Ireland Magic Cardigan#irelandmagiccardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska eða DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-11 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8-8-8½-9-9 cm millibili. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-104-108-112-116-120-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska eða DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig: Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm (= ca hæð hálsmálsins þegar það er brotið tvöfalt). Í lokin á hvorri af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 6 lykkjur fyrir kant að framan = 112-116-120-124-128-132-136 lykkjur í umferð, kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 9-9-9-9-11-11-11 cm, endið með umferð frá röngu. Setjið 1 merki innan við kant að framan í aðra hliðina á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið 4 umferðir í garðaprjóni (kantlykkjur að framan halda áfram eins og áður) í síðustu umferð í garðaprjóni (= frá röngu), er aukið út um 22-18-14-42-38-34-30 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 134-134-134-166-166-166-166 lykkjur. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5 frá réttu: FRAMSTYKKI (= 29-29-29-33-33-33-33 lykkjur): Prjónið kant að framan eins og áður (= 7 kantlykkjur að framan), prjónið A.1 (= 16 lykkjur), A.2 (= 4-4-4-8-8-8-8 lykkjur), prjónið 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur). ERMI (= 16-16-16-24-24-24-24 lykkjur): Prjónið A.3 (= 4-4-4-8-8-8-8 lykkjur), A.4 (= 8 lykkjur), A.5 (= 4-4-4-8-8-8-8 lykkjur) BAKSTYKKI (= 44-44-44-52-52-52-52 lykkjur): Prjónið 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur), prjónið A.6 (= 4-4-4-8-8-8-8 lykkjur), A.4 yfir næstu 32 lykkjur, A.7 (= 4-4-4-8-8-8-8 lykkjur), prjónið 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur) ERMI (= 16-16-16-24-24-24-24 lykkjur): Prjónið A.3 (= 4-4-4-8-8-8-8 lykkjur), A.4 (= 8 lykkjur), A.5 (= 4-4-4-8-8-8-8 lykkjur). FRAMSTYKKI (= 29-29-29-33-33-33-33 lykkjur): Prjónið 2 lykkjur slétt (= laskalykkjur), prjónið A.8 (= 4-4-4-8-8-8-8 lykkjur), A.9 (= 16 lykkjur), prjónið kant að framan eins og áður (= 7 lykkjur). Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.3 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 378-378-378-378-378-378-378 lykkjur í umferð, 61-61-61-61-61-61-61 lykkjur á hvoru framstykki, 74-74-74-74-74-74-74 lykkjur á hvorri ermi og 108-108-108-108-108-108-108 lykkjur á bakstykki. Í stærð XS er þessi kafli ekki prjónaður, farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR: Stærð S-M-L-XL-XXL-XXXL: Prjónið mynstur sem þegar er byrjað og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) 0-2-5-5-6-7-7 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. prjónað hefur verið upp að stjörnu í A.2, A.6, A.7 og A.8). Á ermum eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í tvöfalt perluprjón (A.10, passið uppá að A.10 passi yfir lykkjur sem eru prjónaðar í mynstri sem þegar er byrjað). Nú eru 378-394-418-418-426-434-434 lykkjur í umferð, 61-63-66-66-67-68-68 lykkjur á hvoru framstykki, 74-78-84-84-86-88-88 lykkjur á hvorri ermi og 108-112-118-118-120-122-122 lykkjur á bakstykki. ALLAR STÆRÐIR: Útaukningu á ermum er nú lokið. Prjónið nú með mynstur sem þegar er byrjað og haldið áfram með útaukningu, en nú er einungis aukið út á framstykkjum og bakstykki. Aukið út í annarri hverri umferð (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) 3-3-2-5-7-10-14 sinnum. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í tvöfalt perluprjón. Það eru nú 390-406-426-438-454-474-490 lykkjur í umferð, 64-66-68-71-74-78-82 lykkjur á hvoru framstykki, 74-78-84-84-86-88-88 lykkjur á hvorri ermi og 114-118-122-128-134-142-150 lykkjur á bakstykki. Haldið áfram með mynstur og kanta að framan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-21-23-25-28-32-36 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 64-66-68-71-74-78-82 lykkjur eins og áður – til og með 2 laskalykkjur, setjið næstu 74-78-84-84-86-88-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-7-9-11-13-15-17 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 114-118-122-128-134-142-150 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 74-78-84-84-86-88-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-7-9-11-13-15-17 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 64-66-68-71-74-78-82 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 252-264-276-292-308-328-348 lykkjur. Prjónið kanta að framan og mynstur sem þegar er byrjað, nýjar lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í tvöföldu perluprjóni. Prjónið mynstur og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem fækkað er um 44-40-40-40-36-32-32 lykkjur jafnt yfir = 208-224-236-252-272-296-316 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir úrtökunni), þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 74-78-84-84-86-88-88 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 5-7-9-11-13-15-17 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 79-85-93-95-99-103-105 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 5-7-9-11-13-15-17 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar í þessari lykkju og þessi lykkja er alltaf prjónuð í sléttprjóni. Prjónið hringinn í mynstri eins og áður, nýjar lykkjur í hvorri hlið við lykkjur fyrir miðju undir ermi eru prjónaðar í tvöföldu perluprjóni (A.10) – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 7-7-4½-4½-3½-3-3 cm alls 3-5-8-8-9-10-10 sinnum = 73-75-77-79-81-83-85 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-43-42-41-37-34-31 cm frá skiptingunni. Prjónið næstu umferð þannig: Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið), JAFNFRAMT er fækkað um 17-15-17-15-17-15-17 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 56-60-60-64-64-68-68 lykkjur. Haldið áfram með stroff hringinn þar til stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-42-41-37-34-31 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Saumið opið saman við miðju í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #irelandmagiccardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.