DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12672.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Variety

Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Karisma fyrir herra. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 233-24
DROPS Design: Mynstur li-155
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
900-1000-1050-1150-1250-1350 g litur 0206, hveiti

Eða notið:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
900-1000-1050-1150-1250-1350 g litur 77, ljós eik

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12672.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka.
Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveginn. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 39-39-43-43-47-47 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima eða DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð.
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1A, aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU, prjónið A.1B alls 8-8-9-9-10-10 sinnum, prjónið A.1C og aukið jafnframt út á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 30-34-36-40-42-46 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1B, en passið uppá að það séu alltaf minnst 3 lykkjur sléttprjón yst í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ATH: Þegar A.1A, A.1B og A.1C hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1A á hæðina alveg eins, þ.e.a.s. í hvert skipti sem A.1 er endurtekið á hæðina er pláss fyrir 4 mynstureiningar fleiri með A.1B á breiddina.
Á eftir síðustu útaukningu eru 99-107-115-123-131-139 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 11-12-13-14-15-16 cm frá uppfitjunarkanti.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 10-10-10-10-11-12 cm mælt yst meðfram handvegi (stykkið mælist ca 21-22-23-24-26-28 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan) – endið eftir umferð frá röngu.
Nú er prjónað A.2 fram og til baka yfir allar lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja sléttprjón, A.3A, prjónið A.3B alls 11-12-13-14-15-16 sinnum, A.3C, 1 lykkja sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar bakstykkið mælist 19-20-20-21-22-23 cm, mælt yst meðfram handvegi, klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón. Handvegurinn á bakstykki hefur nú verið prjónaður til loka (A.3 er ekki lokið, heldur er prjónað til loka á fram- og bakstykki). Prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið með hægri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Prjónið upp frá réttu 30-34-36-40-42-46 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá handvegi):

S, M, XXL og XXXL:
3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1B þar til 3 lykkjur eru eftir, endið eftir 3 lykkjur sléttprjón.

L og XL:
3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1B þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar í A.1B, endið með 3 lykkjur sléttprjón.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu, munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU! Aukið svona út fyrir hálsmáli alls 6-6-7-7-8-8 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1B, en passið uppá að það séu alltaf minnst 3 lykkjur sléttprjón yst við hálsmál. Á eftir síðustu útaukningu eru 36-40-43-47-50-54 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá þegar síðasta útaukning hefur verið prjónuð til loka. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Nú er vinstri öxl prjónuð eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið upp frá réttu 30-34-36-40-42-46 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu (þ.e.a.s. frá hálsmáli):

S, M, XXL og XXXL:
3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1D þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 3 lykkjur sléttprjón.

L og XL:
3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1E þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 fyrstu lykkjurnar í A.1E, endið með 3 lykkjur sléttprjón.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál.
Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu, munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU! Aukið út fyrir hálsmáli svona alls 6-6-7-7-8-8 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1D/A.1E, en passið uppá að það séu alltaf minnst 3 lykkjur sléttprjón yst við hálsmál. Á eftir síðustu útaukningu eru 36-40-43-47-50-54 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir 36-40-43-47-50-54 lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið mynstur eins og áður yfir 36-40-43-47-50-54 lykkjur frá hægra framstykki = 99-107-115-123-131-139 lykkjur.
Haldið áfram með A.1 fram og til baka þar til stykkið mælist ca 16-16-18-18-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – endið eftir umferð frá röngu eins og á bakstykki.
Nú er sett 1 prjónamerki yst meðfram handvegi, 3-3-4-4-4-4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Takið mál á stykkinu með því að brjóta stykkið við hæsta punkt innst á öxl og við prjónamerki á framstykki – athugið að A.1 nái jafn langt niður á bakstykki og á framstykki. Þetta er mikilvægt til að mynstrið komi til með að passa í hliðum þegar stykkið er sett saman. Stillið lengdina á A.1 eftir þörf.
Síðan er A.2 prjónað fram og til baka yfir allar lykkjurnar.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja sléttprjón, A.3A, prjónið A.3B alls 11-12-13-14-15-16 sinnum, A.3C, 1 lykkja sléttprjón.
Haldið svona áfram með mynstur þar til framstykkið mælist 25-26-28-29-30-31 cm, mælt yst meðfram handvegi frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (A.3 er ekki lokið, en endið framstykkið í sömu umferð í mynsturteikningu og á bakstykki – þetta er mikilvægt til að mynstrið komi til með að passa í hliðum þegar stykkið er sett saman).
Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið mynstur eins og áður yfir 99-107-115-123-131-139 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-6-8-8-10-14 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir 99-107-115-123-131-139 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 6-6-8-8-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) = 210-226-246-262-282-306 lykkjur.
Prjónið A.3 til loka – lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni þar til A.3 hefur verið prjónað til loka.
Nú er prjónað A.4 hringinn á fram- og bakstykki – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-2-0-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 210-228-246-264-282-306 lykkjur.
Í næst síðustu umferð í A.4, aukið út um 30-32-34-36-38-38 lykkjur jafnt yfir = 240-260-280-300-320-344 lykkjur (þetta er gert þar sem næsta umferð dregur stykkið saman).

Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.5 hringinn á fram- og bakstykki. A.5 er endurtekið á hæðina þar til stykkið mælist 41-43-45-46-46-48 cm, mælt frá hæsta punkti á framstykki inn við hálsmál (A.5 er prjónað ca 3-4-4-4-4-4 sinnum á hæðina og stykkið mælist ca 19-21-21-20-20-20 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp í hvorri hlið) – JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.5, fækkið um 28-32-36-36-40-40 lykkjur jafnt yfir = 212-228-244-264-280-304 lykkjur.
Nú er A.6 prjónað hringinn yfir allar lykkjur.
Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1B hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 57-59-61-63-65-67 cm, mælt frá hæsta punkti á framstykki inn við hálsmál – endið þegar prjónaðar hafa verið 2 eða 3 umferðir í sléttprjóni á eftir umferð með brugðnum lykkjum. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-44-48-52-60-60 lykkjur jafnt yfir = 252-272-292-316-340-364 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af.
Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki.

HÆGRI ERMI:
Notið hringprjón 4, prjónið upp frá réttu 40-42-42-44-46-48 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 52-54-58-60-62-64 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið er notað til að telja út hvar mynstri á að byrja og til að mæla frá. Byrjið frá röngu með 2. umferð í A.4 og prjónið A.4 fram og til baka – prjónamerkið mitt á ermi á að passa við tákn í A.4.
Þegar ermin mælist 1-1-2-2-2-3 cm, setjið stykkið saman og afgangur af ermi er prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1B hringinn.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-5-3-6-5-2 cm frá þar sem stykkið var sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2½-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 19-21-22-23-25-26 sinnum = 54-54-56-58-58-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 51-50-48-47-46-44 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Nú eru eftir ca 5 cm að loknu máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-18-20-18-18-20 lykkjur jafnt yfir = 72-72-76-76-76-80 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist alls ca 57-56-55-54-53-52 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.

VINSTRI ERMI:
Notið hringprjón 4, prjónið upp frá réttu 52-54-58-60-62-64 lykkjur frá botni á handvegi og upp að öxl (meðfram framstykki) og 40-42-42-44-46-48 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið er notað til að telja út hvar mynstrið á að byrja og til að mæla frá. Afgangur af ermi er prjónaður á sama hátt og hægri ermi.
Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 116 til 136 lykkjur á stuttan hringprjón 3. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm.
Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykkinu og festið með 1 spori við hvora öxl.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann svo ekki myndist gat (lykkjan snýr til vinstri séð frá réttu)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn tekinn af vinstri prjóni, settur til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn í fremri lykkjubogann, svo ekki myndist gat (lykkjan snýr til hægri séð frá réttu)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = merkir prjónamerki á ermi
symbols = botninn á handvegi er saumaður þannig: Saumið b við B
symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) eru prjónaðar upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e) eru prjónaðar upp meðfram hægri öxl að aftan (E)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Louise Dufresne wrote:

Quand c’est écrit de continuer À.1 , quel est ce À. 1 ?

30.03.2024 - 16:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dufresne, les diagrammes sont numérotés à partir de A.1 jusqu'à A.6, autrement dit, lorsque vous tricotez A.1, reportez-vous au diagramme correspondant en bas de la page: soit A.1A, A.1B, A.1C. Bon tricot!

02.04.2024 - 14:28

country flag Manuela Billat wrote:

Bonjour, j'ai un doute concernant le relevage des mailles de l'emmanchure. Je pars du bas, mais nous avons une dizaine de mailles horizontales sous l'emmanchure. Doit on partir du milieu de ce "plat" pour remonter en relevant les mailles de la manche ? Merci :)

28.03.2024 - 14:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Billat, on ne relève pas de mailles dans celles montées lorsque l'on a réunit le dos et le devant, les premiers centimètres de la manche seront ensuite cousu le long de ces mailles - cf b et B dans le schéma. Bon tricot!

02.04.2024 - 13:46

country flag Alison wrote:

Hello again, thank you for your reply to my first question. I have another problem. I have followed instructions for the back until the armhole measures 20cm (finishing after row 18 of A3) and have knitted the front until the armhole measures 16cm. I don’t understand instructions to control the length? On the back the armhole knitted in A1 is 10cm but on the front it is 16cm. How can the pattern match? Please help!

20.01.2024 - 17:38

DROPS Design answered:

Dear Alison, the front piece is longer than the back piece, armhole on front piece will be 26 cm (to get a total of 23 cm for the armhole when jumper is done), work the different diagram exactly as explained to get the pattern matching. Happy knitting!

22.01.2024 - 08:28

country flag Alison wrote:

Hello Can you please help me with A3A, A3B and A3C? I don’t understand the pattern. What do I do when there is a black line over two stitches before make 1 yarn over?

10.01.2024 - 20:46

DROPS Design answered:

Hi Alison, The diagonal lines over 2 squares mean "K2 together" when the line goes from bottom left to top right, and "slip 1 stitch knit-wise, knit 1 and pass slipped stitch over" when the line goes from top left to bottom right. Happy knitting!

11.01.2024 - 07:44

country flag Carina Hansson wrote:

Det står att halskanten ska vikas in och sys med ”en maska i varje axel”. Halskanten ska väl sys fast hela vägen runt om?

06.01.2024 - 14:03

DROPS Design answered:

Hej Carina, det har vi ikke gjort, men det må du selvfølgelig gerne, sørg for at du ikke syr for stramt i så fald :)

11.01.2024 - 14:34

country flag Kim Hansson wrote:

Under afsnittet \"forstykket\" \"alle størrelser\" styr der følgende \"Fortsæt A.1 frem og tilbage til arbejdet måler ca 16-16-18-18-19-20 cm fra hvor der blev strikket masker op – afslut efter en pind fra vrangen som på bagstykket. \" \r\nMen der er ikke noget diagram A.1 når jeg kigger i diagrammerne? hvad menes der med dette? \r\nmvh Kim

30.11.2023 - 18:38

country flag Eva Rossen wrote:

Jeg har strikket trøjen i str. Xl i Drops Karisma og har 5 nøgler til overs, trods det, at jeg "kun" købte 22 nøgler (opskriften siger 1150 gr svarende til 23 nøgler) Var omkring virkelig mange webshops for at få 22 nøgler i samme indfarvning, hvilket så overhovedet ikke var nødvendigt.... Men trøjen blev mega flot (mærk lilla) og er til stor glæde for yngste - sønnen ❤️

09.11.2023 - 21:42

country flag Sue Riley wrote:

What chest sizes are S -M - L - XL - XXL - XXXL? I would like to knit this jumper for size 38 / 40 inch chest and not sure which size to use. Also, can you advise me how much wool is needed? eg is 1000g (ie 20 x 50g balls) the right amount to buy in yarn group B?

08.08.2023 - 17:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Riley, you will find the finished measurements in the measurement chart at the bottom of the pattern page; all measurements are taken flat from side to side - measure a similar garment he likes the shape and compare to the measurements in the chart to find out the appropriate size. Read more here. To get the correct amount of balls you have to divide the total weight with 50 g, but if you like to use another yarn group B, make sure you will get enough yarn by using the yarn converter. Happy knitting!

09.08.2023 - 08:04

country flag Mette Strandqvist wrote:

Kære DropsDesign Jeg skal til at strikke denne trøje, men kan ikke finde: 1: måleskitsen, som plejer at være nederst i opskriften. 2: samt diagram A1-A6 (under afsnittet med Halskant står der Diagram, men jeg kan ikke åbne disse diagrammer, hvis det er disse som skal bruges) Kan I hjælpe vil det glæde mig meget - tak vh Mette

23.07.2023 - 14:55

DROPS Design answered:

Hei Mette. Ja, her manglet det tekst/målskisse/diagrammer på den danske siden. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. Dette er nå fikset. mvh DROPS Design

25.07.2023 - 09:25

country flag Phi wrote:

Bonjour, Continuer ainsi jusqu'à ce que l'emmanchure mesure 10-10-10-10-11-12 cm (l'ouvrage mesure environ 21-22-23-24-26-28 cm à partir du rang de montage au milieu dos) – arrêter après un rang sur l'envers. Pendant que je tricote jusqu’à l’emmanchure, est-ce que je continue à faire des augmentations? Merci d’avance! :)

27.05.2023 - 22:23

DROPS Design answered:

Bonjour Phi, quand les augmentations sont terminées, vous devez avoir 99-107-115-123-131-139 mailles sur l'aiguille, vous tricotez maintenant sans augmenter la partie emmanchure sans augmenter davantage. Bon tricot!

30.05.2023 - 10:36