DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

October Breeze

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð XS - XXL.

DROPS 236-14
DROPS Design: Mynstur ne-362
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-600-650-700-800 g litur 8914, rauður leir

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð á undan/eftir A.1/A.2 (lykkja með prjónamerki í er miðjulykkja í A.1/A.2).
Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá réttu / á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá röngu.
Aukið út fyrir ermar á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki (alltaf er aukið út frá réttu á ermum).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.

Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir prjónamerki þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir prjónamerki þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur með DROPS Nepal yfir stuttan hringprjón 4 og stuttan hringprjón 5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjunum eftir á stuttum hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – prjónið síðan næstu umferð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.

Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina).
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 10-12-12-14-14-16 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 21-23-25-27-29-31 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 11-11-13-13-15-15 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki). Klippið þráðinn.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan. Að auki er prjónað A.1 við hvert prjónamerki (lykkja með prjónamerki er miðjulykkja í A.1).
Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið í hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón, A.1 og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.1 – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan – nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu einungis á fram- og bakstykki þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stuttu umferðirnar byrjuðu við 3. prjónamerki (nú hefur verið aukið út um 4 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá réttu og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 þar til prjónað hefur verið yfir 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki, nema nú er prjónað A.2 yfir lykkjur í A.1 (A.2 er síðan endurtekið á hæðina – nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu).
Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu einungis á fram- og bakstykki þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við í síðasta skipti við 3. prjónamerki (nú hefur verið aukið út um 4 lykkjur fyrir laskalínu). Klippið þráðinn frá. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
= 116-120-124-128-132-136 lykkjur. Nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ XS, S, M og L:
Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og A.2 og aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki og ermar (hvoru megin við A.2) í annarri hverri umferð alls 3-3-8-10 sinnum = 140-144-188-208 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni, A.2 og útaukning fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út er einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-20-16-18 sinnum á fram- og bakstykki (9-10-8-9 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 25-27-28-32 sinnum á fram- og bakstykki og 14-15-18-21 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 248-264-284-316 lykkjur í umferð. Farið áfram í ALLAR STÆRÐIR:

STÆRÐ XL og XXL:
Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og A.2 og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri umferð á fram- og bakstykki og 2-6 sinnum til viðbótar og í annarri hverri umferð á ermum 1-3 sinnum til viðbótar = 144-172 lykkjur.
Síðan er aukið út á fram- og bakstykki og ermum (í hvorri hlið á A.2) í annarri hverri umferð alls 9-9 sinnum = 216-244 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni, A.2 og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út er einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 20-20 sinnum á fram- og bakstykki (10-10 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 35-39 sinnum á fram- og bakstykki og 22-24 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 336-364 lykkjur í umferð. Farið áfram í ALLAR STÆRÐIR:

ALLAR STÆRÐIR:
= 248-264-284-316-336-364 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og A.2 án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá miðju að framan á eftir stroffi í hálsmáli.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 37-41-42-48-51-57 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 49-51-57-63-65-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 75-81-85-95-103-113 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 49-51-57-63-65-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 38-40-43-47-52-56 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 162-174-186-206-226-246 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð þegar skipta á stykkinu upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17 cm frá skiptingu.
Í næstu umferð skiptist stykkið við prjónamerkin, þ.e.a.s. setjið 81-87-93-103-113-123 lykkjur á milli 2 prjónamerkja á hringprjón 4 og látið þær 81-87-93-103-113-123 lykkjur sem eftir eru hvíla á hringprjóni 5.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-20-22-24-24-28 lykkjur jafnt yfir = 101-107-115-127-137-151 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm.
Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Setjið síðustu 81-87-93-103-113-123 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-20-22-24-24-28 lykkjur jafnt yfir = 101-107-115-127-137-151 lykkjur. Prjónið stroff eins og á hinu stykkinu í 8 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 49-51-57-63-65-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-57-65-71-75-79 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 6-6-3½-3-2½-2 cm millibili alls 6-6-9-11-12-13 sinnum = 43-45-47-49-51-53 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 38-37-35-34-32-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm.
Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.10.2022
Leiðrétting í stærðum undir BERUSTYKKI.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga), er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Juniper wrote:

Hello, can you please make some videos specifically for this pattern? The videos do not show how to increase for the body only on the wrong side in the short rows. I’ve torn it out and redone my sweater about 12 times. Also, there seems to be a step missing between the end of the double neck and the neck line (the video shows a setup round where you increase by 8). If you do not do the setup round, you will be missing 8 stitches when you start the yoke.

31.03.2024 - 04:36

country flag Marta wrote:

Que quiere decir que hay que cortar el hilo ? No se sigue tejiendo on misma hebra?

09.02.2024 - 01:24

DROPS Design answered:

Hola Marta, sí, se corta el hilo y se reúne en el nuevo comienzo de la vuelta. Generalmente se hace esto cuando tienes que comenzar la vuelta en un punto diferente a dónde dejaste de trabajar; para no desalinear la prenda, se corta el hilo y se une en el sitio necesario para empezar a trabajar la siguiente parte.

11.02.2024 - 20:59

country flag Corina Avram wrote:

Hello, I want to make this sweater longer than the pattern, where can I add more length to it? Would be before starting working the rib? Thank you

31.01.2024 - 12:51

DROPS Design answered:

Hi Corina, Yes, the length of the body can be adjusted to your desired length before working the rib. Happy knitting!

01.02.2024 - 07:05

country flag Liesbeth Van Vliet wrote:

Ik wil dit graag op rechte ipv rondbreinaalden breien. Is het mogelijk om het om te zetten? Ik kon er geen filter voor vinden.Of is op rechte naalden breien inmiddels zo achterhaald dat dat nergens meer te vinden is?

09.01.2024 - 17:46

DROPS Design answered:

Dag Liesbeth,

Er is inderdaad geen filter voor patronen met rechte naalden en Noorse patronen worden veelal van oorsprong met rondbreinaalden gemaakt. Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier. Helaas is niet niet voor alle patronen geschikt, maar kijk maar even of je hier wat aan hebt.

10.01.2024 - 10:15

country flag Maylén wrote:

Jeg strikker størrelse XL og er nå ferdig med økninger og A1. Hadde da 132 masker, har økt 1 omgang til bolen og 1 omgang kun ermer = (132+8+4)=144 masker. Men i oppskriften står det at man skal øke til bolen 2 ganger, til ermer 1 gang (132+8+4+8)=152 masker. Det går ikke opp ut fra oppskriften. Er dette en feil ved oppskriften, eller er det noe jeg har gått glipp av her?

25.12.2023 - 10:51

DROPS Design answered:

Hej Maylén, du har 132m + (2x4 till bolen) + (1 x 4 till ærmerne) = 144 masker :)

02.01.2024 - 09:58

country flag Marie-Martine MARC wrote:

Bonjour, je suis en train de tricoter le pull Octobre Breeze 236 14 en taille M. Il me semble impossible d'obtenir le même nombre de mailles que vous pour l'encolure. En additionnant le nombre de jetés cela ne correspond pas. J'obtiens 114 et non 124. Pouvez vous m'aider s'il vous plaît. J'ai refait 5 fois. Un grand merci d'avance. Très cordialement.

11.12.2023 - 20:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marc, en taille L vous commencez l'encolure avec 92 mailles, vous augmentez 2 mailles au 1er rang de A.1 , soit 2 mailles x 4 A.1 = 8 mailles augmentées; vous augmentez en même temps pour le raglan 8 m sur l'endroit et 4 m sur l'envers soit (8+4+8+4=24 m), vous aurez donc: 92+8+24=124 mailles quand les rangs raccourcis de l'encolure sont terminés. Bon tricot!

12.12.2023 - 08:52

country flag Denise wrote:

Bonjour, je tricote la taille m et après avoir fait l'encolure j'obtiens 116 mailles et non 124. 116 mailles correspond aux 92 mailles de départ plus les 24 mailles ajoutées en tricotant l'encolure. Manque t il des rangs pour la rehausse en taille M ? Cordialement.

06.12.2023 - 20:37

DROPS Design answered:

Bonjour Denise, vous devez augmenter 2 mailles au 1er rang de chaque A.1 en plus des augmentations du raglan, autrement dit, au 1er rang, vous augmentez 8 m (raglan) + 8 m (2 m dans chaque A.1), puis 4 m au 2ème rang, 8 m au 3ème rang et 4 m au 4ème rang = 92+8+8+4+8+4=124 mailles. Bon tricot!

07.12.2023 - 08:38

country flag Josie Weatherford wrote:

Hi thank you for the pattern, and I love your yarn and everything you do. Can I make a suggestion? In the beginning section when describing raglan, can you change it to make the yarn-overs be called a M1R and M1L stitch? This is what we call it in English. This simple description would have saved me from making holes in the yarn overs. You explained in detail what the yarn overs should look like not to leave a hole but it seemed so complicated I skipped it. When I read it again I realised.

18.10.2023 - 07:19

country flag Christine S-Nilson wrote:

I am working on size m starting with 92 stitches. In the neck line section I worked 4 rows increasing 8/4/8/4 as instructions show. Now I have 116 stitches. The yoke section starts with 124 stitches for size m. What am I doing wrong?

13.10.2023 - 16:46

country flag VD wrote:

Hej, har gjort halsrigningen ca 6 ggr nu och ger upp för kvällen då det inte blir bra alls/fel antal maskor. Ska jag följa diagrammet från rätsidan enbart? eller både rät- och avigsidan? Blev förvirrad då diagrammet visar instruktioner från både rät/avigsidan samt texten säger annat. Hoppas ni kan hjälpa mig så att jag kan gå vidare.

22.09.2023 - 21:54

DROPS Design answered:

Hej, halsen strikkes i rib; 1rät, 1avig. Sedan fortsäter du i slätstickning med A.1 vi varje markör (4 raglan-markörer) :)

05.10.2023 - 08:30