Í þessu DROPS myndbandi gefum við ykkur stutta yfirsýn yfir hvernig flík með berustykki með ísaumuðum ermum mun sitja á líkamanum við mátun og hvar útaukningar-/úrtökulínur eru staðsettar.
STUTT YFIRLIT MEÐ VERKLÝSINGU:
Verkið er hægt að prjóna/hekla bæði ofan frá og niður eða neðan frá og upp.
OFAN FRÁ OG NIÐUR:
Framstykki og bakstykki er prjónað/heklað ofan frá og niður, annað hvort sitt í hvoru lagi að loka máli, eða hvort fyrir sig niður við handveg, síðan sameinuð að loka máli. Axlasaumar eru síðan saumaðir. Hægt er að prjóna/hekla ermarnar upp í kringum handveg og prjóna/hekla þær niður á við eða prjóna/hekla ermarnar neðan frá og upp og sauma þær við framstykki/bakstykki í lokin. Að lokum er hálsmálið gert.
NEÐAN FRÁ OG UPP:
Framstykki og bakstykki er prjónað/heklað neðan frá og upp, annað hvort sitt í hvoru lagi að loka máli, eða sameinuð við handveg, síðan aðskilin að loka máli. Axlasaumar eru síðan saumaðir.
Hægt er að prjóna/hekla ermarnar upp í kringum handveg og prjóna/hekla þær niður á við eða prjóna/hekla ermarnar neðan frá og upp og sauma þær við framstykki/bakstykki í lokin. Að lokum er hálsmálið gert.
Skrifaðu athugasemdir eða spurningar fyrir þetta myndband
Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.