Bernadette skrifaði:
Bonjour Madame, je tricote le pull "Merry santas" en 3/4 ans. Concernant le diagramme A 1, pourquoi est-il présenté à l'envers sur la page ? Pour le tricoter, il faut bien commencer par les 2 rangs de jersey comportant les 6 mailles ? Sinon, je ne comprends pas comment on passe de 72 m à 192 m après avoir terminé A1 ? Avec mes remerciements. Cordialement
03.11.2021 - 16:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Bernadette, le pull se tricote de haut en bas, on va donc commencer par le col et le bonnet des Pères Noël. Tricotez l'intégralité des rangs de A.1 en commençant en bas à droite (= 6 mailles au 1er tour) et répétez le diagramme en largeur. En 11/12 ans, vous augmentez au 1er rang (= 3 m gris, 1 m naturel, 2 m gris, 1 jeté en gris) répétez de (à) = vous avez 7 m dans chaque A.1 tout le tour. Vous pourrez voir des photos de cette étape ici, dans le KAL de Noël. Bon tricot!
03.11.2021 - 16:51
Marion skrifaði:
Hallo, ich habe Sorge, dass das Rot beim Baden auslässt?
30.10.2021 - 21:22DROPS Design svaraði:
Liebe Marion, dunkle Farben enthalten anfangs oft zusätzliche Farbe, daher ist es wichtig, dass das Kleidungsstück so lange ausgespült wird, bis das Wasser klar ist. Damit vermeidet man, dass die überschüssige Farbe andere Farben des Strickstücks beeinträchtigt. Viel Spaß beim stricken!
03.11.2021 - 07:11
Anita Walseth Selboe skrifaði:
Under bærestykke står det at det skal være 27 + 27 + 54 masker dvs totalt 108, men når jeg kommer til bolen står det at jeg skal ha 120 masker på omg,? Er det feil i mønsteret?
27.10.2021 - 12:06DROPS Design svaraði:
Hej Anita. Du lägger upp 6 m under varje erm (=12 m totalt) så om du räknar med de får du 120 m totalt. Mvh DROPS Design
27.10.2021 - 13:15
Michaela skrifaði:
Vielen Dank für die schnelle Antwort, ja beim Betrachten des Fotos habe ich das auch gesehen. Zu guter Letzt kann man es ja seinen Bedürfnissen anpassen, auf alle Fälle macht es Spaß, den Santa Pulli zu stricken. LG.
26.10.2021 - 22:50
Michaela skrifaði:
Warum werden beim Ärmel vorm Bündchen die Maschen wieder zugenommen, die vorher abgenommen wurden? Das kenne ich bisher aus keiner Anleitung und ich stricke schon seit mehr als 50 Jahren.
26.10.2021 - 22:07DROPS Design svaraði:
Liebe Michaela, je nachdem, wie eng die Bündchen werden sollen und wie stark der Ärmel unten "gerafft" werden soll, kann das Bündchen enger oder weniger eng gestrickt werden. Bei diesem Pullover werden zuerst für die gesamte Ärmelform Maschen abgenommen und dann werden vor dem Bündchen wieder Maschen zugenommen, damit das Bündchen im Verhältnis zum restlichen Ärmel nicht zu eng wird. Wie Sie auf dem Foto sehen können, sitzt das Bündchen eher locker. Viel Spaß beim Stricken!
26.10.2021 - 22:27
Silke skrifaði:
Kann ich diesen Pullover auch gut mit Drops Nepal stricken oder kommt dann das Muster weniger gut zur Geltung? Ist Nepal auch gut für ein kleines Kind geeignet bzw. kratzt diese viel mehr als Drops Air? Muss ich dann die Menge der Knäuel einfach verdoppeln weil Nepal die halbe Lauflänge von Air hat? Lieben Dank für eine Antwort :)
21.10.2021 - 23:31DROPS Design svaraði:
Liebe Silke, gerne können Sie auch Nepal stricken, beide Garne sind Garngruppe C, benutzen Sie den Garnumrechner um die neue Garnmenge kalkulieren zu lassen; hier finden Sie unsere Modellen aus Nepal - je nach Empfindlichkeit kann es aber unterschiedlich sein, gerne wird Ihnen Ihr DROPS Store am besten helfen und empfehlen. Viel Spaß beim stricken!
22.10.2021 - 07:19
Trine Møller Høyby Sørensen skrifaði:
Hvis man vil lave to trøjer kunne jeg forstille mig der ville være en del til overs af de farver hvor der kun skal anvendes 50 g. Kan det betale sig at bestille dobbelt op på sort, hindbær, hvede og natur til to børne str trøjer.
19.10.2021 - 18:57DROPS Design svaraði:
Hej Trine, den sorte kan du sikkert klare dig med 1 nøgle, men de andre et du nok nødt til at bestille 2 nøgler ;)
21.10.2021 - 09:24
Merry Santas#merrysantassweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa og jólasveinahúfa fyrir börn úr DROPS Air. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með hringlaga berustykki og jólasveinamynstri. Húfan er prjónuð í sléttprjóni með stroffi. Stærð 2 – 14 ára. Þema: Jól.
DROPS Children 41-1 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 (á við um húfu): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Endurtakið við hvert prjónamerki. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-72-76 lykkjur á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 með litnum milligrár í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-14-10-16-12-14 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 66-72-78-78-84-84-90 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.1 (= 11-12-13-13-14-14-15 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og lestu LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 176-192-208-208-224-224-240 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með litnum milligrár, þar sem fækkað er um 4-8-12-8-12-4-8 lykkjur jafnt yfir = 172-184-196-200-212-220-232 lykkjur. Haldið áfram með litnum milligrár og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15-15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 25-27-29-30-32-33-34 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 50-54-58-60-64-66-68 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 25-27-29-30-32-33-34 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 112-120-128-132-140-144-148 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum milligrár. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-20-23-25-26-27-28 cm frá skiptingu (eða óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4-4 cm að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-46-48-50-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum milligrár. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-5-6-7-8-9-10 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 34-36-38-38-40-42-46 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 15-20-24-26-30-34-37 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4-4 cm að loka máli. Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 6-4-6-6-4-6-2 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 18-23-27-30-34-38-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. HNÚTUR: Það á að gera hnút efst á hverja jólasveinahúfu. Hnúturinn er hnýttur í kringum lykkju. Klippið 2 þræði af litnum natur, ca 10 cm. Leggið þræðina saman, notið nál og þræðið þræðina í gegnum efstu natur lituðu lykkjuna efst á húfu, þannig að báðir þráðarendarnir liggi frá réttu á stykki, hvoru megin við lykkjuna. Hnýtið hnút, hnýtið síðan annan hnút, í gagnstæða átt – sjá teikningu. Klippið þræðina ca 1 cm langa. Endurtakið efst á öllum jólasveinahúfum. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, frá stroffi og upp að topp á húfu. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum milligrár í DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4-5-5-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 84-88-92-96-100 lykkjur. Skiptið yfir í litinn hindber og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19-19-19-20 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 0-4-2-0-4 lykkjur jafnt yfir = 84-84-90-96-96 lykkjur. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið með 14-14-15-16-16 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-2-2-3-3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum í 6.-7.-7.-7.-7. hverri umferð alls 10-10-11-11-11 sinnum = 12 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist alls ca 50-52-54-56-58 cm og prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þráðinn og festið vel. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 5 cm að þvermáli með litnum milligrár. Saumið dúskinn niður efst á húfu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #merrysantassweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.