DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 225-20
DROPS Design: Mynstur ai-366
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
Hálsskjól: S/M - M/L
Húfa: Ein stærð
Höfuðmál: ca 54/56 cm

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200 g litur 29, bleikvínrauður

HÚFA:

STÆRÐ:
Ein stærð.
Höfuðmál: ca 54/56 cm

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100 g litur 29, bleikvínrauður

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
(12 umferðir með A.2 til A.4 / stuðlakróksmynstur = ca 10 cm á hæðina).
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
S/M - M/L
Mál: Ummál: Ca 57-63 cm. Hæð: Ca 26-26 cm.

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150 g litur 29, bleikvínrauður

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
(11 umferðir með A.2 til A.4 / stuðlakróksmynstur = ca 10 cm á hæðina).
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar heklað er í hring (og snúið er við í hverri umferð):
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur. Loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkju. Loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð.

Þegar heklað er fram og til baka (á við um hálsskjól):
Í byrjun á umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur. Loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur er hekluð sem viðbót.
Í byrjun á umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkju. Loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚRTAKA-1:
Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig:
Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkju og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur um heklunálina), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2:
Heklið 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig:
* bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað neðan frá og upp. Heklað er í hring, en snúið er við í hverri umferð þannig að önnur hver umferð er hekluð frá réttu og röngu.

HÚFA:
Heklið 81 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA með heklunál 4,5 með DROPS Air og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð.
Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 80 stuðlar og 3 loftlykkjur til að snúa með.
Snúið og heklið frá umferð með ör í A.1 (fyrsta umferð er hekluð frá réttu) – stykkinu er snúið í hverri umferð, svo að í hverri umferð með fastalykkjum er heklað frá röngu og í hverri umferð með stuðlum og stuðlakróksmynstri er heklað frá réttu.
Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina mælist stykkið ca 4 cm.

Heklið nú mynstur frá umferð með ör í A.2 þannig:
Heklið A.2 yfir fyrstu lykkju, A.3 yfir næstu 76 lykkjur (= 19 mynstureiningar með 4 lykkjum), heklið fyrstu 3 lykkjur í A.4 – síðasta lykkjan í A.4 jafngildir lykkju í A.2 (í byrjun á umferð) og er með til að sýna hvar stuðlakróks-lykkjurnar eru heklaðar, endurtakið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu. Haldið svona áfram fram og til baka með 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu og endurtakið A.x. á hæðina.
Í 3. og 7. umferð er síðasta stuðlakróks-lykkjan í umferð hekluð um stuðul/stuðlakróks-lykkju í byrjun á umferð (þetta er gert til að mynstrið haldi áfram alla leiðina hringinn).
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 16 cm – stillið af að endað sé eftir fyrstu umferð í A.x, þ.e.a.s. í umferð með fastalykkjum frá röngu, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð, síðan er hekluð 1 keðjulykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum í umferð. Núna er þetta byrjun á umferð.
Heklið nú frá umferð með ör í A.5 = 10 mynstureiningar (fyrsta umferð í mynsturteikningu er einungis til að sýna hvar stuðlakróks-lykkjan er hekluð). Þegar A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 20 lykkjur í umferð. Heklið 1 umferð með fastalykkjum þar sem 2 og 2 fastalykkjur eru heklaðar saman í 1 fastalykkju – sjá ÚRTAKA-1 = 10 lykkjur. Heklið 1 umferð með stuðlum þar sem 2 og 2 stuðlar eru heklaðir saman í 1 stuðul – sjá ÚRTAKA-2 = 5 stuðlar. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum síðustu lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 25 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst heklað fram og til baka í 2 hlutum þar til klaufin hefur verið hekluð til loka. Síðan er heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð, þannig að áferðin verði alveg eins og heklað sé fram og til baka.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 46-50 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) – sjá LOFTLYKKJA með heklunál 5 með DROPS Air.
Snúið og heklið fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 1 stuðull + 3 loftlykkjur til að snúa við með) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af þeim 42-46 lykkjum sem eftir eru á heklunálinni = 43-47 stuðlar + 3 loftlykkjur.
Heklið nú mynstur þannig:
Byrjið umferð við ör í A.1 og heklið A.1 þar til 1 stuðull er eftir, heklið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar eins. Haldið svona áfram fram og til baka. Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 1-1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur saman þar í 1 fastalykkju – sjá ÚRTAKA-1 = 42-46 fastalykkjur + 1 loftlykkja. Stykkið mælist ca 4 cm.
Heklið nú áfram fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið A.2 yfir fyrstu lykkju, A.3 yfir næstu 36-40 lykkjur (= 9-10 mynstureiningar með 4 lykkjur), A.4 yfir næstu 4 lykkjur, 1 stuðull í síðustu lykkju.
UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, mynstur eins og áður yfir næstu 41-45 lykkjur.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til 2 umferðir eru eftir í A.2 til A.4.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Í næstu umferð með fastalykkjum er fækkað um 1 fastalykkju í byrjun og í lok umferðar (= 2 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA-1 = 40-44 fastalykkjur + 1 loftlykkja.
Geymið stykkið og heklið annað stykki á sama hátt.

Nú eru bæði stykkin hekluð saman með því að hekla mynstur frá síðustu umferð í A.2 til A.4 frá réttu þannig:
Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, heklið 9-10 mynstureiningar með A.3, heklið fyrstu 3 lykkjur í A.3 yfir síðustu 3 lykkjur á fyrra stykki (síðasta stuðlakróks-lykkjan er hekluð um fyrstu stuðlakróks-lykkju á seinna stykkinu), heklið síðustu lykkju í A.2 yfir fyrstu lykkju á seinna stykkinu, heklið mynstur einingu A.3 á seinna stykkinu (fyrsta stuðlakróks-lykkjan er hekluð í síðustu stuðlakróks-lykkju frá fyrri umferð með stuðlakróks-lykkjum í lok á fyrra stykkinu), heklið 8-9 mynstureiningar til viðbótar með A.3, heklið fyrstu 3 lykkjur í A.4 (síðasta stuðlakróks-lykkjan er hekluð um fyrstu lykkju í byrjun á fyrra stykki) og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Nú eru 80-88 lykkjur í umferð og 20-22 ferningar með stuðlakróks-lykkjum.
Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu. Haldið svona áfram fram og til baka með 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu og endurtakið A.x á hæðina.
Í 7. umferð er síðasta stuðlakróks-lykkjan í umferð hekluð um stuðul/stuðlakróks-lykkju í byrjun á umferð (þetta er gert til að mynstrið haldi áfram alla leið hringinn).
Þegar stykkið mælist ca 12-12 cm frá klauf – stillið af að endað sé eftir umferð með fastalykkjum, heklið kant þannig:
Byrjið á umferð með ör í A.1 og heklið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina mælist hálsskjólið ca 16-16 cm frá klauf og ca 26-26 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn og festið.

Mynstur

symbols = byrjið á þessari umferð, fyrri umferð er nú þegar hekluð
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 stuðlakrókur/tvíbrugðinn stuðull: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um 1 stuðul/stuðlakróks-lykkju frá fyrri umferð með stuðlum/stuðlakróks-lykkjum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðul/stuðlakróks-lykkju
symbols = Heklið 1 stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul um 1 stuðul frá fyrri umferð með stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðulinn), en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næstu lykkju (= 2 lykkjur á heklunálinni)
symbols = Heklið 1 stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul um 1 stuðul frá fyrri umferð með stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðul), en þegar bregða á þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni (þ.e.a.s. þessi stuðlakróks-lykkja hefur verið hekluð saman með fyrri stuðlakróks-lykkju + stuðull = 1 lykkja).
ATH: Þegar heklað er í hring er heklað í lok umferðar þannig: Í síðasta skipti þegar þetta tákn er heklað í umferð 3 í A.4, heklið um fyrsta stuðul í byrjun á umferð

symbols = Heklið 1 stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul um 1 stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul), bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul í næstu lykkju (= 2 lykkjur á heklunálinni).
ATH – í síðasta skipti sem þetta tákn er heklað í umferð 5 í A.4, heklið þannig:
Þegar heklað er fram og til baka: Dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni þegar síðasti stuðullinn er heklaður (= 1 lykkja).
Þegar stykkið er heklað í hring og snúið er við í hverri umferð: Í stað þess að hekla 1 stuðul í næstu lykkju, heklið þannig: Heklið 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð og dragið þráðinn í egnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja)
symbols = Heklið 1 stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul um 1 stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðlakrók-þríbrugðinn stuðul), en þegar bregða á þræðinum um heklunálina og draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (þ.e.a.s. þessi stuðlakróks-lykkja hefur verið hekluð saman með fyrri stuðlakróks-lykkju + stuðull = 1 lykkja).
ATH: Í fyrsta skipti sem þetta tákn er heklað í umferð 5 og A.2, er lykkjan ekki hekluð saman við aðra lykkju þar sem ekki eru fleiri lykkjur til að hekla saman við (= 1 lykkja)
symbols = heklið 2 stuðla saman
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Heidi wrote:

Hei. Jeg hekler alltid litt for stramt, så jeg forstår ikke helt. Uansett så la jeg opp med 61 masker istedenfor. Da passer den i omkrets. Men; når jeg begynner på relieff i runde 3 så klarer jeg å øke maskeantall når jeg er ferdig med runden. Hva er det jeg gjør feil her? Og når dere beskriver i den første relieff at når det er to masker igjen skal jeg hekle en stav; hvordan og i hvilken maske?

07.12.2023 - 10:30

DROPS Design answered:

Hei Heidi. Hekler du Lue eller Hals? mvh DROPS Design

11.12.2023 - 13:42

country flag Heidi wrote:

Et spørsmål til; etter A1 er ferdig - er første runde med A2, A3 og A4 simpelthen én runde med stavmasker?

06.12.2023 - 15:07

DROPS Design answered:

Hej igen, ja det stemmer, du starter ved pilen i diagrammet :)

07.12.2023 - 07:39

country flag Heidi wrote:

Har heklet A1 ferdig, men jeg kan tre den over hodet og bruke som hals. Jeg hekler ikke spesielt løst. Er det virkelig meningen at man skal legge opp 81 masker, eller skjer det noe magisk etter hvert som jeg fortsetter med A2? Når jeg strammer kan jeg ta av 24 masker hvis den skal passe rundt hodet. Hva har jeg gjort feil?

06.12.2023 - 14:41

DROPS Design answered:

Hej Heidi, det lyder som om at du hækler for løst (i forhold til opskriften) eller at garnet er for tykt... Hækler du i DROPS Air og har du 14 m på 10 cm?

07.12.2023 - 07:34

country flag Magda Kalse wrote:

Is there a video tutorial for this? I cannot seem to get the A2 and A34 part right at all!!!???? HELP, It does not make sense at all.....

11.06.2023 - 13:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kalse, we don't have specific video for these diagrams, start with a.2 at the beg of the round, then repeat A.3 and end with A.4. In this video we show a similar pattern (but not exactly the same, so don't follow the video, but it might help you understanding how to work the stitches). Happy crocheting!

12.06.2023 - 08:57

country flag Liv Nymo wrote:

Skal starte på diagram A2. Pil. Kommer ikke i gang med staver og relieff trippelstav. Har bare en fastmaskerekke å ta fast i ? Siste omg A1. Skal det være både en stav og ei trippel relieffmaske i samme maske? Skal staver og relieffmasker hekles på samme omgang?

19.04.2023 - 17:52

DROPS Design answered:

Hei Liv. I diagramforklaringene til relieff stavene er det forklart at man skal hekle i forrige rad/omgangen med staver (ikke i raden under). Så når du skal hekle 1.rad/omgang med relieff-staver (du er nå i 3.rad/omgang i dagrammet), hekler du i 1.rad (og det hekles om selve staven, ikke i selve leddet). Når du f.eks hekler 3. rad/omgang hekles det staver og 2 ulike relieff-staver. Husk at hvordan du skal hekle en relieff-stav er det symbolet nederst på streken som gir deg forklaring på hvilken type relieff-stav det skal hekles. mvh DROPS Design

24.04.2023 - 11:06

country flag DANIELA ESPOSITO wrote:

Ma posso lavorare anche con L uncinetto n 3/3.50 con il PINOCONE SET?

27.12.2022 - 07:59

DROPS Design answered:

Buonasera Daniela, deve lavorare con l'uncinetto che le permette di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!

27.12.2022 - 16:51

country flag Pauline wrote:

Bonjour, malgré les explications je ne comprend pas comment crocheter A2 A3 et A4. Je ne comprend pas le diagramme avec les brides reliefs qui forment le motif de triangle. Merci d'avance pour votre reponse

17.12.2022 - 20:18

DROPS Design answered:

Bonjour Pauline, ces mailles en relief se font aux tours de brides ( aux tours 3, 5 et 7), au tour 3 de A.3: crochetez 1 bride dans la 1ère bride, 1 triple-bride (correction faite) en relief autour de la bride indiquée par le carré (5ème symbole de la légende), 1 triple bride relief autour de la maille indiquée par le rond (6ème symbole), 1 bride dans chacune des 2 brides suivantes. Bon crochet!

19.12.2022 - 09:22

country flag Britzi wrote:

Zur Anleitung vom Kragenschal: ich verstehe die Arbeitsweise nach der zweiten Reihe nicht - weiter im Muster, bis noch 2 Reihen in A.2 bis A.4 übrig sind. Vie

07.11.2022 - 12:33

DROPS Design answered:

Liebe Britzi, der Kragenschal häkeln Sie zuerst in 2 separate Teile, bei jedem Teil häkeln Sie dia Diagramme A.2-A.4 bis 2 Reihen noch übrig sind (= dh bis 5. Reihe einsschl.) dann häkeln Sie die 6. Reihe mit Abnahmen - und die Arbeit zur Seite legen, die 7. Reihe häkeln Sie dann über beide Teile wie bei dem nächsten Absatz. Viel Spaß beim häkeln!

07.11.2022 - 16:09

country flag Marina wrote:

Hallo, de uitleg hoe je telpatronen A2, A3 en A4 moet haken is gewoon niet te begrijpen! Ik kijk wel op een andere website of in een boek met haaksteken hoe dit ruitjespatroon moet gemaakt worden. Zo spijtig voor jullie website.

22.09.2022 - 13:59

country flag Monique wrote:

Bij toer 5 loop ik toch weer vast…. Waarom moet de muts heen e n weer gehaakt? Dat maakt het patroon nog moeilijker! Dank voor hulp.

22.06.2022 - 21:57