Vera Wolf skrifaði:
Een foutje in de 'tip voor het meerderen aan de goede kant' NA de markeerdraad: Het moet zijn: neem de draad op vanaf de VOORKANT. Niet vanaf de achterkant. Zie ook engelse vertaling, daar staat het wel goed
02.10.2022 - 21:14
Bente Solskinn Vollstad skrifaði:
Ang forstykket. Når arbeidet måler 5 cm fra masker ble strikket opp, skal det økes til hals. Skal denne økningen gjøres fra både rett og vrangen?
28.09.2022 - 19:55DROPS Design svaraði:
Hei Bente, På forstykket øker du masker kun fra retten på begge skuldrene (på slutten av pinnen på høyre siden og begynnelsen av pinne på venstre siden). God fornøyelse!
29.09.2022 - 07:46
Shez Wills skrifaði:
Hi there, When doing the increase at the start of the Back Piece, do you include the stitch increased on that row in the A.1A & A.1C patern?
20.09.2022 - 13:31DROPS Design svaraði:
Dear Shez, yes, the increased stitches are in later rows included into A.1A and A.1C. Happy knitting!
20.09.2022 - 23:29
Elin skrifaði:
Hej, jag har svårt att förstå denna bit: Fortsätt A.1 fram och tillbaka till arbetet mäter ca 14-16-16-17-17-19 cm från där det stickades upp maskor – avsluta efter ett varv från avigsidan som på bakstycket. Nu sätts det 1 markör ytterst längs ärmhålet, 3-3-4-4-4-4 cm från där det stickades upp maskor. Menar ni de upptagna maskorna från axlarna mot bakstycket till, eller de skapade maskorna vid halsen på framstycket?
14.09.2022 - 11:54DROPS Design svaraði:
Hei Elin. Fra der det ble strikket opp masker langs skuldrene (de nye maskene ble lagt opp, ikke strikket opp). I oppskriften står det: ...från där det stickades upp maskor. God fornøyelse videre! mvh DROPS Design
19.09.2022 - 08:48
Petra skrifaði:
Gibt es die Anleitung auch in Deutsch?
12.09.2022 - 10:41DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, ja sicher, alle unsere Anleitungen finden Sie auch in Deutsch - diese finden Sie hier. Viel Spaß beim stricken!
12.09.2022 - 12:09
Shez Wills skrifaði:
Looks like an interesting pattern. My next knitting project 😉
02.09.2022 - 17:50
Maria Elena skrifaði:
Tan bonito y hermoso.
31.08.2022 - 23:32
Grietje De Weerd skrifaði:
Wordt het van onder naar boven gebreid, zoals aangegeven staat bovenaan?
29.08.2022 - 09:59DROPS Design svaraði:
Dag Grietje,
Nee, deze trui wordt van boven naar onder gebreid en het stond verkeerd in de titel. Het is nu aangepast.
31.08.2022 - 13:45
Marja Nyman skrifaði:
Krypto
08.08.2022 - 11:21
Dagmar skrifaði:
Lima Sweater
08.08.2022 - 09:39
Variety#varietysweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-3 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hluti á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur teknar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveg. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, síðan er afgangur af handvegi prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 39-39-43-43-47-47 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima eða DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki að innanverðu á ystu 3 lykkjum í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1A, aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, prjónið A.1B alls 8-8-9-9-10-10 sinnum, prjónið A.1C og aukið jafnframt út á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 34-38-40-44-46-50 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1B, en passið uppá að það séu alltaf minnst 3 lykkjur sléttprjón yst í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Þegar A.1A, A.1B og A.1C hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1 á hæðina alveg eins, þ.e.a.s. í hvert skipti sem A.1 er endurtekið á hæðina er pláss fyrir 4 mynstureiningar fleiri með A.1B á breiddina. Á eftir síðustu útaukningu eru 107-115-123-131-139-147 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-14-14-16-16-18 cm frá uppfitjunarkanti. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 8-10-8-9-9-11 cm mælt yst meðfram handveg (stykkið mælist ca 20-24-22-25-25-29 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan) – endið eftir umferð frá röngu. Nú er A.2 prjónað fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja sléttprjón, A.3A, prjónið A.3B alls 12-13-14-15-16-17 sinnum, A.3C, 1 lykkja sléttprjón. Haldið svona áfram. Þegar bakstykkið mælist 17-18-18-19-20-21 cm, mælt yst meðfram handvegi, klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða hjálparprjón. Handvegurinn á bakstykki hefur nú verið prjónaður til loka (A.3 er ekki lokið, en prjónast til loka á fram- og bakstykki). Prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með hægri öxl (eins og flíkin er mátuð). Prjónið upp frá réttu 34-38-40-44-46-50 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu (þ.e.a.s. frá handveg): S, M, XXL og XXXL: 3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1B þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 3 lykkjur sléttprjón. L og XL: 3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1B þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1E, endið með 3 lykkjur sléttprjón. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjójnaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu , lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU! Aukið svona út fyrir hálsmáli alls 6-6-7-7-8-8 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1B, en passið uppá að það séu alltaf minnst 3 lykkjur sléttprjón yst við hálsmál. Eftir síðustu útaukningu eru 40-44-47-51-54-58 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn þegar síðasta útaukning frá réttu er lokið. Setjið lykkjur á þráð eða hjálparprjón. Nú er vinstri öxl prjónuð eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp frá réttu 34-38-40-44-46-50 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hálsmáli): S, M, XXL og XXXL: 3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1D þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 3 lykkjur sléttprjón. L og XL: 3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1E þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1B, endið með 3 lykkjur sléttprjón. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í byrjun hverrar umferðar frá réttu, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU! Aukið svona út fyrir hálsmáli alls 6-6-7-7-8-8 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1D/A.1E, en passið uppá að það séu alltaf minnst 3 lykkjur sléttprjón yst við hálsmál. Eftir síðustu útaukningu eru 40-44-47-51-54-58 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir 40-44-47-51-54-58 lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið mynstur eins og áður yfir 40-44-47-51-54-58 lykkjur frá hægra framstykki = 107-115-123-131-139-147 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka þar til stykkið mælist ca 14-16-16-17-17-19 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – endið eftir umferð frá röngu eins og á bakstykki. Setjið nú 1 prjónamerki yst meðfram handveg, 3-3-4-4-4-4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Taktu smá mælingu á flíkinni með því að brjóta stykkið við hæsta punkt innst á öxl og við prjónamerki á framstykki – athugaðu hvort A.1 sé jafn langt niður á bakstykki og framstykki. Þetta er mikilvægt til að mynstrið passi síðar í hliðum þegar stykkið er sett saman. Jafnaðu lengdina til í A.1 eftir þörf. Prjónið síðan A.2 fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja sléttprjón A.3A, prjónið A.3B alls 12-13-14-15-16-17 sinnum, A.3C, 1 lykkja sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur þar til framstykkið mælist 23-24-26-27-28-29 cm, mælt yst meðfram handveg frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (A.3 er ekki lokið, en endið framstykkið í sömu umferð í mynsturteikningu eins og á bakstykki – þetta er mikilvægt til að mynstrið passi í hliðum þegar stykkið er sett saman). Setjið nú framstykkið og bakstykkið saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið mynstur eins og áður yfir 107-115-123-131-139-147 lykkjur á framstykki, fitjið upp 6-8-8-10-14-18 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir 107-115-123-131-139-147 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 6-8-8-10-14-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) = 226-246-262-282-306-330 lykkjur. Prjónið A.3 til loka – lykkjur sem voru fitjaðar upp í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni þar til A.3 hefur verið prjónað til loka. Prjónið nú A.4 hringinn á fram- og bakstykki – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 2-0-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 228-246-264-282-306-330 lykkjur. Í síðustu umferð í A.4, aukið út um 32-34-36-38-38-42 lykkjur jafnt yfir = 260-280-300-320-344-372 lykkjur (þetta er gert þar sem næsta umferð dregur stykkið saman). Þegar A.4 hefur verið prjónuð til loka, prjónið A.5 hringinn á fram- og bakstykki, A.5 er endurtekið á hæðina þar til stykkið mælist 41-43-45-46-46-48 cm, mælt frá hæsta punkti á framstykki inn að hálsmáli (A.5 er prjónað ca 3-3-4-4-4-4 sinnum á hæðina og stykkið mælist ca 18-19-19-19-18-19 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp í hvorri hlið) – JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.5, fækkið um 32-36-36-40-40-44 lykkjur jafnt yfir = 228-244-264-280-304-328 lykkjur. Nú er A.6 prjónað í hring yfir allar lykkjur. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1B hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, mælt frá hæsta punkti á framstykki inn við hálsmál – endið þegar prjónaðar hafa verið 2 eða 3 umferðir í sléttprjóni eftir umferð með brugðnum lykkjum (stykkið mælist ca 25-26-26-27-28-29 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp í hvorri hlið). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 56-64-68-76-76-84 lykkjur jafnt yfir = 284-308-332-356-380-412 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. HÆGRI ERMI: Notið hringprjón 4, prjónið upp frá réttu 36-38-38-40-42-44 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 48-50-54-56-58-60 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki) = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja og til að mæla frá. Byrjið frá röngu með 2. umferð í A.4 og prjónið A.4 fram og til baka – prjónamerkið mitt á ermi á að passa við tákn í A.4. Þegar ermin mælist 1-2-2-2-3-4 cm, setjið stykkið saman og afgangur af ermi er prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4B hringinn. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá þar sem stykkið var sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 12-12-14-14-16-16 sinnum = 60-64-64-68-68-72 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 35-33-32-32-30-28 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Nú eru eftir ca 12 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-16-16-20-20 lykkjur jafnt yfir = 76-80-80-84-88-92 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið af aðeins laus. Ermin mælist ca 48-47-46-46-45-44 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 4, prjónið upp frá réttu 48-50-54-56-58-60 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 36-38-38-40-42-44 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja og til að mæla frá. Afgangur af ermi er prjónaður á sama hátt og hægri ermi. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 116-116-128-128-140-140 lykkjur á stuttan hringprjón 3. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12-12-13-13-14-14 cm. Brjótið stroffið niður að innan verðu á stykkinu og festið niður með 1 spori við hvora öxl. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #varietysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.