DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cherry Sorbet Vest

Prjónað vesti úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með háum kraga og klauf í hliðum. Stærð S – XXXL.

DROPS 231-59
DROPS Design: Mynstur ml-088
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-200-250-250-300-300 g litur 17, skær bleikur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6820.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loka máli. Prjónaður er kantur í stroffprjóni í kringum báða handvegina og í kringum hálsmál. Bakstykkið er 6 cm lengra en framstykkið.

BAKSTYKKI.
Fitjið upp 82-86-94-102-110-118 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Melody. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur er eftir, 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm og næsta umferð er frá réttu.
Prjónið næstu umferð þannig: 1 lykkja garðaprjón, prjónið sléttprjón og fækkið um 12-12-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir næstu 80-84-92-100-108-116 lykkjur, endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 70-74-80-88-96-104 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-68-72-80-86-94 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af miðju 24-26-26-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 7-7-8-9-9-11 lykkjur á þráð 2 sinnum og síðan síðustu 6-7-7-8-10-10 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráð.
Setjið til baka 20-21-23-26-28-32 lykkjur af þræði á hringprjóna 6. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en til að ekki myndist gat þegar snúið er við mitt í stykki, takið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið brugðið saman við fyrstu lykkju á vinstra prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá uppfitjunarkanti við hæsta punkt á öxl.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm. Nú eru felldar af 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-68-72-80-86-94 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-53-55-57 cm. Setjið nú miðju 16-18-18-20-22-22 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fellið af fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram.

HÁLSMÁL.
Fellið af 1 lykkju 4 sinnum.

SKÁHALLANDI ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á bakstykki. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af eða settar á þráð, setjið 20-21-23-26-28-32 lykkjur af þræði til baka á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu alveg eins og á bakstykki og fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti að efst á öxl.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana. Saumið hliðarsauminn í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur, en skiljið eftir 14 cm neðst við stroffið (= klauf).

KANTUR Í HANDVEGI:
Notið stuttan hringprjón 4,5. Byrjið í hlið neðst á ermi og prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju, ca 64 til 80 lykkjur í kringum handveg (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í kringum hinn handveginn á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 4,5. Byrjið mitt á annarri öxlinni og prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju, ca 60 til 68 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði og lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 20-20-22-22-24-24 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-59

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Wanda wrote:

Hi, can you help me with the neck and diagonal shoulders on front piece? Is there a movie that can explain that? I put 16middle stitches ob threat for neck and then shoukd cast off 4 times? I understand from the stitches that were meant for the sgoukders, correct (so 8 additional raws should be made before diagonal shoulders)? Sorry if it is confusing but it is very new to me and really dont know what is needed. Best,

17.04.2024 - 22:07

DROPS Design answered:

Dear Wanda, you can find all the relevant videos for this pattern, if you click on the "Videos" sign, right above the line that says Pattern Instructions. For the diagonal shoulders, you should put stitches on a stitch-holder (or an extra needle, or leftover thread). There are some more videos on the diagonal shoulders HERE. Happy Knitting!

17.04.2024 - 22:55

country flag Milena wrote:

Hallo liebes Drops Design Team, ich habe mit dem Vorderteil angefangen und bis zu dem Teil gestrickt, an dem die Halsmaschen stillgelegt werden müssen. Stricke ich bis zum „mittleren Teil“ ganz normal weiter, lege dann die mittleren Maschen still und drehe mich anschließend wieder rum, sodass ich die eine Seite erstmal fertig stricke, bis ich - wie beim Kapitel „Schräge Schulter“ angegeben - 50 cm erreicht habe? Wie gehe ich dann weiter?

20.02.2024 - 13:19

DROPS Design answered:

Liebe Milena, wenn die mittleren Maschen für den Hals stillgelegt werden, strickt man beide Schulter separat, am Anfang jeder Reihe von Armausschnitt werden die Maschen für den Schulter wie zuvor stillgelegt bis alle Maschen stillgelegt sind und am Anfang jeder Reihe von Hals werden Maschen (jeweils 1 Masche 4 Mal) abgekettet. Wenn alle Maschen stillgelegt/abgekettet sind, stricken Sie 1 Reihe über alle Maschen dann ketten Sie alle Maschen ab. Viel Spaß beim stricken!

20.02.2024 - 15:46

country flag Valérie wrote:

Pouvez vous expliquer pas à pas l'étape des diminutions d'épaules et du cou? Le biais des épaules, l'encolure pour le dos et le devant sont incompréhensibles. Même les explications en espagnol et en anglais ne me suffisent pas. Il doit y avoir une erreur de traduction. Y aurait-il une vidéo qui illustre cette étape? D'avance merci. Bien cordialement, FB

13.02.2024 - 20:08

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, pour former le biais des épaules vous allez tricoter des rangs raccourcis, autrement dit, en commençant par l'emmanchure, tricotez les 7 à 11 premières mailles et mettez-les en attente, terminez le rang, tournez et tricotez le rang (encolure vers emmanchure), répétez ces 2 rangs encore 1 fois, et tricotez 1 rang sur les 6-10 dernières mailles tournez et tricotez toutes les mailles au rang retour. Répétez pour l'autre épaule de la même façon. Cette vidéo montre comment faire (pour un autre modèle, suivez-bien le nombre de mailles de celui-ci. Bon tricot!

14.02.2024 - 08:05

country flag Meta wrote:

Förstår inte riktigt... "Första varvet stickas så här från rätsidan: 2 maskor i RÄTSTICKNING, resår (2 rätmaskor, 2 avigmaskor)" - Ska det stickas 2 räta och sedan resår med 2 r, 2 a? Då blir det totalt 4 r och 2 a i början av varvet! "tills det återstår 4 maskor, 2 rätmaskor och 2 maskor i rätstickning" - Totalt 4 räta alltså? Vad gör jag med de återstående maskorna nämnt i meningen? Ska de bara vara där sticket ut eller ska de stickas på ngt sätt?

09.01.2024 - 11:38

DROPS Design answered:

Hej Meta, de 2 första rätstickas (räta på varje varv) och de 2 rätmaskorna blir till slätstickade maskor :)

09.01.2024 - 14:52

country flag Helena Jansson wrote:

Hur lång skall resåren på framstycket vara? Det står att bakstycket skall vara 6 cm längre med också att framstycket skall stickas som bakstycket. Bilden viar att bak är längre och att framstycke resår är längre än 2 cm eller hur?

25.12.2023 - 21:33

country flag Marianne wrote:

Drops 231-59. Jeg forstår ikke forklaringen der er givet på skra skulder. Der står ikke noget om at strikke tilbage eller andet, bare sætte masker på tråd. Det er som om der mangler en uddybende forklaring på skrå skulder.

07.12.2023 - 15:18

DROPS Design answered:

Hej Marianne, her ser du hvordan man gør Hvordan tages der ind til skrå skulder Det her er den første, så er det bare at klikke på nr 2 og 3 nederst i videoen :)

07.12.2023 - 15:35

country flag Mette wrote:

I mönstret för sned axel ska jag lägga maskor på tråd "2 gånger"? Det står inget om vilka maskor sin ska maskas av eller när, men "alla maskor har nu maskats av eller satts på tråd"? Jag förstår inte heller den fortsatta anvisningen att det blir ett hål där man vänder? Snälla svara på svenska, för google translate förstod inte att lversätta korrekta termer från varken danska eller engelska.

18.11.2023 - 12:00

DROPS Design answered:

Hej Mette, jo du har maskat av halsmaskorna. (minsta storleken) Sticka de 7 yttersta maskor innan du sätter dem på en tråd, sticka varvet ud. Vänd sticka tillbaka. Sticka 7 maskor och sätt på tråden, sticka varvet ut. Vänd sticka tillbaka. Sticka de sista 6 maskor och sätt på tråden. Sätt tillbaka alla 20 maskor från tråden på stickan och följ mönstret.

24.11.2023 - 12:15

country flag Suzanne Scott wrote:

I can't understand where the measurements are. I've looked at the link to using sizes but it says they are listed on the diagram - indeed the diagram they show makes sense as it clearly indicates on that picture the chest measurements but none of the ones ive looked at are actually set out in that manner - how do i work out what the chest sizes are on these patterns?

06.11.2023 - 20:34

DROPS Design answered:

Hi Suzanne, You will find the measurements chart at the bottom of the pattern, with all the measurements for each size. Happy knitting!

07.11.2023 - 06:52

country flag Harriet Gill wrote:

Hi I would like to make this with the Alpaca Brushed Silk yarn and I just want to check the Yarn converter instruction to replace 200g of 1 strand of Melody with 200g of 2 strands of ABS. Do I have to buy 200g x 2 or just 200g x 1 of ABS? Many thanks for your help Harriet Gill

18.10.2023 - 07:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gill, to replace 200 g DROPS Melody , you will need 200 g DROPS Brushed Alpaca Silk but work with 2 strands instead of just 1 Melody. Read more here. Happy knitting!

18.10.2023 - 08:32

country flag Sharon Hunt wrote:

Hi I do not understand the instructions below. The diagonal shoulders are new to me. I need some help on how to proceed before I get there. Thanks Place the outermost stitches towards armhole on a thread for the diagonal shoulders, but to avoid cutting the strand work them first. Place 7-7-8-9-9-11 stitches on a thread two times, then the last 6-7-7-8-10-10 stitches. All stitches have now been bind off or placed on the thread.

18.08.2023 - 11:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hunt, starting from armhole, work the first 6-10 sts (see size) and slip them on a thread, work to the end of the row (towards neck), turn and work return row, repeat these 2 rows one more time, then work the remaining stitches, turn and work return row, turn and work all stitches back and cast off on next row. Happy knitting!

18.08.2023 - 16:10