Anja Bruun skrifaði:
Hej Jeg vil hære om jeg kan strikke den med Karisma Gran Mange tak for hjælpen 😏😏😏
27.05.2025 - 18:20DROPS Design svaraði:
Hej Anja, ja men da skal du strikke med 3 tråde DROPS Karisma for at få strikkefastheden til at stemme med opskriften. Hvis du vil strikke med 1 tråd Karisma kan du vælge imellem dem her: Cardigan - raglan - oppefra og ned - 21 masker
28.05.2025 - 07:47
Blue Bliss Cardigan#blueblisscardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð síð oversize / stór peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu, vösum og i-cord. Stærð XS - XXL.
DROPS 259-37 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séða þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir næstu 4 hnappagötum með ca 9-9½-9½-10-10-10½ cm milli hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan draga þráðinn aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í aftari lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 62-66-70-70-74-78 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow. Skiptið yfir á hringprjón 6 (fitjaðar eru upp á grófari prjóna svo uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan. Þegar kantur í hálsmáli mælist 2-2-3-3-4-4 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið 2 umferðir sléttprjón jafnframt því sem fitjaðar eru upp 6 lykkjur fyrir kant að framan í lok hverra af þessum umferðum = 74-78-82-82-86-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (= kantur með uppábroti), en ystu 7 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Kantur í hálsmáli mælist nú ca 4-4-5-5-6-6 cm (= hæð á kanti í hálsmáli þegar búið er að brjóta uppá hann tvöfaldan). Prjónið síðan sléttprjón með 7 lykkjur kant að framan eins og áður þar til kantur í hálsmáli mælist 8-8-10-10-12-12 cm frá uppfitjunarkanti – endið með umferð frá röngu. Setjið eitt merki að innanverðu við kant að framan í annarri hlið á stykki, berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja – ATH: 3 lykkjur hvoru megin við merkiþráð (= alls 6 lykkjur) er nú kallaðar fyrir laskalykkjur og síðar á að auka út fyrir laskalínu á undan/eftir þessum 6 laskalykkjum. Teljið 15-16-17-17-17-18 (= vinstra framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 14-14-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-18-20-20-20-22 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 14-14-14-14-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, það eru 15-16-17-17-17-18 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= hægra framstykki). Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA og fellt af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 6 laskalykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkja / bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-3-6-7-12-11 sinnum (= 12-6-12-14-24-22 umferðir prjónaðar) = 122-102-130-138-182-178 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 6 laskalykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkja/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkja og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merkiþræði og á eftir 2. og 4. merkiþræði – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-6-5-5-3-4 sinnum (= 16-24-20-20-12-16 umferðir prjónaðar) = 8-12-10-10-6-8 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki og 4-6-5-5-3-4 sinnum útaukning á ermum) = 170-174-190-198-218-226 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 14-15-16-17-18-19 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 10-9-11-12-15-15 sinnum á ermum og stykkið mælist ca 19-20-21-23-24-25 cm frá merki fyrir miðju að framan. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað sléttprjón og kanta að framan án þess að auka út, að réttu máli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 32-33-35-36-39-41 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 28-28-32-34-38-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 50-52-56-58-64-68 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 28-28-32-34-38-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 32-33-35-36-39-41 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 126-134-142-150-162-174 lykkjur. Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkju í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 16-17-17-16-15-16 cm frá skiptingunni og næsta umferð er prjónuð frá réttu (stykkið mælist ca 35-37-38-39-39-41 cm frá merki fyrir miðju að framan). Geymið lykkjur á prjóni og prjónið 2 lausa vasahluta eins og útskýrt er að neðan. VASAHLUTI: Fitjið upp 20-20-22-22-24-24 lykkjur á prjón 8 með DROPS Snow. Prjónið sléttprjón fram og til baka í 2½ cm, Prjónið 1 umferð slétt frá réttu (= kantur fyrir uppábrot) og setjið síðan lykkjur á þráð. Prjónið 1 vasahluta til viðbótar á sama hátt. FRAM- OG BAKSTYKKI MEÐ VASAOPI: Nú er prjónað frá réttu yfir fram- og bakstykkislykkjur JAFNFRAMT sem vasaopin eru gerð þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 5-5-5-6-7-8 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur á þráð fyrir vasa, setjið 20-20-22-22-24-24 lykkjur af öðrum vasahlutanum inn á vinstri prjóni (með réttuna út), prjónið slétt yfir þessar 20-20-22-22-24-24 lykkjur, prjónið 62-70-74-80-86-96 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur á þráð fyrir vasa, setjið inn 20-20-22-22-24-24 lykkjur af öðrum vasahlutanum inn á vinstri prjón (með réttuna út), prjónið slétt yfir þessar 20-20-22-22-24-24 lykkjur, prjónið 5-5-5-6-7-8 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið síðan í sléttprjóni og kanta að framan fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 53-55-57-58-59-61 cm frá merki fyrir miðju að framan (stykkið mælist ca 18-18-19-19-20-20 cm frá vasaopi) – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Geymið lykkjurnar á prjóni og prjónið vasa eins og útskýrt er að neðan. VASAR: Setjið 20-20-22-22-24-24 lykkjur af þræði á hringprjón 8 og prjónið sléttprjón fram og til baka í 18-18-19-19-20-20 cm (stillið af að vasinn sé jafn langur og botninn á framstykki) – endið eftir umferð frá röngu og setjið lykkjur á þráð. Þegar báðir vasarnir hafa verið prjónaðir til loka, setjið vasana saman með fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI HELDUR ÁFRAM: Næsta umferð er prjónuð þannig frá réttu: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 5-5-5-6-7-8 lykkjur sléttprjón, prjónið næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur frá framstykki saman með 20-20-22-22-24-24 lykkjur frá vasa (lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2), prjónið 62-70-74-80-86-96 lykkjur sléttprjón, prjónið næstu 20-20-22-22-24-24 lykkjur frá framstykki saman með 20-20-22-22-24-24 lykkjur frá vasa (lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2), prjónið 5-5-5-6-7-8 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Í næstu umferð (= ranga) byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 34-38-38-42-42-50 lykkjur jafnt yfir í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 160-172-180-192-204-224 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt – munið eftir útaukning) þar til eftir eru 9 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 58-60-62-64-65-67 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 64-66-68-70-72-74 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 28-28-32-34-38-38 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 34-36-40-44-48-50 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 1-1-3-4-6-6 sinnum = 32-34-34-36-36-38 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-40-38-38-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-10-10-12-12-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 40-44-44-48-48-48 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 46-45-45-44-44-43 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Brjótið vasahlutana meðfram kanti fyrir uppábrot efst í vasa, inn að röngu og saumið innleggið niður með lausum sporum. Saumið vasana í hvora hlið með lausu spori. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueblisscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.