Rose Cloud Sweater#rosecloudsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Alpaca eða DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og áferðamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-31 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN: Til að gera peysuna aðeins hærri aftan í hnakkanum þegar prjónað er í kringum berustykkið, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er hér að neðan. Sleppið þessum kafla ef þið viljið ekki upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar, lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið næstu 6 umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið 13-14-15-16-17-18-19 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði í byrjun umferðar (= miðja að aftan), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2: Prjónið 26-28-30-32-34-36-38 lykkjur brugðið, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið 39-42-45-48-51-54-57 lykkjur slétt, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið 52-56-60-64-68-72-76 lykkjur brugðið, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið 65-70-75-80-85-90-95 lykkjur slétt, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið 78-84-90-96-102-108-114 lykkjur brugðið, snúið stykkinu og herðið á þræð. Prjónið slétt til baka að merkiþræði við miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 8,6. Í þessu dæmi er aukið út eins og útskýrt er að neðan til skiptist í ca 8. og 9. hverja lykkju. Þessi samhverfa útaukning býr til 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1 - 4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið yfir fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Myndið nýja lykkju með uppslætti með þræðinum sem prjónað er með utan um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndast 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Fjarlægið ysta hluta lykkjunnar af vinstri prjóninum og prjónið síðan hinn endann á lykkjunni í gegnum fremri lykkjubogann. Nú hefur þú aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 8 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – það á að myndast gat (= 2 lykkjur fleiri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ef prjónuð er upphækkun aftan í hnakka á eftir kanti í hálsmáli, er upphækkunin prjónuð fram og til baka áður en afgangur af stykkinu er prjónaður í hring. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-132-136-144-148-156 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca eða DROPS Flora. Prjónið stroff í hring (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-3½-3½-4-4 cm. Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skipið yfir í hringprjón 3 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 14-16-16-16-18-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 134-140-148-152-162-176-186 lykkjur í umferð. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan, haldið síðan áfram að prjóna eins og útskýrt er að neðan. Ef þið viljið ekki upphækkun, prjónið þá eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 2-2-3-3-3-3-3 cm frá merki, aukið út 26-28-30-32-34-36-38 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 160-168-178-184-196-212-224 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 4-5-6-6-6-6-7 cm frá merki, aukið út 26-30-34-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 186-198-212-220-236-254-270 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 5-6-7-7-7-7-8 cm frá merki, prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og prjónið A.1 hringinn á berustykki. Jafnframt eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (stillið af þannig að aukið sé út í einingu í sléttprjóni í mynstrinu): Þegar berustykkið mælist 6-7-8-8-8-8-9 cm frá merki, aukið út um 28-32-34-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 214-230-246-256-276-296-316 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 8-9-10-10-10-10-11 cm frá merki, aukið út um 28-32-34-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 242-262-280-292-316-338-362 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 10-11-12-12-12-12-13 cm frá merki, aukið út um 28-32-34-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 270-294-314-328-356-380-408 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 12-13-14-14-14-14-15 cm frá merki, aukið út um 28-32-34-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 298-326-348-364-396-422-454 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 14-15-16-16-16-16-17 cm frá merki, aukið út um 22-24-26-36-40-42-46 lykkjur jafnt yfir = 320-350-374-400-436-464-500 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 16-17-19-18-18-19-20 cm frá merki, aukið út um 22-24-24-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 342-374-398-420-458-488-526 lykkjur. Útaukningu er nú lokið í stærðum XS, S og M. Í stærðum L, XL, XXL og XXXL er aukið út í síðasta skipti eins og útskýrt er hér að neðan. Þegar útaukningu er lokið í öllum stærðum, prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. Þegar berustykkið mælist 0-0-0-20-20-22-23 cm frá merki, aukið út um 0-0-0-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 342-374-398-438-478-510-550 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, prjónið mynstrið eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-22-23-23-25-27 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið nú stykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT og næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 51-56-61-66-71-78-85 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 70-76-78-88-98-100-106 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 101-111-121-131-141-155-169 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 70-76-78-88-98-100-106 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), og prjónið síðustu 50-55-60-65-70-77-84 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 218-238-262-282-306-338-370 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-14-16 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið A.1 í hring yfir allar lykkjur – passið upp á að mynstrið haldi áfram rétt eftir berustykkið. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingunni, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri) – ATH: Stillið af þannig að útaukningar séu gerðar í einingu með sléttprjóni. Aukið svona út með 5-5-5½-5½-5½-5½-5½ cm millibili alls 4 sinnum = 234-254-278-298-322-354-386 lykkjur. Prjónið slétt þar til stykkið mælist ca 40-42-44-45-45-47-48 cm frá merki við miðju að framan – ca 7-7-7-8-9-9-10 cm eru eftir að loka máli. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 44-46-48-50-50-52-54 cm frá merki. Skipið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 54-62-62-70-78-82-90 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 288-316-340-368-400-436-476 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki við miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 70-76-78-88-98-100-106 lykkjur af erminni af öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni - sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 78-84-88-98-110-114-122 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir erminni - umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið A.1 í hring – passið upp á að mynstrið haldi rétt áfram eftir berustykkið - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir erminni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 2 cm millibili alls 4-4-4-3-3-1-0 sinnum = 70-76-80-92-104-112-122 lykkjur – ATH: Stillið af þannig að úrtakan sé í einingu með sléttprjóni. Prjónið síðan slétt þar til ermin mælist 12-12-10-10-11-9-8 cm frá skiptingunni. Prjónið síðan sléttprjón þar til ermin mælist 15-15-13-13-13-12-10 cm frá skiptingunni. Skipið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 14-16-16-16-16-20-22 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 84-92-96-108-120-132-144 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 18-18-16-16-17-15-14 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosecloudsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.