DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Around Town

Prjónuð peysa úr DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 237-7
DROPS Design: Mynstur x-482
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-750-800-900-950-1050 g litur 69, perluhvítur

Eða notið:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
600-700-750-800-900-1000 g litur 19, beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með áferðaprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2).
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á UMFERÐ FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur sléttprjón (1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman/brugðið saman eftir mynstri, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð / 2 lykkjur snúnar brugðið saman eftir mynstri (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp þar til stroffið hefur verið prjónað til loka, síðan er stykkið sett saman. Fram- og bakstykki er prjónað í hring upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig til loka máls. Axlasaumarnir eru saumaðir saman. Síðan eru lykkjur teknar upp meðfram handvegi og ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, afgangur af ermi er prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 110-118-126-138-150-162 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 7 cm – endið eftir umferð frá röngu. Geymið stykkið og prjónið framstykkið.

FRAMSTYKKI.
Fitjið upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stroffið mælist 7 cm – endið eftir umferð frá röngu.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Tengið stykkin saman þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá framstykki og fækkið jafnframt um 26-28-30-32-34-36 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá bakstykki og fækkið jafnframt um 26-28-30-32-34-36 lykkjur jafnt yfir = 168-180-192-212-232-252 lykkjur í umferð (84-90-96-106-116-126 lykkjur á framstykki og 84-90-96-106-116-126 lykkjur á bakstykki).
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn á fram- og bakstykki.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 13-13-13-13-15-15 cm, prjónið A.2 hringinn á fram- og bakstykki – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 168-180-192-213-231-252 lykkjur.
Í síðustu umferð í A.2 er aukið út til 0-4-0-3-1-4 lykkjur jafnt yfir = 168-184-192-216-232-256 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 22-22-22-23-25-25 cm frá uppfitjunarkanti á framstykki/bakstykki. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað sléttprjón að réttu máli.
Nú er A.3 prjónað í hring á fram- og bakstykki. A.3 er endurtekið alls 2-2-3-3-3-4 sinnum á hæðina. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 27-27-30-31-33-35 cm frá uppfitjunarkanti. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón að réttu máli.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-4-0-4-0-4 lykkjur jafnt yfir = 168-180-192-212-232-252 lykkjur.
Nú er sett 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan, að auki er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – þetta er gert þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (mitt að framan), teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (mitt að aftan). Nú eru 42-45-48-53-58-63 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónið A.4 þannig: Teljið út frá tákni merktu sem miðja í mynsturteikningu og prjónamerki mitt að framan hvar mynstrið á að byrja í hliðinni, prjónið A.4 eins langt og hægt er að prjónamerki í hlið (prjónamerki mitt að framan á að passa við tákn fyrir miðju í A.4), síðan byrjar A.4 upp á nýtt alveg eins og í byrjun á umferð og A.4 er prjónað eins langt og hægt er fram að prjónamerki í byrjun á umferð (prjónamerki mitt að fatan á að passa við tákn fyrir miðju í A.4). Haldið svona áfram með mynstur og fellið af fyrir handvegi eins og útskýrt er að neðan.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-2-5-6-7-8 lykkjur á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 6-4-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-2-5-6-7-8 lykkjur á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af 6-4-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður út umferðina.
Bakstykkið og framstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 78-86-86-94-102-110 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með A.4 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í síðustu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 80-88-88-96-104-112 lykkjur.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. A.1 er endurtekið á hæðina að loka máli.
Fækkið síðan lykkjum fyrir öxl og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

ÖXL - SKÁHALLANDI:
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn):
Setjið lykkjur á þráð frá hlið þannig: 4-4-4-5-5-6 lykkjur 4 sinnum og síðan síðustu 10-12-12-12-14-14 lykkjur við hálsmál.
Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum eru lykkjurnar settar til baka á prjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráð, takið þráðinn upp á milli 2 lykkja og prjónið snúið brugðið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni). Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÁLSMÁL:
Jafnframt þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 24-28-28-28-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með A.1, haldið áfram að setja lykkjur á þráð fyrir öxl og prjónið að auki ystu 3 lykkjur við hálsmál í sléttprjóni.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum.
Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 52-54-56-58-60-62 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
= 78-86-86-94-102-110 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið mynstur á sama hátt og á bakstykki. Að auki er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm, setjið miðju 20-24-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með A.1, en ystu 3 lykkjur við hálsmál er prjónaðar í sléttprjóni.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4-4-4-4-5-5 sinnum.

ÖXL - SKÁHALLANDI:
Jafnframt þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl alveg eins og á bakstykki, þ.e.a.s. setjið 4-4-4-5-5-6 lykkjur á þráð 4 sinnum og síðan síðustu 10-12-12-12-14-14 lykkjur við hálsmál.
Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu eins og á bakstykki, áður en fellt er af með sléttum lykkjum frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

ERMI:
Notið hringprjón 5 og DROPS Alaska eða DROPS Big Merino, prjónið upp frá réttu 32-34-36-37-39-41 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl og 32-34-36-37-39-41 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni = 64-68-72-74-78-82 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin á að mælast frá þessu prjónamerki og prjónamerkið er notað þegar telja á út hvar mynstrið á að byrja.
Byrjið frá röngu og prjónið A.5 þannig: Teljið út frá tákni merktu sem miðja í mynsturteikningu og prjónamerki á ermi hver mynstrið á að byrja og prjónið A.5 fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar ermin mælist 2-1-3-4-4-5 cm frá þar sem prjónamerkið var sett, setjið stykkið saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur hringinn (tákn fyrir miðju í mynsturteikningu á að halda áfram að passa með prjónamerki mitt á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi).
Þegar ermin mælist 5-4-6-7-7-8 cm frá þar sem prjónamerkið var sett mitt á ermi, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4-4-3½-3-2½-2 cm millibili alls 8-9-10-11-12-13 sinnum = 48-50-52-52-54-56 lykkjur.
Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.1 hringinn.
Prjónið þar til ermin mælist 39-38-39-38-36-35 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-12-16-18-16 lykkjur jafnt yfir = 60-64-64-68-72-72 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 49-48-49-48-46-45 cm frá prjónamerki mitt á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.
Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra öxlina, notið stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 80-96-96-104-112-112 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju (meðtaldar lykkjur af þræði).
Prjónið stroff hringinn (4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið – stillið byrjun á stroffi þannig að það koma 4 lykkjur brugðið eða 4 lykkjur slétt mitt að framan). Setjið 1 prjónamerki í umferð þegar stroffið mælist 4 cm, prjónamerkið er notað til að mæla frá.
Prjónið síðan 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Þegar stroffið mælist 9-9-9-11-11-11 cm frá prjónamerki, skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið stroffið niður (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 4-4-4-5-5-5 cm.
Til að koma í veg fyrir að hálsmálið dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónamerki
symbols = botninn á handvegi er saumaður þannig: Saumið b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Mimi wrote:

Bonjour, Pour le col, qu'arrive-t-il aux mailles centrales du devant en attente? Quand on relève les mailles autour, on reprend ces mailles? Pourquoi ne pas rabattre comme pour le dos et relever des mailles partout? Ou est-ce que j'ai loupé un truc? Surtout que si je commence à l'épaule à relever des mailles, le fil ne suivra pas si je reprend ces mailles en attente. Et si je travaille autour, on en fait quoi à la fin?

16.04.2024 - 21:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mimi, on va effectivement reprendre les mailles en attente pour le col quand on va relever tout autour de l'encolure. On rabat les mailles de l'encolure dos pour garder un meilleur maintien et on met en attente celles de l'encolure devant pour donner plus de souplesse à l'encolure/ au col. Lorsque les mailles centrales ont été mises en attente, on termine chaque épaule séparément. Bon tricot!

17.04.2024 - 08:28

country flag Line wrote:

Pour faire l'échantillon, est-ce que l'on prend des aiguilles 3,5 ou 5, 5 cm ? Merci beaucoup ! Vos explications sont toujours si faciles à suivre

25.03.2024 - 14:31

DROPS Design answered:

Bonjour Line et merci, tricotez l'échantillon avec les aiguilles 5 (ou adaptez la taille si besoin pour que l'échantillon soit juste). Bon tricot!

02.04.2024 - 09:38

country flag Bergeron Sylvie wrote:

Bonjour ! Si vous pouviez me donner un pas a pas pour le modèle 237_7 gr large Pour le biais et encolure cela serais apprécier . Rang par rang jusqu'à la réussite de l'encolure . Merci ! Je me fais aider par des femmes d'expérience qui ne sont pas a leurs premier chandail et ne comprennent pas vos explications Merci beaucoup

02.03.2024 - 18:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bergeron, dans cette vidéo, nous montrons (pour un autre modèle, suivez attentivement les explications de ce pull) comment mettre les mailles de l'épaule en attente et, en même temps, comment former l'encolure. Bon tricot!

04.03.2024 - 08:21

country flag Bergeron Sylvie wrote:

Bonjour ! Encore moi hihi Pour le modèle 237_7 gr; large Pour encolure diminution . J'ai 12 mailles coter encolure de chaque coter . Je sais que l'on diminue 1 fois au début et fin de rang mais j'aimerais savoir combien Il devrait me rester de mailles a la fin des diminution complète ? Pour le biais des épaules . Merci

02.03.2024 - 17:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bergeron, mettez en attente les mailles de l'épaule en début de rang à partir de l'emmanchure (- de chaque côté avant d'avoir rabattu les mailles centrales) et rabattez les 28mailles centrales pour l'encolure puis continuez chaque épaule séparément: continuez à mettre en attente les mailles de l'épaule en début de rang à partir de l'emmanchure (sur l'endroit épaule droite/sur l'envers épaule gauche pour le dos) et, rabattez 2 x 1 maille au début du rang suivant à partir de l'encolure (sur l'envers, épaule gauche / sur l'endroit, épaule droite - dos). Bon tricot!

04.03.2024 - 08:19

country flag Sylvie Bergeron wrote:

Bonjour ! Pour le modèle 237-7 grandeur large J'aimerais savoir si c'est bien 32 cm de long a partir du début des côtes que je commence les emmanchures ou après les côtes je trouve que c'est bas cela va faire des manches évasées . Ou c'est bien correcte comme indiquées Merci beaucoup

08.01.2024 - 19:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bergeron, en taille L, vous commencez effectivement les emmanchures à 32 cm depuis le rang de montage, les emmanchures font 22 cm (cf schéma). Bon tricot!

09.01.2024 - 07:33

country flag Ingrid Jukes wrote:

Hi, I'm doing the back piece diagonal shoulder. When it says "slip stitch back on needle size 5 then purl 1 row from wrong side" does it mean put all of the stitches (including the ones on the thread) onto the 5mm needle and purl all of them? Or just put the middle stitches onto the 5mm needle and purl just those ones? It's very confusing.

26.12.2023 - 03:25

DROPS Design answered:

Dear Ingrid, yes, after having slipped all stitches to the thread you slip them all back to the needles. Then purl 1 row over all of the stitches. Happy knitting!

28.12.2023 - 23:53

country flag Sylvie Bergeron wrote:

Bonjour ! Je suis en train de faire le mod:237_7 Très beau modèle en passant . J'ai de la difficulté a comprendre biais des épaules le paragraphe complet Avez vous une vidéo pour des chandails tricoter de bas en haut Merci beaucoup et beau temps des fêtes

19.12.2023 - 18:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bergeron et merci. Pour former le biais des épaules, vous allez tricoter des rangs raccourcis ainsi: en commençant par le côté emmanchure, tricotez 4,5 ou 6 m (cf taille), puis glissez ces mailles en attente, tricotez jusqu'à la fin du rang, tournez, et répétez de l'autre côté (sur l'envers), répétez ces 2 rangs en mettant toujours plus de mailles en attente. En même temps, vous allez former l'encolure comme indiqué, et terminer chaque épaule séparément en plaçant en attente les mailles en début de rang à partir de l'emmanchure. Bon tricot!

20.12.2023 - 07:54

country flag Ingrid Jukes wrote:

I'm up to the beginning of the diagonal shoulder in this pattern and it's not making any sense. I've also asked some very experienced knitters if they understand it and they don't. Could you explain it better please?

01.12.2023 - 06:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jukes, to make the diagonally shoulders you need to work short rows: at the beginning of every row from shoulders towards neck, work the first 4, 5 or 6 sts (see size) and slip them on a thread, finish row as before, turn and repeat on the next row. Then when you have to bind off for neck, you will continue each piece separately, slipping the stitches for shoulder on a thread at the beginning of each row starting from armhole, and casting off new stitches at the beginning of every row starting from neck. this video shows for another pattern how to work this kind of shoulders. Happy knitting!

01.12.2023 - 08:43

country flag Iwona wrote:

Mam pytanie odpośnie fragmentu "skosy ramion". Dlaczego jest tam napisane, żeby zdejmować 4 razy po 4 oczka (dla mniejszego rozmiaru)? Chyba to źle rozumiem , bo to by oznaczało, że należy ściągnąć 16 oczek.Cały tez fragment instrukcji nie jest dla mnie jasny, proszę o pomoc. Dziękuję

23.11.2023 - 17:33

DROPS Design answered:

Witaj, zamiast zdejmować o., możesz wykonać rzędy skrócone następująco (rzędy nieparzyste prawa strona robótki, parzyste lewa): 1.Przerobić 1 cały rząd, 2.Przerabiać rząd, aż zostaje 4 o., obrócić robótkę. 3.Przerobić rząd (jest mniejsza o 4 liczba o.). 4.Przerabiać rząd aż zostaje 4 o. przed poprzednim rzędem skróconym (8 o. na końcu rzędu), obrócić robótkę, itd. Jak wykonać rzędy skrócone znajdziesz TUTAJ. Dzięki temu ramię będzie dłuższe od strony dekoltu (więcej przerobionych rzędów z tej strony), a krótsze od strony podkroju rękawa (mniej rzędów). Pozdrawiamy!

24.11.2023 - 15:02

country flag Plovy Rolande wrote:

Hallo op de foto’s zie ik tussen de verschillende patronen ribbelsteken, maar deze staan niet vermeld in het patroon . Zit er een foutje in de uitleg? Bedankt bij voorbaat

23.10.2023 - 16:42

DROPS Design answered:

Dag Plovy,

De ribbels staan wel in het patroon vermeld, dit zijn de rijen met gevulde blokjes (averecht aan de goede kant en recht aan de verkeerde kant) met de lege blokjes ertussen (recht aan de goede kant en averecht aan de verkeerde kant).

24.10.2023 - 08:05