Sanne Hansen skrifaði:
Hej Jeg har lige strækket jakken færdig og kan ikke forstå der ikke står hvad der skal gøres ved halsen. Mange hilsner fra Sanne
12.04.2013 - 23:18DROPS Design svaraði:
Der er ingen kant til halsen, du slutter med med Rib som der staar i mönstret. Hvis du ikke kan lide kanten, kan du strikke 2 riller over kanten eller haekle en kant.
16.04.2013 - 21:27
Alfhild skrifaði:
Jakken er god, men det går mere garn enn hva som er angitt, jeg måtte ha 250 g til jakken i str. 12/18 mnd, 200 g er oppgitt. Dessuten er halsrigningen håpløs da den jo vil bli altfor vid pga. vrangbordstrikken helt opp. Jeg heklet fire omganger med fastmasker i halsen og fikk da strammet inn til fin rigning. DA ble jakken super!
27.01.2013 - 14:33DROPS Design svaraði:
Tak for din melding. Strikkefastheden var paa din model ogsaa korrekt? Det kan vaere end grund til at den er blevet for vid og der mangler garn. Men vi skal notere at du har brugt mere garn og kontrollere her ogsaa.
07.02.2013 - 17:27
Ulla Andersen skrifaði:
Opskriften siger 250 g til jakken men jeg bruger 300 g til str. 2 år!!! Jakken er meget åben i halsen og ikke god.
12.05.2012 - 09:31
Birthe skrifaði:
Har jakken ingen krave ? Ps: 150 g er ikke nok
05.02.2012 - 00:01
Drops Design France skrifaði:
Bonjour Cynthia, les mesures indiquées dans le schéma sont juste, pour la taille 12/18 mois, on a : 23 cm de largeur totale après les emmanchures - 11 cm d'encolure = 12 cm / 2 épaules = 6 cm pour chaque épaule. Les 5 cm indiqués dans le schéma pour la manche correspondent à l'arrondi de la manche. Bon tricot !
02.01.2012 - 11:12
Cynthia skrifaði:
Bonjour, je tricote la veste en 12/18 et j ai remarque une erreur dans le diagramme: largeur notee en centre du diagramme: 29. largeur epaules: 23. donc 29-23=6. 6/2=3 et non pas 5 pour les emmanchures.
30.12.2011 - 01:34
Drops Design France skrifaði:
Bonjour Carole, tout à fait, on répartit des diminutions au 1er rang jersey et on répartit ensuite des diminutions avant les côtes 1/1. Bon tricot !
04.11.2011 - 08:55Carole Michaud skrifaði:
Si j,ai bien compris pour la veste il faut diminuer de 40 m. au début et faire une augmentation à 14 cm. de hauteur.Est-ce exact. Merci
03.11.2011 - 23:20
Vaness'Addict skrifaði:
J'aime beaucoup ce petit gilet!!!!Je vais le tricoter pour mon bébé!!!
08.10.2011 - 15:35
DROPS Baby 20-8 |
|
![]() |
![]() |
Sett með: Prjónaðri peysu, buxum og húfu fyrir börn ásamt hekluðum bangsa úr DROPS Merion Extra Fine.
DROPS Baby 20-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um buxur): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = fellið af fjórðu kantlykkju við miðju að framan. Í næstu umferð er fitjuð upp ný lykkja yfir þá lykkju sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 6, 12, 18 og 24 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 5, 11, 17, 23 og 29 cm. STÆRÐ 2 ára: 5, 12, 19, 26 og 33 cm. STÆRÐ 3/4 ára: 9, 16, 23, 30 og 37 cm. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fl í byrjun á hverri umf er skipt út fyrir 1 ll og hver umf endar með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. FL HEKLAÐAR SAMAN: 2 fl eru heklaðar saman í 1 fl þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. PEYSA: Fitjið upp 151-167-185 (201-219) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós beige. Prjónið stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið. Þegar stroffið mælist 2-2-2 (3-3) cm er skipt yfir á hringprjón 4,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið yfir fyrstu 6 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 139-155-173 (189-207) lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 40-44-50 (54-60) lykkjur jafnt yfir, endið með stroffi 1 lykkja brugðið/1 lykkja slétt yfir síðustu 6 lykkjur = 111-123-135 (147-159) lykkjur = 6 lykkjur í hvorri hlið = kantur að framan. Kantar að framan eru prjónaðir í stroffprjóni til loka. ATH! Munið að fella af fyrir hnappagötum – lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan! Haldið áfram í sléttprjóni og 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-15-18 (22-25) cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu) prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður eins og áður) JAFNFRAMT er aukið út um 28-34-38 (42-48) lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! = 139-157-173 (189-207) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki 37-42-46 (50-55) lykkjur inn frá hvorri hlið (bakstykki = 65-73-81 (89-97) lykkjur). Skiptið til baka yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-21-24 (28-31) cm fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin – fellið af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið) og hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 59-67-75 (83-91) lykkjur. Fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 3-3-2 (2-2) sinnum og 1 lykkja 0-0-1 (1-1) sinnum = 47-55-65 (73-81) lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-30-34 (39-43) cm fellið af miðju 25-29-31 (33-35) lykkjur fyrir hálsmáli (fellið af með sléttu yfir slétt og brugðið yfir brugðið) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 11-13-17 (20-23) lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með stroff eins og áður og 1 lykkja garðaprjón við hálsmál. Fellið af slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið þegar stykkið mælist 30-32-36 (41-45) cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 34-39-43 (47-52) lykkjur. Fellið af fyrir handveg eins og á bakstykki = 28-33-38 (42-47) lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (35-39) cm fellið af ystu 17-20-21 (22-24) lykkjur við miðju að framan við hálsmál (fellið af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið) = 11-13-17 (20-23) lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með stroff eins og áður og 1 lykkju garðaprjón við hálsmál. Fellið af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið þegar stykkið mælist 30-32-36 (41-45) cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 34-39-43 (47-52) lykkjur. Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: Fitjið upp 42-44-44 (48-48) lykkjur á sokkaprjón 3,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónið stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í stroff. Endurtakið útaukningu með 3-2-1½ (2-2) cm millibili alls 4-6-9 (10-12) sinnum = 50-56-62 (68-72) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-20 (25-29) cm fellið af 6 lykkjur undir ermi fyrir handveg (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið síðan stykkið fram og til baka JAFNFRAMT þegar fellt er af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun hverrar umferðar: 2-3-3 (4-4) lykkjur þar til stykkið mælist 21-22-24 (29-33) cm. Fellið af 3 lykkjur í byrjun næstu 2 umferða. Í næstu umferð eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í og festið tölur. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá mitti og niður. Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BUXUR: Fitjið upp 110-114-118 (130-134) lykkjur á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Í 8-9-9 (10-10) cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið næstu umferð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, sléttprjón yfir næstu 39-41-43 (49-51) lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-6 (8-8) lykkjur jafnt yfir = 33-35-37 (41-43) lykkjur í sléttprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, *, endurtakið alls 7 sinnum, 1 lykkja brugðið, sléttprjón yfir næstu 41-43-45 (51-53) lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 8-8-8 (10-10) lykkjur jafnt yfir = 33-35-37 (41-43) lykkjur í sléttprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á 1 lykkja brugðið. Nú eru 96-100-104 (112-116) lykkjur á prjóni. Setjið prjónamerki í miðjulykkju að framan og prjónamerki í miðjulykkju að aftan = 47-49-51 (55-57) lykkjur á milli lykkja með prjónamerki. Haldið áfram að prjóna í hring í sléttprjóni og 15 lykkjur í stroffprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-13-14 (16-17) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 miðjulykkjur að framan – aukið út með því að taka upp lykkjur frá fyrri umferð og prjónið þá lykkju slétt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 9-9-9 (10-10) sinnum = 114-118-122 (132-136) lykkjur. Eftir alla útaukningu mælist stykkið ca 18-20-21 (23-24) cm. Í næstu umferð eru felldar af 3 lykkjur að framan og 3 miðjulykkjur að aftan (þ.e.a.s. lykkjur með prjónamerki og 1 lykkju beggja vegna við hana) og hvor skálm er nú prjónuð til loka fyrir sig. Setjið 54-56-58 (63-65) lykkjur á þráð og hinar 54-56-58 (63-65) lykkjur fyrir hina skálmina eru settar á sokkaprjóna nr 4,5. SKÁLM: Prjónið í hring í sléttprjóni og 15 lykkjur í stroffprjóni í ytri hlið á skálm eins og áður – setjið prjónamerki í byrjun umferðar = innan á skálm. Þegar skálmin mælist 2-2-2 (3-3) cm er felld af 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-3-3½ (4-5½) cm millibili alls 5 sinnum = 44-46-48 (53-55) lykkjur. Þegar skálmin mælist 12-16-18 (22-27) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-6 (5-5) lykkjur jafnt yfir. ATH! Aukið ekki út yfir stroffprjóns lykkjur í hlið = 48-50-54 (58-60) lykkjur. Prjónið nú stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið í kringum allar lykkjur (passið að stroffið passi við stroffprjóns lykkjur frá hlið á skálm). Þegar skálmin mælist 18-22-25 (29-35) cm (buxurnar eiga að mælast 36-42-46 (52-59) cm frá mitti) fellið LAUST af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Prjónið hina skálmina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op á milli skálma. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. HÚFA: Fitjið upp 8-10-13 (15-18) lykkjur með litnum ljós beige og skiptið niður 4 sokkaprjóna (skiljið eftir smá bút af uppfitjunarþræði til þess að draga saman húfuna í lokin). Prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 7-10-12 (15-17) lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! = 15-20-25 (30-35) lykkjur. Setjið 5 prjónamerki í stykkið með 3-4-5 (6-7) lykkjur á milli hverra. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 75-80-85 (90-95) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm aukið út um 25-26-29 (30-31) lykkjur jafnt yfir (aukið er út á milli ca 3. og 4. hverrar lykkju) = 100-106-114 (120-126) lykkjur. Skiptið yfir í hringprjóna nr 3,5. Prjónið síðan stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið yfir allar lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af í næstu umferð þannig: ATH! Umferðin byrjar á 10-10-8 (8-7) lykkju fyrir miðju að aftan. Fellið af 21-21-17 (17-15) lykkjur með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið (= hnakki). Setjið næstu 25-27-33 (35-39) lykkur á þráð fyrir eyrnalepp. Fellið af næstu 29-31-31 (33-33) lykkjur (= enni). Prjónið síðan eyrnalepp fram og til baka yfir síðustu 25-27-33 (35-39) lykkjur þannig: Haldið áfram með stroff 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð alls 9-10-13 (14-16) sinnum í hvorri hlið (fellið af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið) = 7 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Eyrnaleppurinn mælist ca 5-6-8 (8,5-10) cm. Prjónið hinn eyrnaleppinn á sama hátt. Herðið að gatinu efst á húfunni með aðstoð af uppfitjunarbandinu og festið vel. SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 75 cm, tvinnið þá saman vel. Þræðið snúruna í gegnum kantinn neðst á öðrum eyrnaleppnum, leggið síðan snúruna saman tvöfalda og látið hana tvinna sig aftur. Gerið hnút á endann. Endurtakið á sama hátt og á fyrri eyrnalepp. ------------------------------------------------------- BANGSI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er á að hekla á höfði og síðan niður búkinn. Að lokum eru eyrun hekluð, hendur, fætur og hjörtu sem eru saumuð á búkinn í lokin. HÖFUÐ: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 4: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 5: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 6-11: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 12: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman – sjá FL HEKLAÐAR SAMAN – að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 13: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. UMFERÐ 14: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 15: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Fyllið höfuðið með vatti og heklið áfram búkinn í hring án þess að klippa frá. UMFERÐ 16-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 19: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 fl. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 20: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár. UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja fl = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 22: * 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár. UMFERÐ 23: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 24: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 25: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár og heklið afganginn af búk þannig: UMFERÐ 26-29: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 30: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl. UMFERÐ 31-39: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl. UMFERÐ 40: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. UMFERÐ 41-46: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. UMFERÐ 47: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl. UMFERÐ 48: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl. UMFERÐ 49: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 50: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn 24 fl. UMFERÐ 51: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. UMFERÐ 52: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 53: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl. UMFERÐ 54: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 55: Heklið saman allar fl 2 og 2 = 6 fl. Fyllið bangsann með vatti, þræðið þráð upp og niður í gegnum 6 fl, herðið að opinu og festið vel. FÓTUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um hringinn. UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið í innri lykkjubogann. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið aftur í gegnum alla fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru fyrstu 2 og síðustu 2 fl í umf heklaðar saman = 10 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru 5. og 6. fl heklaðar saman og 7. og 8. fl heklaðar saman = 8 fl. Heklið hinn fótinn á sama hátt. Fyllið fæturna með vatti og saumið neðan á búkinn. HÖND: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 3-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl. Fyllið höndina með vatti, leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 4 fl. Klippið frá og saumið stykkið efst á búkinn – saumið í efstu röndina með litnum ljós grágrænn. Heklið hina höndina á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið. EYRA: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 9 fl. UMFERÐ 3: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl. Leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 6 fl, snúið stykkinu og heklið 2 og 2 fl saman = 3 fl. Klippið frá og saumið eyrað á höfuðið. Heklið hitt eyrað á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið. LÍTIÐ HJARTA: Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu. Heklið 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 fl í miðju fl, 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 kl í ll frá byrjun fyrri umf. Klippið frá og saumið hjartað framan á bangsann. STÓRT HJARTA: Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju = 6 lykkjur (meðtaldar loftlykkjur í byrjun á umferð), snúið stykkinu. Heklið 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 fastalykkju mitt á hjarta, 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 keðjulykkju frá byrjun á fyrri umferð. Klippið þráðinn og saumið hjartað á bangsann. Heklið annað hjarta á sama hátt og festið á bangsann. Saumið augu og munn á bangsann með litnum svartur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.