Crystal Lattice#crystallatticecardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri, kúlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-24 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (frá réttu): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (frá röngu): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustur lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-9-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Á undan stroffi skiptist fram- og bakstykkið fyrir bakstykki og framstykki og stykkin eru prjónuð til loka hvert fyrir sig. Bakstykkið er aðeins lengra en framstykkin og það er klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 139-143-147-153-157-163 lykkjur á hringprjóna 3 með DROPS Alpaca eða DROPS Baby Merino. Skiptið yfir á hringprjóna 2,5 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 umferð brugðið og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 5-5-5-3-3-5 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 144-148-152-156-160-168 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið einn merkiþráð innan við 6 kantlykkjur að framan í byrjun á umferð – STYKKIÐ ER NÚNA MÆLT FRÁ ÞESSUM MERKIÞRÆÐI! Að auki eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Teljið 28-29-30-29-30-32 lykkjur (framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur frá 1. prjónamerki (axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Teljið 36-38-40-38-40-44 lykkjur frá 2. prjónamerki (bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur frá 3. prjónamerki (axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 28-29-30-29-30-32 lykkjur eftir á framstykki eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið nú mynstur jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! FYRSTA UMFERÐ ER PRJÓNUÐ FRÁ RÉTTU ÞANNIG: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 22-23-24-23-24-26 lykkjur), aukið út á UNDAN 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið sléttprjón yfir axlarlykkjurnar fram að 2. prjónamerki, aukið út á EFTIR 2. prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir bakstykki fram að 3. prjónamerki, aukið út á UNDAN 3. prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir axlarlykkjurnar fram að 4. prjónamerki, aukið út á EFTIR 4. prjónamerki, prjónið A.2 (= 22-23-24-23-24-26 lykkjur) og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti – lykkjur eru auknar út á framstykkjum og á bakstykki og fjöldi axlarlykkja verður sá sami. NÆSTA UMFERÐ ER PRJÓNUÐ FRÁ RÖNGU ÞANNIG: Prjónið mynstur til baka frá röngu og aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið úr á UNDAN 4. Og 2. Prjónamerki og aukið út á EFTIR 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka eins og útskýrt er að ofan bæði frá réttu og frá röngu. Þ.e.a.s. aukið er út í hverri umferð og það er aukið út mismunandi frá réttu og frá röngu, þannig að lykkjurnar leggist fallega. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 og A.2 þar til mynstrið nær yfir allar 33 lykkjurnar (ef ekki er pláss fyrir úrtöku og uppslátt í mynstrið þegar aukið er út fyrir axlarsæti, ekki prjóna uppsláttinn sem tilheyrir lykkjunni fyrr en það er pláss fyrir bæði úrtöku og uppslátt). Þegar það er pláss fyrir allt A.1/A.2 á breiddina, prjónið næstu útauknar lykkjur í sléttprjóni. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið alla mynstureininguna (33 lykkjur) á hæðina. Aukið út fyrir axlarsæti svona þar til aukið hefur verið út alls 24-26-28-32-34-36 sinnum = 240-252-264-284-296-312 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-8-9-10-11-11 cm frá merkiþræði við hálsmál. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: FRÁ RÉTTU: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. FRÁ RÖNGU: Aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki og aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2. Aukið nú einungis út á ermum og fjöldi lykkja á framstykkjum og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í hverri umferð alls 8-9-10-5-10-3 sinnum = 272-288-304-304-336-324 lykkjur. Stykkið mælist ca 10-11-12-12-14-12 cm frá merkiþræði við hálsmál. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerki frá útaukningu fyrir ermar, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjum sitja nú í ystu lykkju í hvorri hlið á ermi. Nú eru 40-42-44-38-48-34 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú eru lykkjur auknar út á framstykkjum, bakstykki og á báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 11-13-15-20-20-26 sinnum = 360-392-424-464-496-532 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 17-19-21-24-26-28 cm frá merkiþræði við hálsmál. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá merkiþræði við hálsmál. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 61-66-70-76-82-89 lykkjur (framstykki), setjið næstu 68-74-82-90-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 102-112-120-132-144-158 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 68-74-82-90-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 61-66-70-76-82-89 lykkjur (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 240-260-280-304-332-360 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir næstu 33 lykkjur, prjónið sléttprjón þar til 39 lykkjur eru eftir í umferð, haldið áfram með A.2 yfir næstu 33 lykkjur og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist ca 19 cm frá skiptingu – endið gjarna eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli á framstykkjum (bakstykkið mælist 2 cm lengra). Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið. Haldið eftir fyrstu 65-70-75-81-88-95 lykkjum frá réttu á prjóni (vinstra framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð eða hjálparprjón. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 19-20-23-25-26-29 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 84-90-98-106-114-124 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Síðan er prjónað stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúið brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúið slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 4 cm. Framstykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. Fellið aðeins laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið ystu 65-70-75-81-88-95 lykkjur í annarri hlið á stykki á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 19-20-23-25-26-29 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 84-90-98-106-114-124 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúið slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúið slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 4 cm. Framstykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. Fellið aðeins laust af. BAKSTYKKI: Setjið þær 110-120-130-142-156-170 lykkjur sem eftir eru á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 33-35-39-43-47-51 lykkjur jafnt yfir = 143-155-169-185-203-221 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúið brugðið og 3 lykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (rétta): 3 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúið slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm (2 cm lengra en framstykki). Bakstykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. Fellið aðeins laust af. ERMI: Setjið 68-74-82-90-94-98 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili alls 3-5-8-12-15-18 sinnum og síðan með 4 cm millibili alls 4-4-4-3-2-0 sinnum = 62-64-68-70-72-74 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-34-33-33-32-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja snúið slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 44-42-41-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crystallatticecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.