Emilia skrifaði:
Hej! När man stickar förkortade varv (halsringningen) ska man öka till raglan på varje varv, alltså både när man stickar rät och avig, eller bara de räta varven? Tacksam för svar
22.09.2022 - 19:27
Emilia skrifaði:
Hej! När man stickar förkortade varv, ska man lyfta en maska när man vänder arbetet?
22.09.2022 - 17:55DROPS Design svaraði:
Hej Emilia. Ja det kan du göra om du tycker det blir finare. Mvh DROPS Design
23.09.2022 - 10:26
Lærke Nielsen skrifaði:
Hej Strikkes opskriften i to tråde? Mvh. Lærke :-)
13.09.2022 - 22:01DROPS Design svaraði:
Hej Lærke. Nej, den stickas med 1 tråd. Mvh DROPS Design
14.09.2022 - 14:41
Randi skrifaði:
Hej, ang mit spørgsmål fra d 23/7; jeres svar besvarer slet ikke spørgsmålet… jeg spørger ikke til mål af fuld længde, kun til bærestykket inden deling. Øverst i afsnittet står, at bærestykket skal måles fra mærke midt bag, men nederst i afsnittet står der, at bærestykket efter alle raglanudtagninger skal måles fra midt foran..?? Altså: skal bærestykkets længde måles fra nakken eller fra halsen..?? Der er jo ca 2 cm forskel pga vendepinde i nakken. Vh Randi
06.09.2022 - 10:21DROPS Design svaraði:
Hej Randi, Bærestykket skal måles fra midt foran :)
06.09.2022 - 14:36
Hannah skrifaði:
Do you have a size chart available please?
01.09.2022 - 18:22DROPS Design svaraði:
Dear Hannah, you can find the measurements schematic under the pattern instructions; you can see here how to interpret it: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=19. Happy knitting!
01.09.2022 - 23:36
Solfrid skrifaði:
Spm vedr lengde: I oppskriften står det at genseren måler ca 60 cm (str XL) fra skulderen og ned, men når jeg legger sammen opplysningene i oppskriften så får jeg ca 55 cm; arbeidet måler 28 cm fra midt bak etter siste raglandøkning, deretter deles arbeidet og man skal strikke 21 cm til mål fra deling, og så strikke 6 cm vrangbord. (28 + 21 + 6 = 55 cm) - er det noe jeg ikke har fått med?
29.08.2022 - 15:43DROPS Design svaraði:
Hej Solfrid, har du talt de sidste cm med fra raglanstarten og op til skulderen. Prøv gerne blusen, det er fordelen når man strikker ovenfra og ned :)
31.08.2022 - 13:24
Ewelina skrifaði:
Witam serdecznie. Mam tylko pytanie czy wykonując rzędy skrócone dodaje oczka na reglan na prawej i na lewej strony robótki? czy jednak tylko na prawej stronie ? Oglądałam filmik pomocniczy i tam jest pokazane by dodawać oczka również na lewej stronie. pozdrawiam .
26.08.2022 - 01:23DROPS Design svaraði:
Witaj Ewelino, z opisu wyraźnie wynika, że w rzędzie na lewo (rzędy skrócone) nie są dodawane oczka na reglan. Jest albo pomyłka we wzorze, albo na nagraniu. Stawiam raczej na nagranie. Wysłałam zapytanie i czekam na korektę. Dziękuję za zwrócenie uwagi na problem. Pozdrawiamy!
26.08.2022 - 08:58
Edel skrifaði:
Jeg lurer på det samme som Aina, det svaret som er gitt over svarer jo ikke på spørsmålet men på noe annet. Hva vil det si å starte 3 m før det tredje merket, hvordan kan jeg starte der? og Forstår det heller ikke etter å ha sett videoen om forkortede pinner. Kan dette trinnet eventuelt sløyfes (og gå rett på bærestykket)?
19.08.2022 - 23:01DROPS Design svaraði:
Hei Edel. Etter du har strikker omgangen der det settes merker, klippes tråden og det strikkes nå en forhøyning bak. Det skal nå startes (fra retten) 3 masker før 3. merke og det strikkes frem og tilbake = forkortete pinner/forhøyning. Det strikkes over 3. merke, så 4. merke, så 1. merke og så 2. merke før arbeidet snur. Ved å følge oppskriften vil man få like mange pinner over "bakstykket". Når alle forkortete pinner er strikket, klippes tråden og man begynner midt bak igjen. Om du ikke ønsker en forhøyning bak, kan du strikke en omgang med raglanøkningne som er forklart under HALSRIGNING, og deretter starter du på BÆRESTYKKE. mvh DROPS Design
22.08.2022 - 13:09
Randi skrifaði:
Hej, det forvirrer mig lidt, når der i opskriften står, at bærestykket skal måles fra mærketråden midt bag - når der efter alle raglanudtagninger står, at bærestykket måles fra midt foran..? Det er jo lidt længere på bagsiden.. - og.. er det rigtigt forstået, at halskanten ikke måles med..? På forhånd tak for hjælpen;) Med venlig hilsen
23.07.2022 - 19:56DROPS Design svaraði:
Hej Randi, jeg kan se det står at arbejdes måles fra der hvor det blev delt og til sidst måler du fra skulderen og ned. Det er helt forskellige mål. Men prøv gerne blusen og se om længden passer dig, men kan jo altid lave den længere eller kortere når man starter oppefra :)
04.08.2022 - 07:49
Kine Svendsen Dalen skrifaði:
Jeg elsker deres melody garn - men skulle virkelig ønske dere kunne produsert det i flere farger :) Spesielt lilla
01.07.2022 - 09:38
Blueberry Cream Sweater#blueberrycreamsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-57 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með merki (8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-72-76-80-80-84 lykkjur með DROPS Melody yfir stuttan hringprjón 4,5 og stuttan hringprjón 6 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 6 og haldið eftir lykkjum á stutta hringprjóninum 4,5 (uppfitjunarkanturinn er gerður svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Nú er stroffið brotið inn til að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Skiptið yfir á hringprjón 6. Í næstu umferð eru sett 4 ný merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Hvert merki er sett í slétta lykkju og merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð = ca miðja að aftan. Prjónið næstu umferð ca frá miðju að aftan þannig: 10-10-12-12-12-14 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 1. merki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. merki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17-19-21-23-23-25 lykkjur sléttprjón (framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 3. merki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. merki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-9-9-11-11-11 lykkjur sléttprjón = 76-80-84-88-88-92 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Byrjið frá réttu, 3 lykkjur á undan 3. merki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð), prjónið sléttprjón frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 2. merki (= hægri hlið á hálsmáli að framan) – JAFNFRAMT í þessari umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjóaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 3. merki. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 2. merki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 3. merki. Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá merkiþræði fyrir miðju að aftan. BERUSTYKKI: Byrjið umferð við merkiþráð fyrir miðju að aftan og prjónið hringinn yfir allar lykkjur í sléttprjóni. JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 8-10-12-14-20-22 sinnum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum og strax eftir kanti í hálsmáli). Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hver skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið út svona 8-8-8-8-4-4 sinnum á fram- og bakstykki (4-4-4-4-2-2 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 16-18-20-22-24-26 sinnum á fram- og bakstykki og 12-14-16-18-22-24 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 180-200-220-240-264-284 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 20-23-25-28-30-33 cm frá miðju að framan, prjónið e.t.v. áfram í sléttprjóni án útaukninga að réttu máli. Í síðustu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 29-31-35-37-41-45 lykkjur eins og áður (ca ½ bakstykki), setjið næstu 35-39-43-47-51-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 55-61-67-73-81-87 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 35-39-43-47-51-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 26-30-32-36-40-42 lykkjur eins og áður (ca ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 134-146-158-174-190-206 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 23-22-22-21-21-20 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 35-39-43-47-51-55 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 6 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 12-12-12-14-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 47-51-55-61-65-71 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 12-12-12-14-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum fyrir miðju undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Þegar ermin mælist 4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 15-10-10 cm millibili alls 2-3-3 sinna (fækkið ekki lykkjum í stærð S, M og L). ALLAR STÆRÐIR: = 47-51-55-57-59-65 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 39-36-35-32-31-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 15-17-19-19-19-23 lykkjur jafnt yfir = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 45-42-41-38-37-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueberrycreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-57
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.