DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Andes yarn
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1290.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Chestnut Season Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Andes eða DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli, i-cord og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 255-29

#chestnutseasoncardigan

DROPS Design: Mynstur an-075
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ANDES frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
800-900-1000-1100-1200-1300 gr litur 9021, mandla

Eða notið:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
750-800-900-1000-1050-1150 gr litur 89, leir

TÖLUR:
DROPS TALA NR 512: 6-6-6-7-7-7 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 8 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1290.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

I-CORD:
FYRSTU 2 LYKKJUR:
Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
SÍÐUSTU 2 LYKKJUR:
Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.

KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4-4-4-5-5-5 lykkjur í garðaprjóni.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6-6-6-7-7-7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 87 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9,1.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um fyrir miðju undir ermum):
Til að úrtakan komi til skiptis hægra og vinstra megin við merkiþráðinn, er lykkjum fækkað til skiptist á undan og á eftir merkiþræði í umferðinni sem fækka á lykkjum í.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKIÞRÆÐI ÞANNIG:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKIÞRÆÐI ÞANNIG:
Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9½-8-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður.
Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið og síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvert fyrir sig. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 65-67-73-73-75-79 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Andes eða DROPS Snow. Skiptið yfir á hringprjón 6 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 6-6-6-7-7-7 cm (= ca hæð á kanti í hálsmáli þegar hann er brotinn saman tvöfalt).
Í lok hvorra af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 5-5-5-6-6-6 lykkjur fyrir kant að framan = 75-77-83-85-87-91 lykkjur í umferð. Haldið áfram með stroff eins og áður, en ystu 6-6-6-7-7-7 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist 13-13-13-15-15-15 cm – endið með eina umferð frá röngu.
Setjið eitt merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig:
Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 63-65-71-71-73-77 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út 3-4-4-4-8-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 78-81-87-89-95-101 lykkjur í umferð.
Síðan er prjónað sléttprjón og kantur að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-4-4 cm frá merki, eru lykkjur auknar út með því að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig:

A.1:
Prjónið kant að framan eins og áður, 2 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.1 alls 21-22-24-24-26-28 sinnum meðfram berustykki, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 99-103-111-137-147-157 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og kant að framan þar til stykkið mælist 8½-8½-9½-9½-9½-9½ cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:

A.2:
Prjónið kant að framan eins og áður, 2 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.2 alls 21-22-24-24-26-28 sinnum meðfram berustykki, prjónið 1 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 120-125-135-161-173-185 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og kant að framan þar til stykkið mælist 14-14-15-15-16-16 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:

A.3:
Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.3 alls 21-22-24-24-26-28 sinnum meðfram berustykki, prjónið kant að framan eins og áður = 141-147-159-185-199-213 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og kant að framan þar til stykkið mælist 19½-19½-20½-20½-22½-22½ cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:

A.4:
Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.4 alls 21-22-24-24-26-28 sinnum meðfram berustykki, prjónið kant að framan eins og áður = 162-169-183-209-225-241 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og kant að framan þar til berustykkið mælist 21-23-24-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 3-8-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 165-177-185-211-225-241 lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 30-32-33-37-40-43 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 28-30-32-38-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 49-53-55-61-67-73 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 28-30-32-38-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 30-32-33-37-40-43 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 125-133-141-155-171-183 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 44-46-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta merkiþræði, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, setjið til baka merkiþráðinn á prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni, prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merkiþræði, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, setjið til baka merkiþráðinn á prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni, prjónið út umferðina eins og áður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með kanta að framan eins og áður. Stykkið mælist ca 45-47-48-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan.
Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið stykkinu við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki og hægra framstykki og prjónið lykkjur frá vinstra framstykki fram og til baka eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 34-36-38-42-46-49 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 11-13-15-14-16-19 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 45-49-53-56-62-68 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning), þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni og 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan.
Þegar stroffið mælist 10-10-10-11-11-11 cm fellið af.
Peysan mælist 55-57-58-60-62-64 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 60-62-64-66-68-70 cm frá toppi á öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 34-36-38-42-46-49 Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 11-13-15-14-16-19 lykkjur jafnt yfir í umferð = 45-49-53-56-62-68 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið 2 lykkjur í i-cord, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 7-7-7-8-8-8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður.
Þegar stroffið mælist 10-10-10-11-11-11 cm fellið af.

BAKSTYKKI:
= 57-61-65-71-79-85 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 22-24-28-28-32-36 lykkjur jafnt yfir í umferð = 79-85-93-99-111-121 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið 2 lykkjur í i-cord, 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni og 2 lykkjur í i-cord.
Þegar stroffið mælist 10-10-10-11-11-11 cm fellið af.

ERMAR:
Setjið 28-30-32-38-39-41 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 36-38-42-48-51-53 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-3-3-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 1 lykkju til skiptis á undan og á eftir merkiþræði í hverjum 5-3½-3-1½-1½-1½ cm alls 6-8-10-16-18-18 sinnum = 30-30-32-32-33-35 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 34-32-32-32-31-29 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-10-10-11-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = = 38-38-42-42-44-44 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 10-10-10-11-11-11 cm fellið af. Ermin mælist ca 44-42-42-43-42-40 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op fyrir miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
prjónið 2 lykkjur slétt saman, en ekki sleppa lykkjum af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sömu 2 lykkjur slétt saman 1 sinni til viðbótar, en í aftari lykkjubogann á lykkjum, nú er hægt að sleppa lykkjum af vinstri prjóni = 2 lykkjur hafa nú orðið að 3 lykkjum (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð – svo ekki myndist gat) = prjónið 2 lykkjur slétt saman, en ekki sleppa lykkjum af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sömu 2 lykkjur slétt saman 1 sinni til viðbótar, en í aftari lykkjubogann á lykkjum, nú er hægt að sleppa lykkjum af vinstri prjóni = 2 lykkjur hafa nú orðið að 3 lykkjum (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð – svo ekki myndist gat)
prjónið 2 lykkjur slétt saman, en ekki sleppa lykkjum af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í aftari lykkjubogann á hvorum af þeim 2 lykkjum á vinstri prjóni, nú er hægt að sleppa lykkjum af vinstri prjóni = 2 lykkjur hafa nú orðið að 4 lykkjum (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð – svo ekki myndist gat) = prjónið 2 lykkjur slétt saman, en ekki sleppa lykkjum af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í aftari lykkjubogann á hvorum af þeim 2 lykkjum á vinstri prjóni, nú er hægt að sleppa lykkjum af vinstri prjóni = 2 lykkjur hafa nú orðið að 4 lykkjum (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð – svo ekki myndist gat)
Diagram for DROPS 255-29
Diagram for DROPS 255-29

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chestnutseasoncardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (2)

country flag Yvonne Sand skrifaði:

Hej, Hur stickar man A1 mönstret. Litet oklart i förklaringen! Finns det någon video på detta? Verkar litet klurigt! Mvh Yvonne Sand

08.11.2024 - 12:32

DROPS Design svaraði:

Hej Yvonne. Vi har dessvärre ingen video på detta än, men i denna video är det samma princip, bara att man i mönster 255-29 stickar 2 maskor räta tillsammans istället för bara 1 rätmaska som i videon. Mvh DROPS Design

08.11.2024 - 13:41

country flag Yvonne Sand skrifaði:

Hej! Hur många mm är knapparna?

03.11.2024 - 12:38

DROPS Design svaraði:

Hei Yvonne. De er 25 mm. Du kan også lese mer om knappene ved å klikke på: Garn & Stickor - Knappar - Olivträ no. 512. mvh DROPS Design

04.11.2024 - 11:20