Karin Hagberg skrifaði:
Hej, jag vill gärna sticka Drops 231-57 men behöver förslag på annat garn. Tål inte ull. Vänliga hälsningar Karin
14.05.2022 - 11:09DROPS Design svaraði:
Hei Karin. Denne modellen/garnet er "pusete/hårete", slik at om du ønsker å strikke en med f.eks bomullsgarn vil den effekten falle bort. Men du kan prøve å strikke den med 2 tråder DROPS Muskat (53% Bomull, 33% Viskose, 14% Lin) eller 2 tråder DROPS Belle (53% Bomull, 33% Viskose, 14% Lin). Siden DROPS Melody er er et ganske lett garn (i str. M / 300 gram / 6 nøster / 840 meter), og man trenger mer garn i f.eks dobbelt tråd med DROPS Muskat (str. M / 17 nøster / 1700 meter (dobbeltråd), vil da den bli en del tyngre. Husk også og overholde den oppgitte strikkefastheten. mvh DROPS Design
16.05.2022 - 09:15
Aina skrifaði:
Hei, jeg er veldig usikker på hva som menes med det som står under Halsrigning? Jeg forstår ikke helt fremgangsmåten( har også forhørt meg med ei som har strikket i 40 år, som heller ikke forstår hva som menes).
11.05.2022 - 11:18DROPS Design svaraði:
Hej Aina, du strikker da kanten sammen i hver 2.maske, så den bliver dobbelt og da er du fri for at sy halskanten på vrangsiden bagefter. :)
11.05.2022 - 15:18
Blueberry Cream Sweater#blueberrycreamsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-57 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með merki (8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-72-76-80-80-84 lykkjur með DROPS Melody yfir stuttan hringprjón 4,5 og stuttan hringprjón 6 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 6 og haldið eftir lykkjunum á stutta hringprjóninum 4,5 (uppfitjunarkanturinn er gerður svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Nú er stroffið brotið inn til að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Skiptið yfir á hringprjón 6. Í næstu umferð eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Hvert prjónamerki er sett í slétta lykkju og prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = ca miðja að aftan. Prjónið næstu umferð ca frá miðju að aftan þannig: 10-10-12-12-12-14 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17-19-21-23-23-25 lykkjur sléttprjón (framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-9-9-11-11-11 lykkjur sléttprjón = 76-80-84-88-88-92 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Byrjið frá réttu, 3 lykkjur á undan 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan ef þú hugsar að þú sért í flíkinni), prjónið sléttprjón frá réttu þar til þú hefur prjónað 3 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki (= hægri hlið á hálsmáli að framan) – JAFNFRAMT í þessari umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til þú hefur prjónað 7 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki. Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá prjónamerki fyrir miðju að aftan. BERUSTYKKI: Byrjið umferð við prjónamerki mitt að aftan og prjónið hringinn yfir allar lykkjur í sléttprjóni. JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 8-10-12-14-20-22 sinnum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum og strax eftir kanti í hálsmáli). Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hver skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið út svona 8-8-8-8-4-4 sinnum á fram- og bakstykki (4-4-4-4-2-2 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 16-18-20-22-24-26 sinnum á fram- og bakstykki og 12-14-16-18-22-24 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 180-200-220-240-264-284 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 20-23-25-28-30-33 cm frá miðju að framan, prjónið e.t.v. áfram í sléttprjóni án útaukninga að réttu máli. Í síðustu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 29-31-35-37-41-45 lykkjur eins og áður (ca ½ bakstykki), setjið næstu 35-39-43-47-51-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 55-61-67-73-81-87 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 35-39-43-47-51-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 26-30-32-36-40-42 lykkjur eins og áður (ca ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 134-146-158-174-190-206 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 23-22-22-21-21-20 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 35-39-43-47-51-55 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 6 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 12-12-12-14-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 47-51-55-61-65-71 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 12-12-12-14-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Þegar ermin mælist 4-4-4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 15-10-10 cm millibili alls 2-3-3 sinna (fækkið ekki lykkjum í stærð S, M og L). ALLAR STÆRÐIR: = 47-51-55-57-59-65 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 39-36-35-32-31-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 15-17-19-19-19-23 lykkjur jafnt yfir = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 45-42-41-38-37-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueberrycreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-57
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.