Sissel skrifaði:
Videoen det er lenket til i spørsmålet om hvordan strikke opp masker på baksiden ser ut til å være feil. Det skulle vel vært den som heter Overlappende krave/hals strik op bagved i maskerne
28.02.2026 - 18:23
Sissel skrifaði:
Synes det er veldig rart at halsåpningen er så dårlig beskrevet i oppskriften. Videoen er jo oppklarende, men det er jo så mye mer enn å "strikke opp 1 maske på baksiden av de 6 neste maskene"..
28.02.2026 - 17:40
Sigrid skrifaði:
Hej, Kan det virkelig passe, at man kun skal strikke ærmet 40 cm til en str m? Er det ærmets fulde længde eller fra ribben i måler 40 cm? Alle mine andre sweatre i str m er 10 cm længere i ærmerne? Synes ikke rigtigt det giver mening? Vh Sigrid
26.02.2026 - 17:12DROPS Design svaraði:
Hei Sigrid. Det er lengden fra under ermet og ut til oppleggskanten til ermet (10 + 30 cm). Ved thighte gensere kan ermlengden være lengre, men når bolen er litt vid er ermlengden noe kortere. Men sammenlign målene med en genser du allerede har og se om du syns ermene blir for korte. Har du nok garn, strikk de lengre, men 50 cm (mål fra under ermet) hørtes ut som veldig lange ermer. mvh DROPS Design
09.03.2026 - 14:45
Elin skrifaði:
Hei! Kehaosa pikkus on juhendis kirjas et peaks kõikidel suurusel olema 31 cm. Joonisel on aga teistsugused mõõdud. Suurus M peaks olema keha hoopis 58 cm. Milline on õige?
30.01.2026 - 10:59DROPS Design svaraði:
Tere Elin! Joonisel näidatud 58 cm on terve kampsuni pikkus, õlast allääreni. 31 cm on alläärest (koos soonikuga) kuni käeaugu alguseni. Siis tuleb veel passe kõrgus ja kaelaauk. Head kudumist!
10.02.2026 - 21:20
Marita skrifaði:
Hei, jeg forstår ikke hva jeg skal gjøre når jeg skal "strikke opp 1 maske på baksiden av hver av de 6 neste maskene".
22.01.2026 - 21:55DROPS Design svaraði:
Hei Marita, Du strikker opp masker gjennom maskeløkken som ligger bak på pinnen (ikke løkken som ligger foran på pinnen som er den vanlige metoden). Hilsen Drops Team.
23.01.2026 - 07:37
Noël skrifaði:
Bonjour je voudrais faire ce modèle mais ma laine est moins épaisse aiguilles numéro 4 et 5 Comment faire le mettre à ma grosseur de fille merci
15.10.2025 - 18:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Noël, vous pouvez vous aider et vous inspirer d'un modèle avec la tension souhaitée pour faire les ajustements nécessaires, retrouvez par ex ici les pulls à capuche avec 17 m pour 10 cm. Bon tricot!
16.10.2025 - 17:22
Annie skrifaði:
Hello. do you have a size chart available so I can determine which size pattern is best for my purposes? I can't seem to find any information anywhere. Can you please advise? Thank you
22.09.2025 - 13:14DROPS Design svaraði:
Hi Annie, There is a size chart at the bottom of the pattern. Regards, Drops Team.
23.09.2025 - 06:49
Mathilda skrifaði:
Vilken storlek på stickor utgår stickfastheten ifrån?
10.05.2025 - 22:04DROPS Design svaraði:
Hej Mathilda, vi får 11 masker på 10 cm i glatstrik på pind 8 :)
12.05.2025 - 11:29
Jolanta Jurasinska skrifaði:
You`ve already helped me, a seasoned knitter I thought, but I´m stuck again.with the chaperon bleu pattern at the part before the hood. "finished back and forth" makes no sense to me although I´m an English teacher and Scots born. I´m totally lost and cannot find any tutorials. Help please!!! Thanks
26.04.2025 - 14:24DROPS Design svaraði:
Dear Jolanta, the piece was worked in the round before, but the remaining part of the yoke will be worked back and forth, that is, worked in rows, turning at the end of each row. So the yoke will be finished (completed) back and forth (in rows, instead of in the round as before). Happy knitting!
27.04.2025 - 12:18
Annelina skrifaði:
Forstår ikke: Strik 1 maske op på bagsiden af hver af de 6 næste masker. Vend. Hvad skal jeg gøre her?
25.04.2025 - 13:00DROPS Design svaraði:
Hej Annelina, her ser du hvordan du strikker masker op på bagsiden: Strik masker op på bagsiden
30.04.2025 - 14:18
Chaperon Bleu#chaperonbleusweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með laskalínu og hettu. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-4 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hettu): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið við hvert prjónamerki (8 lykkjur færri í umferð). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp, þar til stroffi og klauf hefur verið prjónað til loka. Síðan eru bæði stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er í hring. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handvegi. Síðan eru ermarnar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað í hring. Að lokum er hettan prjónuð fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 62-70-74-78-86-94 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 4 lykkjur garðaprjón. Prjónið stroff fram og til baka í 14 cm, endið með umferð frá röngu. Geymið stykkið. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið lykkjur af framstykki og bakstykki á sama hringprjón 8, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-28-28-28-28-32 lykkjur jafnt yfir = 100-112-120-128-144-156 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 50-56-60-64-72-78 lykkjur (hliðar). Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31 cm, fellið af 6-6-6-8-8-10 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) = 44-50-54-56-64-68 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjóna 7 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Prjónamerkin eiga að fylgja með í stykkinu og eru notuð síðar þegar auka á út lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 12 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 8-6-7-4-3-2 cm millibili alls 4-5-4-6-7-10 sinnum = 40-42-44-48-54-60 lykkjur. Þegar ermin mælist 42-40-38-37-35-34 cm, fellið af 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi (fellið af 3-3-3-4-4-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) = 34-36-38-40-46-50 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg = 156-172-184-192-220-236 lykkjur. Setjið 2 prjónamerki í ystu lykkju í hvorri hlið á bakstykki og framstykki (4 prjónamerki). Prjónamerkin eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir laskalínu. Byrjið í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar berustykkið mælist 3-4-5-5-4-3 cm, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 11-12-13-14-17-19 sinnum = 68-76-80-80-84-84 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt að framan og 1 prjónamerki mitt að aftan. Klippið þráðinn. Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan – stykkið er nú prjónað til loka fram og til baka. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur og fækkið lykkjum fyrir laskalínu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt að framan. Prjónið upp 1 lykkju á bakhlið í hverri af 6 næstu lykkjum. Snúið. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 lykkjur slétt. Í næstu umferð frá röngu er lykkjum fækkað fyrir laskalínu í síðasta skipti (nú hefur verið fækkað um alls 13-14-15-16-19-21 sinnum fyrir laskalínu) og það eru 58-66-70-70-74-74 lykkjur í umferð. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð, mælist berustykkið 21-23-25-27-29-31 cm. HETTA: Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt að aftan og 1 lykkju í hvorri hlið á hverri laskalínu frá framstykki (6 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu, alls 2 sinnum = 70-78-82-82-86-86 lykkjur. Prjónið sléttprjón og garðaprjón þar til hettan mælist 37-38-39-40-41-42 cm. Fellið af. Brjótið uppá hettuna og saumið toppinn á hettunni saman. I-CORD KANTUR: Það er prjónaður kantur í kringum hettuna þannig: Notið 2 sokkaprjóna nr 8. Fitjið upp 2 nýjar lykkjur á prjón og prjónið upp 1 lykkju í ysta lykkjubogann á fyrstu umferð garðaprjón neðst í opinu á hægri hlið á hettu (séð þegar flíkin er mátuð) = 3 lykkjur á prjóni. * Færið lykkjurnar að byrjun á prjóni, þannig að þær séu prjónaðar einu sinni til viðbótar frá réttu án þess að snúa stykkinu. Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið upp eina nýja lykkju yst í næsta garðaprjón af hettu, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð upp *, prjónið frá *-* þar til prjónaður hefur verið upp kantur meðfram öllu opinu á hettunni. ATH! Það er prjónuð upp lykkja í hvert garðaprjón frá kanti, ef þetta verður of stíft, verður að prjóna upp auka lykkju með jöfnu millibili. Prjónið 3 síðustu lykkjur á prjóni slétt saman, klippið þráðinn, þræðið í gegnum síðustu lykkju og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chaperonbleusweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.