DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7304.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Let's Play

Peysa með laskalínu og röndum prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Alpaca og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-6
DROPS Design: Mynstur z-788
Garnflokkur A + C eða D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-100-100-100-100 g litur 100, natur
50-50-100-100-100-100 g litur 3112, dauf bleikur
50-50-100-100-100-100 g litur 3720, millibleikur
50-50-100-100-100-100 g litur 2923, sinnepsgulur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK (tilheyrir garnflokki C)
100-125-125-150-150-175 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 14 lykkjur og 16 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir= verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 5 – fyrir kanta með garðaprjóni og stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7304.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 8,5. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis ca í 8. og 9. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við fjögur prjónamerkin. ATH: Í stærð XL + XXL + XXXL er aukið mismunandi fjölda lykkja á fram-/bakstykki og ermum eins og útskýrt er í uppskrift.

AUKIÐ ÚT ÞANNIG ÞEGAR AUKNAR ERU ÚT 2 LYKKJUR (þ.e.a.s. 1 lykkja í hvorri hlið):
Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Á undan prjónamerki: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.

AUKIÐ ÚT ÞANNIG ÞEGAR AUKNAR ERU ÚT 4 LYKKJUR (þ.e.a.s. 2 lykkjur í hvorri hlið):
Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn næst prjónamerki prjónaður slétt (= gat), aðrir eru prjónaðir snúnir slétt (= ekki gat).
Á undan prjónamerki: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð er fyrsti uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (= ekki gat), hinir uppslættirnir (þ.e.a.s. uppslættir næst prjónamerki) prjónaðir slétt (= gat).

RENDUR:
Alpaca = A, Brushed Alpaca Silk = BAS.
ATH: Rendurnar eru gefnar upp til skiptis í umferðum og í cm. Allar rendur eru prjónaðar í sléttprjóni.
RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
2 umferð með 1 þræði dauf bleikur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði natur A + 1 þráður natur BAS.
9-9-10-10-10-11 cm með 1 þræði dauf bleikur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði millibleikur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði dauf bleikur A + 1 þráður natur BAS.
9-9-10-10-10-11 cm með 1 þræði millibleikur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði sinnepsgulur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði millibleikur A + 1 þráður natur BAS.
9-9-10-10-10-11 cm með 1 þræði sinnepsgulur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði natur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði sinnepsgulur A + 1 þráður natur BAS.
Til loka: 1 þráður natur A + 1 þráður natur BAS.

RENDUR ERMI:
2 umferðir með 1 þræði millibleikur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði dauf bleikur A + 1 þráður natur BAS.
9-9-9-9-8-9 cm með 1 þræði millibleikur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði sinnepsgulur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði millibleikur A + 1 þráður natur BAS.
9-9-9-9-8-9 cm með 1 þræði sinnepsgulur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði natur A + 1 þráður natur BAS.
2 umferðir með 1 þræði sinnepsgulur A + 1 þráður natur BAS.
Til loka: 1 þráður natur A + 1 þráður natur BAS.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 68-68-72-72-76-76 lykkjur á stutta hringprjóna 5 með 1 þræði í litnum natur Alpaca (= A) + 1 þræði í litnum natur Brushed Alpaca Silk (= BAS). Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í þriðju umferð (= ein umferð í garðaprjóni) er aukið út um 8-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 76-80-84-84-92-92 lykkjur. Skiptið yfir á stutta hringprjón 6 á eftir garðaprjóni og setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 13-14-15-15-17-17 lykkjur (= ½ bakstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 12 lykkjur (= hægri ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 26-28-30-30-34-34 lykkjur (= framstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 12 lykkjur (= vinstri ermi). Nú eru 13-14-15-15-17-17 lykkjur eftir á bakstykki á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í 2. umferð í sléttprjóni er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Nú er aukið þannig:
STÆRÐ S + M + L (fram-/bakstykki + ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fjögur prjónamerkin í annarri hverri umferð alls 14-16-17 sinnum.
STÆRÐ XL + XXL + XXXL: Aukið út um 2 lykkju í hvorri hlið á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð alls 2-3-4 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju hvoru megin á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð alls 17-17-18 sinnum. JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á ermum í annarri hverri umferð alls 19-20-22 sinnum.

RENDUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-11-10-11-13-12 cm (mælt frá uppfitjunarkanti við miðju að framan) prjónið RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan.

Eftir allar útaukningar fyrir laskalínu eru 188-208-220-244-264-284 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-21-23-25-26-28 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (þ.e.a.s. ca 22-24-26-28-29-31 cm frá öxl). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 27-30-32-36-40-43 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 40-44-46-50-52-56 lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 54-60-64-72-80-86 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 40-44-46-50-52-56 lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 27-30-32-36-40-43 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 120-132-144-160-176-192 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 8-8-8-6-6-6 cm millibili alls 3-3-3-4-4-4 sinnum = 132-144-156-176-192-208 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-55 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (þ.e.a.s. ca 49-51-53-54-56-58 cm frá öxl) eiga rendur að vera prjónaðar til loka. Prjónið 1 umferð slétt með 1 þræði í litnum natur Alpaca + 1 þræði í litnum natur Brushed Alpaca Silk þar sem auknar eru út 30-30-36-40-42-44 lykkjur jafnt yfir = 162-174-192-216-234-252 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjóna 5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm eru allar 4 lykkjur brugðið auknar til 5 lykkjur brugðið = 189-203-224-252-273-294 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 40-44-46-50-52-56 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 6, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-10 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi og setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6-6-8-8-8-10 lykkjur (= mitt undir ermi) = 46-50-54-58-60-66 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn með lit í rönd frá fram- og bakstykki þar til röndin mælist 9-9-10-10-10-10 cm, prjónið síðan RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið svona með 4½-3½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-9-10-11-13 sinnum = 34-36-36-38-38-40 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 28-27-26-25-24-23 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og 1 þráð í litnum natur Alpaca + 1 þráð í litnum natur Brushed Alpaca Silk.
Prjónið 4 umferðir garðaprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og fellið laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Elizabeth Kierulf wrote:

Hei, Let's Play genser. Det står at etter alle raglan fellingene er ferdig, da er det 220 masker på pinnen (str L). Arbeidet skal måle 23 cm fra oppleggskanten. Det stemmer ikke hos meg. Min målte kun 17-18 cm. Og hva menes når oppskriften sier den skal måle 23 cm foran, og 26 ca over skulderen? To forskjellige målinger.

23.05.2020 - 09:55

DROPS Design answered:

Hej Elizabeth, for at få målene i opskriften er det vigtigt at man overholder strikkefastheden i bredden og i højden (ifølge opskriften). Hvis du har flere pinde i højden end hvad vi har, så kan du være nødt til at strikke en pind ekstra imellem indtagningerne til raglan. Da det er raglan måler arbejdet lidt forskelligt alt efter om du måler lige op eller langs med raglanmaskerne. God fornøjelse!

29.05.2020 - 10:12

country flag Hege Vestheim wrote:

Kommentar til mitt eget spørsmål. Ser at strikkefastheten er oppgitt til 14 m pr 10 cm og ikke 16 som jeg skrev (og som er d jeg har på mitt arbeid). Beklager at jeg så feil - da skal jeg regne meg frem til hvor mange masker jeg trenger for å få de oppgitte målene. Heldigvis er dette en enkel modell å tilpasse.

07.11.2019 - 20:15

country flag Hege Vestheim wrote:

Jeg får ikke det oppgitte maskeantallet til å stemme med de oppgitte målene. I str XL skal d være 160 masker når man begynner å strikke på bolen, altså rett etter at maskene til ermene er satt på egen tråd. Men 160 masker når d er 16 m pr 10 cm blir jo bare 100 cm, og på diagrammet står det oppgitt at genseren skal måle 114 cm rett under ermene. Tenker jeg feil?

06.11.2019 - 07:18

DROPS Design answered:

Hei Hege. Ser at du allerede har funnet ut av svaret ditt, så bra :) Ja, den oppgitte strikkefastheten er 14 masker på 10 cm (og 16 pinner i høyden på 10 cm), ikke 16 masker pr 10 cm. God Fornøyelse videre på genseren.

11.11.2019 - 10:17

country flag Gunilla wrote:

Jag kanske har missat något, men när byter man till den långa rundstickan nr 6?

13.10.2018 - 15:31

DROPS Design answered:

Hej, du kan byta till den längre rundstickan så fort du ökat tillräckligt med maskor.

15.10.2018 - 17:57

country flag Birgitta wrote:

Nu har jag köpt exakt antal nystan och färger till denna fina tröja. Min fråga och oro är hur 200 gram Drops Alpacka och 125 gram Brushed Alpacka Silk ska räcka till storlek medium. Kan det vara fel ? Tacksam för svar.

24.04.2018 - 22:32

DROPS Design answered:

Hej Birgitta, det skall stämma.... vi har inte hört att det inte skulle stämma :)

26.04.2018 - 09:27

country flag Anne wrote:

Pull tout doux très agréable à tricoter et à porter. Je vais en faire un deuxième dans un autre coloris.

20.11.2017 - 11:19

country flag Fm wrote:

Hei Hvis jeg vil strikke denne med vanlig vrangbord hals, hvordan gjør jeg det da?

09.10.2017 - 23:34

DROPS Design answered:

Hei! Da må du sørge for å ha et antall masker så vrangborden går opp, maskeantallet må justeres i følge oppskriften før du starter med raglanøkningen så du får 76-80-84-84-92-92 masker (i de forskjellige størrelsene). Vi har dessverre ikke mulighet til å regne om maskeantallet i oppskriften. God fornøyelse!

11.10.2017 - 15:07

country flag Zenf wrote:

Hei Hvis jeg vil strikke denne med vanlig vrangbord hals, hvordan gjør jeg det da?

07.10.2017 - 00:11

country flag Kristine wrote:

In your response to Barb about measurements you refer her to the schematics on the pattern. what unit of measure are these in?

26.07.2017 - 21:28

DROPS Design answered:

Dear Kristine, the measurements on the schematics are given in cm. Happy Knitting!

27.07.2017 - 00:00

country flag Barb Baronas wrote:

Are there standard measurements for your sizing? I'm looking at 2 different patterns that are marked s/m/l/xl/xxl but I don't see bust sizes for them. I would like to make the Let's play and the Strawberry Vanilla pullovers. Thanks!

11.07.2017 - 06:38

DROPS Design answered:

Dear Barb, sizing always depends on several factors, mainly the style of the piece, and teh yarn used. You should always refer to the schematics found at the bottom of the pattern to figure out what size to knit. Happy crafting!

11.07.2017 - 08:17