Marie skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas comment faire pour retourner le revers du bonnet de l'envers vers l'endroit sur des aiguilles circulaires . Pouvez vous m'aider Svp ? Ou bien avez vous une vidéo ? Merci
04.11.2021 - 04:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, retournez simplement votre ouvrage pour tricoter désormais dans l'autre sens, le début de l'ouvrage se retrouve sur l'envers pour qu'ainsi, quand vous retournerez le bas du bonnet, le revers sera sur l'endroit. Bon tricot!
04.11.2021 - 06:53
Ana skrifaði:
Hello, I'm very new at all this so I'm not totally sure what it means to turn the piece (I'm knitting the hat), I've googled it and all I can find is the wrap and turn in short rows used when making socks and it doesn't seem to be right for this piece. Is there a video explaining this? Thank you so much
27.10.2021 - 14:55DROPS Design svaraði:
Hello, You work the turn-up then you turn the work from the right side to the wrong side (which means that "technically" you have worked the turn-up on the wrong side). When the hat will be finished the turn-up will be turned up to be on the right side. Have a great week!
28.10.2021 - 09:20
Erna skrifaði:
Winter Rose
04.08.2021 - 02:38
Winter Trifecta#wintertrifectaset |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð húfa, hálsskjól og handstúkur úr DROPS Snow eða DROPS Wish. Stykkið er prjónað í stroffprjóni.
DROPS 225-17 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1, A.3 og A.4. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir – á við um hálsskjól) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 29 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 4,1. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um hálsskjól): Öll útaukning er gerð frá réttu: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Kantur fyrir uppábrot er prjónaður frá röngu, síðan er stykkinu snúið við og afgangur af húfu er prjónaður frá réttu. Skiptið yfir á sokkaprjóna þegar lykkjum fækkar. HÚFA: Byrjið á að prjóna uppábrots kant á húfuna þannig: Fitjið upp 64 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með DROPS Snow eða DROPS Wish. Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 hringinn í 12 cm. Nú er stykkinu snúið þannig að afgangur af húfunni er prjónaður áfram hringinn í gagnstæða átt. Þ.e.a.s. það sem er réttan á uppábrots kanti á nú að snúa inn að röngu á húfu. Þegar húfan hefur verið prjónuð til loka þá er kanturinn brotinn upp þannig að áferðin verði eins bæði á uppábrots kanti og afgangi af húfu. Prjónið síðan hringinn með A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 24 cm (meðtalinn ca 10 cm uppábrot, nú eru eftir ca 8 cm til loka máls – prjónið e.t.v. að óskaðri lengd). Prjónið nú A.1 (= 4 mynstureiningar með 16 lykkjum). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 32 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir með 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið. Prjónið síðan allar lykkjur 2 og 2 saman = 16 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið allar lykkjur 2 og 2 slétt saman = 8 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist alls 35 cm (= 25 cm með 10 cm uppábroti). ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum og saumað saman á öxlum. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á stuttan hringprjón. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 43-45 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow eða DROPS Wish. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.3 yfir fyrstu 7 lykkjur í umferð, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 29-31 lykkjur og fækkið jafnframt um 7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, prjónið A.4 yfir síðustu 7 lykkjur í umferð = 36-38 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu með mynstri eins og áður yfir ystu 7 lykkjur í hvorri hlið og brugðnar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið nú sléttprjón með 7 lykkjur mynstur í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 8 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með ca 5 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-22 cm. Setjið nú miðju 8 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Vinstri öxl: Prjónið næstu umferð frá réttu að hálsi þannig: Prjónið mynstur eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu í mynstri eins og áður. Haldið svona áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum = 13-14 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-30 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Hægri öxl: Prjónið næstu umferð frá réttu frá hálsmáli þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina í mynstri eins og áður. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu í mynstri eins og áður. Haldið svona áfram fram og til baka fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum = 13-14 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 28-30 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. BAKSTYKKI: Fitjið upp 43-45 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow eða DROPS Wish. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.3 yfir fyrstu 7 lykkjur í umferð, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 29-31 lykkjur og fækkið jafnframt um 7 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.4 yfir síðustu 7 lykkjur í umferð = 36-38 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu með mynstri eins og áður yfir ystu 7 lykkjur í hvorri hlið og brugðnar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið nú sléttprjón með 7 lykkjur mynstur í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 8 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út með ca 5 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-28 cm. Setjið nú miðju 14 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju frá hálsmáli = 13-14 lykkjur fyrir öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 28-30 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 64 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Snow eða DROPS Wish frá réttu og innan við 1 kantlykkju í kringum kant í hálsmáli. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið A.1 hringinn. Þegar kantur í hálsmáli mælist alls 20 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Það er mikilvægt að affellingarkanturinn dragist ekki saman – sjá AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HANDSTÚKUR: Fitjið upp 24 lykkjur á sokkaprjóna 8 með DROPS Snow eða DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 2 lykkjur í umferð þannig: Prjónið 1 lykkju snúna slétt, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið næstu 11 lykkjur eins og áður, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið síðustu 11 lykkjur í mynstri eins og áður. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin á stykki = 26 lykkjur (í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn og síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar brugðið). Prjónið síðan með snúna lykkju slétt yfir snúna lykkju slétt og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Þegar stykkið mælist 16 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið aðra handstúku á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintertrifectaset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.