessar 6-6-6-8-8-8 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 6-6-6-8-8-8 fyrstu lykkjurnar í vinstri hlið á stykki slétt, prjónið 6-6-6-8-8-8 lykkjur af kaðlaprjóni slétt og prjónið síðan eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í vinstri hlið á stykki. Nú er stykkinu aftur skipt upp við miðju að framan og helmingur af lykkjunum, þ.e.a.s. lykkjur í hægri hlið á stykki fram að prjónamerki (séð frá réttu) setjið á þráð.
LESIÐ ALLAN KAFLANN UM FRAMSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

KAÐALL:
* Haldið áfram yfir lykkjur í vinstri hlið á stykki með garðaprjón yfir garðaprjón og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til eftir eru 14-14-14-18-18-18 lykkjur á undan prjónamerki við miðju að framan, prjónið A.1B yfir þessar lykkjur – ATH: 1. umferð = ranga og mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri. Prjónið 2 umferðir með A.1B yfir síðustu lykkjur við miðju að framan, sléttprjón og garðaprjón við handveg og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu (þegar prjónað er frá réttu er mynsturteikning lesin frá hægri til vinstri). Setjið nú lykkjurnar á þráð. Klippið frá og prjónið 3 umferðir alveg eins yfir lykkjur í hægri hlið á stykki – þ.e.a.s. byrjið við miðju að framan, prjónið fyrstu umferð frá röngu með A.1A yfir ystu 14-14-14-18-18-18 lykkjur við miðju að framan (1. umferð = ranga og mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri).
Setjið lykkjur af þræði í vinstri hlið á stykki á prjóninn (án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónið frá réttu eins og áður yfir lykkjur í hægri hlið á stykki þar til eftir eru 13-13-13-17-17-17 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið A.2 yfir næstu 26-26-26-34-34-34 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt í A.2) og prjónið síðan eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í vinstri hlið á stykki. Haldið svona áfram með mynstur, fækkið og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkinu aftur skipt við miðju að framan og helmingurinn af lykkjunum, þ.e.a.s. lykkjur á hægri hlið á stykki eru settar á þráð. Prjónið 3 umferðir yfir lykkjur í vinstri hlið á stykki með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttprjón yfir sléttprjón og A.3B yfir ystu lykkjur við miðju að framan, aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Setjið nú lykkjur á þráð. Klippið frá og prjónið 3 umferðir alveg eins yfir lykkjur í hægri hlið á stykki – þ.e.a.s. byrjið við miðju að framan, prjónið fyrstu umferðina frá röngu með A.3A yfir ystu 13-13-13-17-17-17 lykkjur við miðju að framan.
Setjið inn lykkjur af þræði í vinstri hlið á stykki á prjóninn (án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónið frá réttu eins og áður yfir lykkjur í hægri hlið á stykki þar til eftir eru 6-6-6-8-8-8 lykkjur á undan prjónamerki, setjið þessar 6-6-6-8-8-8 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 6-6-6-8-8-8 næstu lykkjur slétt. Setjið lykkjur frá hægri prjón á þráð. Prjónið sléttar lykkjur yfir 6-6-6-8-8-8 lykkjur á kaðlaprjóni og prjónið eins og áður út umferðina *.
Endurtakið allan kaflann frá *-* alls 3 sinnum á hæðina.

ÚTAUKNING Á HLIÐUM: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-30-31-32-33-34 cm frá öxl er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2½-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 8-9-9-10-10-12 sinnum í hvorri hlið.

Þegar síðasta endurtekningin með kaðli hefur verið prjónuð til loka og útaukningar í hliðum hafa verið gerðar er stykkinu aftur skipt fyrir miðju og lykkjur í hægri hlið á stykki settar á þráð. Prjónið síðan yfir lykkjur í vinstri hlið á stykki með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hið. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað nú í brugðnu mynstureiningunni alveg eins og við kaðla, nema nú er lykkjum fækkað í 4. hverri umferð (í stað annarri hverri umferð) alls 6-6-6-7-7-7 sinnum. Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 41-45-49-54-59-66 lykkjur á prjóni í vinstri hlið á stykki. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður (passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá réttu). Skiptið yfir á hringprjóna 4 og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5 og fellið af (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur).
Prjónið alveg eins yfir lykkjur á hægri hlið á stykki, nema með úrtöku í gagnstæðri hlið.

ERMI:
Ermin er prjónuð ofan frá og niður. Prjónið ermakúpu fram og til baka á hringprjóna, síðan er ermin prjónuð í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna til loka.
Fitjið upp 20-24-24-24-24-24 lykkjur á stutta hringprjóna 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í öllum stærðum, 2 lykkjur 3-3-2-2-1-1 sinnum, 1 lykkja 2-2-3-4-7-9 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum og 3-4-5-6-7-8 lykkjur 1 sinni = 56-62-66-70-74-80 lykkjur á prjóni. Stykkið mælist nú ca 8-8-9-10-12-14 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið svona með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 12-14-15-16-17-19 sinnum = 32-34-36-38-40-42 l. Þegar stykkið mælist 37-37-37-36-35-33 cm frá prjónamerki (öll ermin mælist ca 45-45-46-46-47-47 cm ofan frá og niður), prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 8-6-12-10-8-14 lykkjur jafnt yfir = 40-40-48-48-48-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 10 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – ATH: Mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Til að koma í veg fyrir það er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 55-55-56-56-57-57 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið ermar í – kantur með garðaprjóni meðfram handveg á að liggja utan á ermi (þ.e.a.s. látið kant með garðaprjóni liggja aðeins yfir kant meðfram handveg).

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 74 til 84 lykkjur í kringum hálsmál á stutta hringprjóna 4 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið áður en fellt er laust af með sléttum lykkjum.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju brugðið framan í og aftan í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri)
symbols = 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (124)

country flag HEIN wrote:

Merci beaucoup pour votre réponse mais quand je fais un pull avec deux aiguilles, je le commence par le bas donc là avec ces explications pas facile à réaliser ;-) Bien cordialement

22.02.2024 - 17:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hein, si vous préférez tricoter votre pull de bas en haut, retrouvez ici tous les modèles correspondants; n'hésitez pas à ajouter des filtres supplémentaires pour affiner votre recherche. Bon tricot!

23.02.2024 - 08:03

country flag HEIN wrote:

Bonjour, je ne maîtrise pas du tout le tricot avec aiguilles circulaires. Auriez-vous les explications d'un montage normal ? Au secours ! un grand merci ;-) Bien à vous.

22.02.2024 - 10:05

country flag HEIN wrote:

Bonjour, je ne maîtrise pas du tout le tricot avec aiguilles circulaires. Auriez-vous les explications d'un montage normal ? Au secours ! un grand merci ;-) Bien à vous.

22.02.2024 - 10:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hein, le dos et le devant se tricotent ici en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles; vous pouvez donc utiliser des aiguilles droites, vos mailles seront juste plus serrées. Pour les manches, cette leçon devrait pouvoir vous aider à faire les ajustements nécessaires. Bon tricot!

22.02.2024 - 14:54

country flag Marianne Jensen wrote:

Hej, Skal der også slås 3 nye masker op i slutningen af pinden 2 gange på forstykket, som man gør på bagstykket (udtagningen ved 16 cm) , således at man ender med 78 masker på forstykket?

04.01.2024 - 11:38

DROPS Design answered:

Hej Marianne, ja, men halsudskæringen skal være dybere, så du slår først de nye masker op efter 3 cm ifølge opskriften :)

09.01.2024 - 15:13

country flag Dorrit wrote:

Hallo, in der Beschreibung steht bei “LINKE SCHULTER VORNE… Bei einer Länge von 3 cm neue Maschen für den Halsausschnitt…” hingegen für die “ RECHTE SCHULTER VORNE… Bei einer Länge von 4 cm neue Maschen für den Halsausschnitt…” Wird der Halsausschnitt dann nicht schief, wenn einmal nach 3 cm und auf der anderen Seite erst nach 4 cm die Maschen angeschlagen werden? Vielen Dank.

24.11.2023 - 20:50

DROPS Design answered:

Liebe Dorrit, damit beide Schulter gleiche Länge am Ende haben, soll man nach 3 cm beim linken Schulter und nach 4 cm beim rechten Schulter zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

27.11.2023 - 08:08

country flag Dorrit wrote:

Hallo, ich würde den Pullover gern mit Drops Belle in Größe M stricken. (entsprechend den Maßen, also natürlich mehr Maschen pro cm). Können Sie mir sagen, wieviel Wolle ich ca. dafür benötige? Vielen lieben Dank.

02.09.2023 - 09:00

DROPS Design answered:

Liebe Dorit, leider wird Belle dafür keine Alternative - hier wird entweder 2 Fäden Garngruppe A (Alpaca und Kid-Silk) oder 1 Faden Garngruppe C (siehe Garnumrechnter), dann sollen Sie sich am besten einen Pullover von der Garngruppe B entscheiden. Viel Spaß beim stricken!

04.09.2023 - 09:22

country flag Guylaine Rondeau wrote:

Pour le modèle 176-4 lorsque je tricote la 2e torsade ... les diminutions se font à partir du côté intérieur après les 6 mailles centrales ou bien à l extérieur (côté bordure) soit à partir de la 7e et 8e mailles envers...merci

11.06.2023 - 14:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rondeau, les diminutions de chaque côté de la torsade se font dans les mailles envers, avant et après la torsade, et se font côté jersey et non pas côté torsade. Bon tricot!

12.06.2023 - 09:00

country flag Renee GENTRY wrote:

I purchased the Alpaca yarn previously, and have chosen to use it for this sweater. Do I need to have the Kid-Silk to make it??

15.01.2022 - 20:56

DROPS Design answered:

Dear Renee, you can work with 2 threads of Alpaca (so you will need double the amount stated) or you use 1 thread of Alpaca and 1 of Kid-Silk, but you will need to buy the Kid-Silk yarn. Happy knitting!

16.01.2022 - 21:19

country flag Melanie wrote:

Bonjour pour le montage des mailles au niveau du dos 3 mailles à la fin du rang : c est après les 3 points mousses ou après ? Merci 🤩

19.12.2021 - 13:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mélanie, quand on monte des mailles, c'est toujours en fin de rang (comme on le montre dans cette vidéo en fin de rang sur l'envers par exemple). Bon tricot!

20.12.2021 - 07:51

country flag Antonina wrote:

Buongiorno, sto realizzando il maglione con i filati consigliati. Non riesco però a capire l'esecuzione della treccia chiusa, non è la solita. In particolare, non capisco perché lavorare in alcuni punti due parti separatamente tagliando il filo. Purtroppo non ho trovato un tutorial specifico, solo quello delle trecce tradizionali e della treccia aperta. Se poteste indicarmelo o darmi ulteriori spiegazioni, grazie.

28.11.2021 - 11:13

DROPS Design answered:

Buonasera Antonina, non ci sono tutorial per questa treccia al momento: deve procedere a lavorare come indicato. Buon lavoro!

08.12.2021 - 19:39